Fréttablaðið - 23.05.2009, Síða 58
30 23. maí 2009 LAUGARDAGUR
HENRIK IBSEN LÉST ÞENNAN DAG
ÁRIÐ 1906.
„Þúsund orð hafa minni áhrif
en eitt verk.“
Ibsen var norskt skáld sem
skildi eftir sig 25 leikverk.
Þennan dag árið 1934 var eitt
frægasta glæpapar sögunn-
ar, Bonnie og Clyde, skotið til
bana í Louisiana-ríki í Banda-
ríkjunum.
Clyde Champion Barrow og
Bonnie Parker hittust fyrst í
Texas í byrjun ársins 1930.
Alríkislögreglan leitaði pars-
ins í rúm tvö ár en það komst
undan skothríð lögreglu í nóv-
ember árið 1933. Loks fékk
lögreglan fregnir af parinu þar
sem það sótti veislu í Black Lake í Louisiana að kvöldi 21. maí
1934 og átti að vera væntanlegt aftur á dvalarstað sinn við Sailes
í sama ríki tveimur dögum síðar.
Fyrir dögun þann morgun sátu lögreglumenn fyrir Bonnie og
Clyde þar sem þau óku hjá. Þau reyndu að flýja þegar lögreglan
hóf skothríð að þeim en létust samstundis.
ÞETTA GERÐIST: 23. MAÍ ÁRIÐ 1934
Bonnie og Clyde skotin
timamot@frettabladid.is
Elskulegi maðurinn minn, pabbi okkar,
fósturpabbi, tengdapabbi, afi og langafi,
Pétur Kristófer
Guðmundsson
fyrrum bóndi á Hraunum í Fljótum,
Hlíðarlundi 2, Akureyri,
lést á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri sunnudaginn
17. maí. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju þriðju-
daginn 26. maí kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á að
láta Dvalarheimilið Hlíð njóta þess.
Rósa Pálmadóttir
Guðrún Björk Pétursdóttir Friðrik Gylfi Traustason
Elísabet Alda Pétursdóttir Sigurður Björgúlfsson
G. Viðar Pétursson Anna Kristinsdóttir
Pétur Sigurvin Georgsson Jónína Halldórsdóttir
Berglind Rós Magnúsdóttir Ásgrímur Angantýsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengda-
móðir, amma og langamma,
Þuríður Bára Halldórsdóttir
Ljósmóðir, Hrísateig 23, Reykjavík,
lést 7. maí 2009 á krabbameinsdeild Landspítalans við
Hringbraut. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk 11E.
Bjarni Guðlaugsson
Hafrún Lára Bjarnadóttir
Brynja Bjarnadóttir
Erna Bjarnadóttir Helgi Halldórsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Snorri P. Snorrason
læknir,
sem lést á Droplaugarstöðum laugardaginn 16. maí,
verður jarðsunginn í Dómkirkjunni þriðjudaginn 26.
maí kl. 13.00.
Karólína Jónsdóttir
Snorri P. Snorrason Helga Þórarinsdóttir
Kristín Snorradóttir Magnús Eiríkur Jakobsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu
samúð og hlýhug við andlát og útför
frænda okkar og vinar,
Margeirs Péturs
Steingrímssonar
Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Beykihlíðar, fyrir
kærleiksríka umönnun og góð kynni.
Valborg Svavarsdóttir Haukur Valtýsson
Agnes Tulinius Svavarsdóttir Otto Tulinius
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
Kristíana Hólmgeirsdóttir
Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri,
lést miðviðkudaginn 20. maí. Jarðarförin verður aug-
lýst síðar.
Valgerður E. Valdemarsdóttir Baldur Guðvinsson
Þórhildur S. Valdemarsdóttir Þorsteinn Þorsteinsson
Hólmgeir Valdemarsson Birna S. Björnsdóttir
Baldvin Valdemarsson Vilborg E. Sveinbjörnsdóttir
Sigrún B. Valdemarsdóttir Ingólfur Ingólfsson
barnabörn og langömmubörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför ástkærs föður okkar, tengdaföður og
afa,
Arngríms Ingimundarsonar
kaupmanns í Vörðunni, Grettisgötu 2a.
Guð blessi ykkur öll.
Ingileif Arngrímsdóttir Sigmar Æ. Björgvinsson
Jóhanna Arngrímsdóttir Snorri B. Ingason
Sigríður Arngrímsdóttir Grettir K. Jóhannesson
Gíslunn Arngrímsdóttir Gunnlaugur S. Sigurðsson
og afabörnin.
Sími: 525 9930
hotelsaga@hotelsaga.is
www.hotelsaga.is
Hótel Saga annast erfidr ykkjur af
virðingu og alúð. Fágað umhverfi,
góðar veitingar og styrk þjónusta.
