Fréttablaðið - 23.05.2009, Síða 55
LAUGARDAGUR 23. maí 2009 27
berar persónur og slíkt. Annars
hefur smekkurinn þróast þannig
að ég kann sífellt betur að meta
aulahúmor og barnalegan húmor.
Þannig að ég er eiginlega að ganga
í barndóm í húmor.“ Áttu þá við
að renna á bananahýði? „Nei, það
til dæmis gengur út á að hlæja að
óförum annarra. Þetta er kannski
frekar einhver svona prumpuhúm-
or. Grínið fjallar oft mjög mikið um
sjálfan mig, að mér finnst ég ekki
alveg fatta eitthvað eða geta eitt-
hvað og þá reyni ég að koma því á
framfæri. Fólki finnst það fynd-
ið.“
Mikilvægt að halda kúlinu
Við ræðum grínið áfram. Þor-
steinn segist ekki stúdera fræðin
á bak við þau, sé frekar í því að
njóta þess. Hann spái þó mikið í
það hvort grínið hitti í mark, enda
nauðsynlegt starfs hans vegna.
„Eins og margir hafa bent á – grín
er þannig að þú færð samstundis
viðbrögð. Annað hvort er hlegið
eða ekki. Og partur af því að öðl-
ast reynslu sem grínisti er að halda
kúlinu. Maður getur lent í því að
vera að skemmta og fyrstu fimm
mínúturnar eru erfiðar og ein-
hver stendur upp og einhver hlær
ekki. Fyrst þegar ég var að byrja
í þessu fór ég á taugum við slíkar
aðstæður. Fór að hlaupa yfir efni,
afsaka mig og reyna að hugsa upp
eitthvað nýtt á staðnum, sem var
þá sjaldnast fyndið. Þetta getur því
orðið svolítil martröð. Með árunum
verður maður svolítið kærulausari
– „ókei, þið þurfið ekkert að hlæja,
ég skal bara halda áfram…“ og þá
einhvern veginn nær maður fólki
því fólk vill ekki sjá einhvern sem
er stressaður og engist.“
ÍNN og Útvarp saga
Þorsteinn segir að hann hafi fundið
sig sem uppistandara á sviði þegar
hann var með uppistand á Sport-
kaffi með Sigurjóni Kjartanssyni
en þá fór hann að segja frá hvers-
deginum og hvernig það væri að
vera fjölskyldufaðir, á húsfundum
og öðru slíku. Hversdagurinn hefur
orðið svolítið hans þema sem og
vísindalegar pælingar og rit eins
og Lifandi vísindi og Skakki turn-
inn geta veitt honum innblástur.
Þorsteinn segir það ekki beint vera
meðvitað að vera einfaldur í grín-
inu, það sé frekar ákveðinn smekk-
ur. „Ég er til dæmis alinn upp við
mikinn ljóðalestur. Ég held ég hafi
lært svolítið af því að tala í knöppu
máli. Síðan er ég mjög hrifinn af
ákveðnum naívisma og svona, hvað
skal segja, „ÍNN og Útvarps sögu-
stemningu“. Fólki sem fer bara og
gerir hlutina umbúðalaust. Er ekki
að pæla í því að vera töff eða hvern-
ig það líti út. Er bara heiðarlegt
með allt sitt, útlit og umgjörð.“
Framtakssemi þykir ekki lengur
hallærisleg
Umbúðaleysið hentar honum sjálf-
um vel og er til dæmis hluti af
ástæðu þess að honum finnst jafn-
vel betra að vera með sketsa á net-
inu en í sjónvarpinu. „Það skiptir
mig engu máli og ég vil helst hafa
sem fæsta í kringum mig ef ég er
að taka eitthvað upp í sjónvarpi. Of
mörg ljós og of mikið vesen er ekki
gott. Hlutirnir eru yfirleitt bestir
einfaldir. Ég til dæmis hætti á aug-
lýsingastofunni ENNEMM fyrir
um tveimur árum. Þá fór ég í sam-
starf við Dag Hilmarsson, graf-
ískan hönnuð, og saman höfum
við gert auglýsingar. Það er bara
praktískara og hentar mér betur
persónulega þó að ENNEMM hafi í
sjálfu sér verið góður vinnustaður.
Þetta er spurning um viðhorf.“
Skrifar handrit með Jóni Gnarr og
Ólafíu Hrönn
Þorsteinn er með ótal járn í eldin-
um, nú sem endranær. Hann seg-
ist vera í smá millibilsástandi með
skriftirnar. Kvikmynd, sem hann
hefur unnið að í nokkur ár, er komin
inn í Kvikmyndamiðstöð í umsókn
um framleiðslustyrk en handritið
skrifaði hann að mestu leyti einn.
Myndin er að hans sögn rómantísk
gamanmynd. „Ég yrði mjög glað-
ur ef við gætum gert þessa mynd
en þá mun Reynir Lyngdal leik-
stýra henni.“ Önnur kvikmynd er
svo á handritsstigi en þar skrifar
Þorsteinn handrit með Styrmi Sig-
urðssyni leikstjóra, Jóni Gnarr og
Ólafíu Hrönn Jónsdóttur.
Laugavegur fyrir erlenda ferða-
menn
Á Facebook-síðu sem Þorsteinn
stofnaði og kallast Menningargat-
an Laugavegur er hann þessa dag-
ana að plægja jarðveginn fyrir því
að breyta Laugaveginum í götu
þar sem rekast megi á menning-
artengda viðburði í hverju horni.
