Fréttablaðið - 23.05.2009, Qupperneq 52
10 FERÐALÖG
Reyktur lax með blaðlaukssultu
FYRIR 4
Undirbúningur 15 mín., suða 20 mín.
250 g reyktur lax í þunnum sneiðum
400 g blaðlaukur sem búið er að þrífa
hunang, ólífuolía, sýrður rjómi, pipar og salt.
Skerið niður laukinn, látið krauma á pönnu
í olíunni við vægan hita. Hann á að mýkjast
en ekki að brúnast. Þegar hann er vel soðinn
bætið þið við 1 msk. af hunangi, salti og
pipar. Smakkið, bætið við meira hunangi ef
þarf. Klæðið litlar skálar með laxsneiðunum.
Fyllið með lauksultunni. Setjið pönnuna aftur
á heita helluna, skafið vel botninn með 2 msk.
M
æðgurnar ganga um
hverfi Parísar og auk
þess að draga saman
menningu og matar-
hefðir þeirra má í lok hvers kafla
finna uppskriftir að hætti íbúa
hverfanna; forrétti, aðalrétti og
eftirrétti. Ferðablaðið fékk góð-
fúslegt leyfi til að birta nokkrar
uppskriftir úr bókinni.
Bókin er sérstaklega skemmti-
lega uppsett með alls kyns fróð-
leik af hverfinu og gefur gott yfir-
lit fyrir ferðalanga í Parísarborg.
SÆLKERAMÆÐGUR
TAKA HVERFI PARÍSAR FYRIR
Sigríður Gunnarsdóttir hefur búið um áratugaskeið í Frakklandi og hefur nú ásamt dóttur sinni,
Silju Sallé, skrifað bók um hin tuttugu hverfi Parísarborgar, einkum út frá matarverslunum,
mörkuðum, veitingahúsum og eldamennsku hvers hverfi s. Farið er í gegnum helstu kennileiti
hverfanna, söfn, sögu íbúanna og slíkt. Silja myndaði en móðirin eldaði og skrifaði textann.
Fjölskyldubók
Mæðgurnar
Silja Sallé og
Sigríður Gunn-
arsdóttir standa
að baki bókinni
en Sigríður
hefur búið í
París öll sín
fullorðinsár.
Uppskriftir hverfanna fylgja
með Margar girnilegar
uppskriftir fylgja með í lok
kaflanna, með forréttum, aðal-
réttum og eftirréttum.
Úr gamla Trésmiðahverfinu Bakgarður gamals smíðaverkstæðis þar
sem hverfið er allt helgað húsgagnasmíði og bólstrun.
Fjölskyldubarinn í Bastillu-
hverfinu Fjörugasta næturlífið
er í þessari eldgömlu götu.
Bastilluhverfið hefur löngum
verið þekkt fyrir stuð og læti.
Súkkulaðiréttur úr 15. hverfi Kakan er hálfbökuð úr dökku súkku-
laði.
rjóma, smá hunangi, pipar og salti. Hellið yfir
laukinn. Borðið heitt.
Með þessum rétti þarf mjúkt hvítvín og má til
dæmis prófa Chablis.
Fljótgert Laxasalatið með
blaðlaukssultunni er
fljótgerður forréttur.
FERÐAMÁLASKÓLINN
ICELAND SCHOOL OF TOURISM