Erfidrykkjur af alúð
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, dóttir
mín og systir okkar,
Guðfinna Óskarsdóttir
Höfðavegi 28, Vestmannaeyjum,
lést á Landspítalanum miðvikudaginn 20. maí
sl. Útförin fer fram frá Hvítasunnukirkjunni í
Vestmannaeyjum laugardaginn 30. maí nk. kl. 14.
Magnús Þór Jónasson
Þórarinn Magnússon
Elín Ósk Magnúsdóttir
Sævar Þór Magnússon
Elín Jónasdóttir
Haukur Óskarsson
Guðlaug Óskarsdóttir
Útfararþjónusta
Davíðs Ósvaldssonar ehf.
Davíð Ósvaldsson
Útfararstjóri
S. 896 6988 / 553 6699
Óli Pétur Friðþjófsson
Útfararstjóri
S. 892 8947 / 565 6511
MOSAIK
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
„Við byrjum afmælið með því að halda veglega hátíð í tengsl-
um við fyrsta heimaleik sumarsins á laugardegi,“ segir Jór-
unn Frímannsdóttir, formaður Íþróttafélagsins Þróttar, sem
heldur upp á 60 ára afmælið á árinu. „Um er að ræða stór-
leik Þróttar og Fjölnis í Pepsí-deild karla í knattspyrnu á
gervigrasinu í Laugardalnum,“ bætir Ásmundur Vilhelms-
son, framkvæmdastjóri Þróttar, við. En farið verður í skrúð-
göngu yfir á Valbjarnarvöll eftir að formlegri fjölskyldudag-
skrá lýkur klukkan 15.30 og hefst leikurinn klukkan 16.00.
Að sögn Jórunnar er Þróttur grasrótarfélag sem heldur
betur hefur haslað sér völl, stofnað 5. ágúst 1949. „Tveir menn
sátu að spilamennsku í litlu húsi vestur á Grímsstaðaholti,“
nefnir hún og Ásmundur bætir við: „Það voru þeir Halldór
Sigurðsson fisksali og Eyjólfur Jónsson, flokksstjóri í Reykja-
vík, betur þekktir sem Dóri fisksali og Eyjólfur sundkappi,
sem voru helstu hvatamenn þess að félagið var stofnað.“
Jórunn heldur áfram með söguna af þeim Dóra fisksala
og Eyjólfi sundkappa: „Milli þess sem þeir spiluðu ræddu
þeir þörfina fyrir íþróttastarf í hverfinu. Þétt setið var í fé-
lagsheimilinu á Grímsstaðaholti við Ægisíðu þetta ágúst-
kvöld fyrir um 60 árum enda var mikill hugur í mönnum.“
Hún segir enn fremur: „Það var snemma ljóst að félagið var
komið til að vera.“
Stofnfélagar voru 37 talsins minnist Jórunn á og Ásmund-
ur nefnir að í dag séu þeir um þúsund. Helstu greinarnar eru
auk knattspyrnu, handbolti, blak og tennis. Einnig hafa verið
starfsræktar í félaginu skák- og krulludeild.
„Þróttur átti því láni að fagna að eiga forystumenn sem
aldrei létu deigan síga,“ segir Jórunn og minnist á helstu for-
vígismenn félagins: „Menn eins og Óskar Pétursson skátafor-
ingi tóku síðan við keflinu af þeim Dóra og Eyjólfi og þar á
eftir tóku við fyrrverandi leikmenn úr Þrótti, markmennirn-
ir Jón Ásgeirsson og Guðjón Oddsson. Í formannstíð Tryggva
E. Geirssonar flutti félagið, sem stofnað var í Vesturbænum,
úr Sæviðarsundinu niður í Laugardal.
„Það var því mikið heillaspor sem stigið var afmælissum-
arið 1999,“ segir Jórunn og vísar til þess þegar Kristinn Ein-
arsson og hans stjórn tóku við góðri aðstöðu. „Ötullega var
unnið að því að laða fleiri þátttakendur að félaginu og í dag
er Þróttur orðinn stórveldi á íþróttasviðinu.“
Á afmælishátíðinni í dag verður margt um að vera. Meðal
viðburða má nefna að frumflutt verður nýtt Þróttaralag og
efnilegar skjólahljómsveitir úr hverfinu koma fram svo eitt-
hvað sé nefnt. Þá bendir Ásmundur á að haldin verður for-
eldrakeppni í knattspyrnu á milli Voganna, Langholtsins og
Laugarnessins og þar ætlar Jórunn að keppa. Í tilefni dags-
ins verður auk þess boðið upp á risastóra afmælistertu, kaffi,
gos og ís fyrir börnin.
Allar nánari upplýsingar um dagskrána er hægt að nálgast
á vefsíðu félagsins www.trottur.is vala@frettabladid.is
ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ ÞRÓTTUR: 60 ÁRA
Stórveldi á
íþróttasviði
FORMAÐURINN OG FRAMKVÆMDASTJÓRINN Jórunn Frímannsdóttir
og Ásmundur Vilhelmsson í góðum gír í Laugardal. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI