Fréttablaðið - 23.05.2009, Síða 71

Fréttablaðið - 23.05.2009, Síða 71
LAUGARDAGUR 23. maí 2009 43 Katie Holmes hlakkar mikið til að ferðast til Ástralíu þar sem tökur fara fram á nýjustu mynd hennar Don´t Be Afraid of the Dark. Tökurnar hefjast í sumar og ætlar Holmes að dvelja í þrjá mánuði í landinu ásamt eigin- manni sínum Tom Cruise og dótt- ur þeirra Suri. Myndin fjallar um unga stúlku sem flytur inn til föður síns og nýrrar kærustu hans. Kemst stúlkan fljótlega að því að ókunn- ar verur sitja um hana. „Ég hlakka mikið til. Myndin byggist á góðri persónusköpun. Hún fjall- ar aðallega um það hvernig er að verða móðir. Á sama tíma gerast óvæntir hlutir,“ sagði Holmes. Hlakkar til Ástralíufarar TOMKAT Katie Holmes og Tom Cruise ætla að búa í Ástralíu í þrjá mánuði í sumar. Upphitun fyrir AIM festival, alþjóðlegu tónlistarhátíðina á Akureyri sem hefst 29. maí, fór fram á uppstigningardag með hljómsveitakeppninni Besti byrj- andinn. Fimm hljómsveitir tóku þátt og bar Buxnaskjónar sigur úr býtum. Hún mun því hita upp á sjálfri hátíðinni fyrir Stórsveit Akureyrar á tónleikum á Græna hattinum 30. maí. Dómarar í keppninni voru útvarpsmaðurinn Ólafur Páll Gunnarsson, Baldvin Esra Einarsson hjá Kimi Records og Margrét Buhl myndlistarkona. Á meðal þeirra sem koma fram á AIM-festival í ár eru Hjálmar, Retro Stefson, Stórsveit Akureyr- ar, Stórsveit Reykjavíkur ásamt Bob Mintzer, Reykjavík!, Sudd- en Weather Change og Ný dönsk. Hægt er að skoða dagskrána nánar á síðunni Aimfestival.is. Buxnaskjónar vann BUXNASKJÓNAR Buxnaskjónar vann hljómsveitakeppnina Besti byrjandinn sem fór fram á Akureyri. Leikarinn Christian Bale reyndi að fá Arnold Schwarzenegger til að leika í nýjustu mynd sinni, Terminator Salvation, fjórðu myndinni í Terminator-seríunni. Þessi nýja mynd er sú fyrsta í Terminator-seríunni þar sem Arnold er ekki á meðal leikara. Undanfarin ár hefur hann verið upptekinn sem ríkisstjóri Kali- forníu og látið leiklistina sitja á hakanum. „Ég held að hann hafi öðrum, mikilvægari hnöppum að hneppa,“ sagði Bale. „Ég fór til hans áður en tökur hófust og sagði honum hversu mikilvægt það væri að heiðra það sem hann hefur sett af stað. Hann er mjög jákvæður náungi en hann vildi að íbúar Kaliforníu vissu að hann tæki starf sitt sem ríkisstjóra mjög alvarlega.“ Vildi fá Arn- old í hlutverk CHRISTIAN BALE Bale reyndi að fá Arnold Schwarz- enegger til að leika í fjórðu Terminator- myndinni. Nýja Eminem platan byrjar á sam- tali Eminem við Dr. West. Hann er að útskrifast úr meðferðinni: „…ég hef bara eina spurningu enn. Hvað geri ég ef ég er staddur innan um fólk sem er að drekka?“ spyr Emin- em og Dr. West svarar: „Færð þér drykk maður, slakar aðeins á …“ Byrjunin er í stíl við ótal bófarapp- plötur, en núna er baráttan ekki við einhverjar klíkur heldur fíkn- ina. Relapse er mjög lituð af þess- ari baráttu. Orðið relapse er notað um það að falla aftur eftir áfeng- ismeðferð (Eminem er líka fall- inn í plötubindindinu) og hönnun umslagsins tekur mið af pillubox- um og læknisvottorðum, en Emin- em var djúpt sokkinn í pillurnar líkt og mamma hans eins og við fáum að heyra í laginu My Mom. „I am my Mom,“ segir hann … Það eru fimm ár síðan síðasta Eminem-plata kom út og maður var þá alveg búinn að fá nóg af honum. Ég átti ekkert sérstak- lega von á því að ég myndi nenna að hlusta á þessa plötu, en hún er betri en ég bjóst við. Þó að fíkn- in sé rauði þráðurinn þá er stíll- inn kunnuglegur. Eminem kann greinilega enn að búa til rímur og hann lætur eitt og annað flakka. Tónlistarlega er margt gott hér, enda sér Dr. Dre um taktana í flestum lögunum. Þeir eru margir frekar einfaldir og fyrst og fremst gerðir til að styðja við textana. Það eina sem hægt er að finna að plötunni er að hún er of löng. Hún heldur manni ekki alveg í þessar 76 mínútur. Trausti Júlíusson Enn líf í Eminem TÓNLIST Relapse Eminem ★★★ Eminem kominn á beinu brautina. Relapse sýnir að hann hefur enn eitthvað að segja og taktarnir hjá Dr. Dre klikka ekki.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.