„Ég fékk hugmyndina að þessari
Facebook-síðu bara í síðustu viku
og bar undir fólk sem ég treysti.
Svo ákvað ég að byrja á því að
mynda hóp í kringum þetta. Ég sé
fyrir mér að nýta autt verslunar-
húsnæði undir uppistand og þá til
dæmis á ensku, vera með brúðu-
leikhús, um sögu Íslands og slíkt,
kynna listamenn eins og Þórberg
Þórðarson og Þorstein Erlings-
son sem erlendir ferðamenn fara
á mis við. Ég hugsa að þetta gæti
orðið meiriháttar skemmtilegt.
Ég hafði samband við Ferðamála-
ráð og komst að því að það er mjög
lítið framboð af skemmtiuppákom-
um fyrir erlenda ferðamenn í borg-
inni, samt eru þeir um 500.000 á
ári hverju. Facebook-hópurinn er
nú kominn vel fyrir þúsund manns
á fimm dögum.“
Í Góða hirðinum eftir hrun
Að lokum ræðum við ástandið,
kreppuna og hvernig þetta horf-
ir við Þorsteini. „Svona persónu-
lega hefur þetta svo sem verið allt
í lagi. Við vorum í framkvæmd-
um í húsinu okkar sem við kláruð-
um síðasta haust. Tveimur vikum
fyrir hrun náðum við að skuld-
breyta yfirdráttarlánum og öðru
slíku. En við erum auðvitað, eins og
allir, komin með rosalega greiðslu-
byrði. Á meðan maður heldur vinnu
og hefur eitthvað að gera kvartar
maður ekki. Við erum sex manna
fjölskylda og fórum bara út í að
spara. Og það hittist reyndar svo-
lítið skemmtilega á því við Elísa-
bet Anna konan mín höfum áhuga
á gömlum munum. Við höfum því
svolítið verið að fara í Góða hirð-
inn og keyptum okkur til dæmis
um daginn sönglagahefti af Barna-
landi frá 1960. En auðvitað er búið
að vera mjög dýrt að búa á Íslandi
í mörg ár. Þetta er ekkert ný hugs-
un fyrir Íslendinga – að spara. Ég
þekki ekki fólk sem hefur verið að
eyða peningunum í vitleysu. Og
mér finnst mjög alvarlegt þegar
reynt er að koma inn samviskubiti
hjá almenningi – að þetta sé allra
sök. Þetta er sök örfárra manna.
Þjóðin tók ekki þátt í þessu.“
Vissir þú að …
… það atriði sem Þorsteinn er oftast
minntur á af fólki úr Fóstbræðrum
er atriðið um Snúlla snúð, lélegan
leikara sem leikur trúð á vinnustöð-
um.
… Þorsteinn heldur úti vefsíðunni
www.thorsteinngudmunsson.is þar
sem hægt er að nálgast grínefni
hans
… Þorsteinn er fæddur 4. febrúar
1967
… það ár fæddist rússneski listdans-
arinn á skautum: Sergei Grinkov.
… Þorsteinn býr í Þingholtunum.
Nú hefur Kaupþing fengið öflugan liðsauka. Fjöldi fyrrverandi starfsmanna SPRON hefur
verið ráðinn til bankans. Það er mikið gleðiefni fyrir okkur og fyrrum viðskiptavini SPRON,
sem nú eru komnir í viðskipti við Kaupþing. Starfsfólk Kaupþings býður þennan glæsilega
hóp velkominn í liðið.
VESTURBÆJARÚTIBÚ
Anna Haraldsdóttir
Brynja Þorkelsdóttir
Ingigerður Guðmundsdóttir
SUÐURLANDSBRAUT
Bryndís Ann Brynjarsdóttir
Einar Örn Ævarsson
Valdís Hansdóttir
Rakel Sigurðardóttir
AÐALÚTIBÚ
Guðríður Birgisdóttir
Halldóra Þorvaldsdóttir
Sigrún Dögg Þórðardóttir
Andrea Guðrún Gunnlaugsdóttir
Kristján Þór Sveinsson
MJÓDD
Berglind Guðrún Bergmann
Oddný Aðalsteinsdóttir
Helga María Kristinsdóttir
GRAFARVOGUR
Monika Sóley Skarphéðinsdóttir
HAFNARFJÖRÐUR
Guðríður Linda Karlsdóttir
ÞJÓNUSTUVER
Auður Gísladóttir
Carolin K. Guðbjartsdóttir
Ester Rúnarsdóttir
Hjördís Halldórsdóttir
Svanhvít Gunnarsdóttir
Tomasz Þór Veruson
VIÐSKIPTAUMSJÓN
Birgitta Esther Róbertsdóttir
Helga Þóra Þórarinsdóttir
Ingibjörg Gissurardóttir
HÖFUÐSTÖÐVAR
Aðalbjörg Baldursdóttir
Anna Kristín Björnsdóttir
Björn Helgason
Guðmundur Rúnar Árnason
Helgi Magnús Baldvinsson
Hrafn Nikolai Ólafsson
Matthildur Elín Björnsdóttir
Guðrún Margrét Ólafsdóttir
FAGNAÐARFUNDIR
Nánari upplýsingar á www.kaupthing.is
eða í síma 444 7000.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
K
A
U
46
33
7
05
/0
9
Auglýsingasími
– Mest lesið