Fréttablaðið - 23.05.2009, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 23.05.2009, Blaðsíða 72
44 23. maí 2009 LAUGARDAGUR sport@frettabladid.is FÓTBOLTI Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins hefur fengið góð viðbrögð hjá notendum Vísis í sumar líkt og í fyrra. Nú geta viðskiptavinir Voda- fone fengið Boltavaktina í símann hjá sér og það að kostnaðarlausu fram að mánaðamótum. Eftir það kostar þjónustan 99 kr. á viku. Símnotendur geta þar með fengið upplýsingar um byrjunar- lið, innáskiptingar, markaskorara og stoðsendingar að ógleymdri sjálfri textalýsingunni. Um 200 mismunandi tegundir símtækja styðja þjónustuna sem veitt er gegnum vefsíðuna Voda- fone live. Allar íþróttafréttir Vísis eru einnig aðgengilegar í Vodafone live án endurgjalds. Boltavaktin: Fáðu Boltavakt- ina í símann FÓTBOLTI Það var lengi vel hleg- ið að þeim sem datt í hug að setja peninga í Stoke-ævintýrið á sínum tíma. Sögðu menn að gáfulegra hefði verið að fjárfesta í íslensku bönkunum. Þeir sem það sögðu hlæja ekki mikið í dag að mati séra Guðna Más Harðarsonar, prests í Lindakirkju, enda er Stoke-ævin- týrið loksins að gefa peninga til baka á meðan bankarnir fóru í hrun. „Daginn sem hinum almenna Íslendingi býðst að kaupa í Stoke fer ég af stað með alla ferming- arpeningana mína og kaupi alveg um leið. Svo um kvöldið fer ég í mat til tengdaföður míns heitins. Hann var þá að vinna sem banka- stjóri og hafði eðlilega mikið vit á fjármálum. Þegar við sitjum og borðum kemur í fréttunum að Íslending- um hafi boðist að kaupa hlutabréf í Stoke í dag. Þá glymur í tengdaföð- ur mínum að það sé allt eins hægt að henda peningum út um glugg- ann eins og að kaupa í Stoke. Sagði konunni ekki frá kaupunum í nokkur ár „Mér svelgdist á við matarborð- ið því um leið spyr konan mín að því hvort ég hafi nokkuð verið að kaupa í Stoke. Ég neitaði því að sjálfsögðu og þorði ekki að segja henni frá því næstu þrjú til fjög- ur árin. Enda var mikið gert grín að því í brúðkaupinu okkar,“ segir Guðni Már og hlær dátt þegar hann rifjar upp þennan eft- irminnilega dag en þá var Guðni sjálf- ur nítján ára gam- all. Ástæð- an fyrir þv í a ð Guðni Már ákvað að fjárfesta í Stoke var sú sama og hjá fjöl- mörgum Íslending- um sem tóku þátt í ævintýrinu – ofur- trú á þjálfaranum Guðjóni Þórðar- syni. „Guðjón var ástæðan fyrir því að ég keypti, ekki spurning. Ég hafði ofurtrú á manninum og hæfileikum hans sem þjálfara. Ég hef mátt þola ýmis skot yfir þessari fjárfestingu í mörg ár frá einhverjum Kaupþingsstrák- um og svona. Þeir eru náttúrlega ekki mikið að hlæja núna enda eru þeir ekki að fá neitt til baka af sínum fjárfestingum.“ Íslendingarnir sem keyptu félagið gáfust upp á endanum þar sem ekki fengust neinir aðilar til þess að setja frekari pen- inga í verkefnið. Þegar Stoke Holding seldi félagið var sett í samningana að ef liðinu tækist að kom- ast upp um deild á næstu fimm árum myndu fjárfest- ar fá til baka 25 prósent af því sem þeir höfðu fjárfest fyrir. Ö n nu r t íu prósent áttu svo einnig að renna í vasa íslensku fjár- festanna ef lið- inu tækist að halda sér uppi í efstu deild. Þetta tvennt hefur gengið eftir. „Við áttum að fá 25 prósent í fyrra en þeir peningar hafa ekki enn skilað sér. Ég vænti þess að báðar þessar greiðslur skili sér þá bara í einu lagi núna. Mér skilst að það hafi um 200-300 Íslendingar fjárfest í Stoke á sínum tíma og því ættu að koma 100-150 milljónir til Íslending- anna og það í erlendum gjald- eyri,“ segir Guðni Már en eins og má lesa í viðtalinu við Gunnar Þór Gíslason hér til hægri verður einhver bið á því að fjárfestarnir sjái þessa peninga. Búinn að afskrifa peningana úr heimilisbókhaldinu Guðni Már fylgist enn vel með Stoke og styður félagið með ráðum og dáð. Hann segir að raunverulegi sigurvegarinn í þessu ævintýri sé Peter Coates, maðurinn sem seldi Íslendingunum félagið og keypti það aftur til baka. „Coates seldi Íslendingunum félagið á fínan pening. Þeir settu haug af peningum í Stoke, styrktu leikmannahópinn, komu því upp um deild og þurftu svo að selja Coates félagið aftur fyrir minni pening en Íslendingarnir keyptu það á sínum tíma,“ segir Guðni. Presturinn og íþróttaáhugamað- urinn Guðni er eins og áður segir prestur í Lindakirkju. Sú kirkja er ekki fullkláruð og Guðni hyggst styrkja kirkjuna sína með Stoke- peningunum. „Ég var búinn að afskrifa þessa peninga úr heimilisbókhaldinu og átti aldrei von á þeim. Ef þeir koma, sem ég vona að þeir geri, þá fara þeir í söfnun sem kirkjan er með enda þarf að klára bygging- una,“ segir Guðni Már. Ef aðrir Stoke-hluthafar hafa áhuga á að gera slíkt hið sama má nálgast upplýsingar um hvern- ig best sé að styrkja kirkjuna á heimasíðu kirkjunnar, www.linda- kirkja.is. Guðni Már segir að það hafi verið skemmtilegt að taka þátt í þessu ævintýri og sér alls ekki eftir því að hafa spilað með á sínum tíma. „Ég sé ekkert eftir þessu og þetta hefur bara verið skemmti- legt. Ég skal samt fúslega viður- kenna að aldrei átti ég von á því að ofurinnköst Rory Delap myndu enda í kirkjusjóði Lindakirkju. Það er lyginni líkast,“ sagði Guðni Már Harðarson prestur, kátur að lokum. henry@frettabladid.is Grunaði aldrei að innköst Delap myndu skila kirkjunni peningum Séra Guðni Már Harðarson, prestur í Lindakirkju, er einn af þeim Íslendingum sem fjárfestu í Stoke City á sínum tíma. Sú fjárfesting er loksins að skila einhverju til baka en fjárfestar fá 35 prósent fjárins til baka vegna góðs gengis liðsins síðustu tvö ár. Guðni Már ætlar að styrkja kirkjuna sína með Stoke-peningunum. TRÚÐU Á GUÐJÓN Guðni Már fjárfesti í Stoke þar sem hann hafði ofurtrú á Guðjóni Þórðarsyni eins og fleiri Íslendingar. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES STOKE-PRESTUR Séra Guðni Már er enn harður stuðningsmaður Stoke. Hann er hér í Stoke-treyjunni í vinnunni og sést setja pen- inga í söfnunarbaukinn. Stoke-peningarnir sem hann fær vonandi næsta haust munu einnig fara í þennan bauk. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Milan Stefán Jankovic hætti sem aðalþjálfari Grindavíkur í vikunni og í samtali við Frétta- blaðið á miðvikudaginn sagðist hann ekki lengur geta starfað við þær aðstæður sem eru í kringum dómgæslu hér á landi. Hann hætti eftir að hans lið, Grindavík, tapaði fyrir Fjölni á mánudagskvöldið en hann var afar ósáttur við dómgæslu leiksins. Hann fékk tveggja leikja bann fyrir framgöngu sína. „Dómarinn á líka að fá sína refsingu,“ sagði Jankovic. „Það gerist í öllum öðrum löndum heimsins að dómurum sé refsað fyrir slæma frammistöðu.“ Gylfi segir að vissulega hafi verið rætt um að „refsa“ dómurum. En hann segir ástæðuna fyrir því að það hafi ekki verið gert einfalda. „Við erum ekki með það stóran hóp dómara að við ráðum við það,“ sagði Gylfi í samtali við Fréttablaðið. „Við höfum samt fullan skilning á þessu sjónarmiði án þess að ég ætli að fjalla um þennan eina leik. En staðan er þannig í dag að við eigum ekki nógu marga toppdómara til að ráða við slíkar aðgerðir. En vonandi stendur það til bóta.“ Hann segir að þessi umræða sé ekki að koma upp í fyrsta skipti nú. „Þetta mál kemur alltaf upp í hvert skipti sem mistök verða. Hérna er verið að tala um víti sem átti ekki að vera en það sem mér finnst vanta í umræðuna er að leikmaðurinn henti sér niður. Hver er því hinn raunverulegi skúrkur, ef tilfellið er að ekki hafi verið brotið á honum? Dómarinn mun samkvæmt því hafa fallið í gildru leikmannsins.“ Hann gefur annars lítið fyrir þær skýringar sem Jankovic hefur gefið fyrir uppsögn sinni. „Ég held að Janko hafi beðist lausnar vegna þess að Grindavík tapaði fyrstu þremur leikjunum sínum í mótinu. En hann ákvað að vera áfram hjá félaginu og sýnir það vel hvernig mann hann hefur að geyma – að hann heldur áfram að starfa hjá Grindavík,“ sagði Gylfi en Jankovic mun starfa sem aðstoðarþjálfari Luka Kostic sem var ráðinn í hans stað. „En yfirleitt tel ég að í langflest- um tilfellum tapi lið fótboltaleikj- um vegna þess að þau eru lélegri en andstæðingurinn.“ GYLFI ÞÓR ORRASON: SKILUR SJÓNARMIÐ MILAN STEFÁNS JANKOVIC Hefur komið til tals að „refsa“ dómurum > Glæsilegur sigur á Finnum Norðurlandamót yngri landsliða er í fullum gangi í Sví- þjóð þessa dagana og voru öll lið Íslands að spila í gær. U-18 lið kvenna tapaði fyrir Noregi og Danmörku og hefur lokið keppni. U-16 lið kvenna tapaði fyrir Svíum, rétt eins og U-16 lið karla. Strákarnir eiga þó enn möguleika á að komast í úrslita- leikinn í sínum flokki en þarf að vinna Dani með fimmtán stiga mun í dag. U-18 lið karla vann glæsilegan sigur á Finnum í dag, 70-49. Liðið hefur unnið tvo af fyrstu þremur leikjum sínum í mótinu og kemst í úrslitaleikinn með sigri á Noregi á morgun. Pepsi-deild kvenna Stjarnan - ÍR 3-0 Keflavík - Breiðablik 1-6 Valur - GRV 6-0 STAÐAN Stjarnan 4 4 0 0 11-1 12 Valur 4 3 0 1 21-5 9 Fylkir 3 3 0 0 14-2 9 Breiðablik 4 3 0 1 15-5 9 Þór/KA 3 2 0 1 15-6 6 KR 3 1 0 2 7-4 3 Afture./Fjöln. 3 1 0 2 4-9 3 GRV 4 1 0 3 3-14 3 Keflavík 4 0 0 4 2-21 0 ÍR 4 0 0 4 2-27 0 1. deild karla Þór - ÍR 1-2 Afturelding - Haukar 1-1 HK - Víkingur, Ólafsvík 4-1 Selfoss - Víkingur, Reykjavík 1-0 STAÐAN HK 3 2 1 0 8-3 7 Selfoss 3 2 1 0 7-3 7 Haukar 3 2 1 0 6-2 7 Víkingur, Ó. 3 2 0 1 6-6 6 KA 3 1 2 0 3-1 5 Afturelding 3 1 1 1 3-4 4 Þór 3 1 0 2 4-4 3 Fjarðabyggð 3 1 0 2 5-6 3 ÍR 3 1 0 2 5-9 3 Leiknir 3 0 2 1 1-3 2 Víkingur, R. 3 0 1 2 2-4 1 ÍA 3 0 1 2 3-8 1 ÚRSLIT BARÁTTA HK varð í gær fyrsta liðið til að vinna Víking frá Ólafsvík í 1. deild karla í gær. Hér er hart tekist á því í leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.