Fréttablaðið - 23.05.2009, Blaðsíða 78
50 23. maí 2009 LAUGARDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2. eyja í asíu, 6. tveir eins, 8. stroff, 9.
spíra, 11. átt, 12. gefið nafn, 14. rými,
16. hróp, 17. segi upp, 18. niður, 20.
drykkur, 21. ögn.
LÓÐRÉTT
1. himna, 3. frá, 4. foksandur, 5. sóða,
7. geðsjúkrahús, 10. máttur, 13. lík,
15. klettur, 16. rjúka, 19. tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. java, 6. kk, 8. fit, 9. ála,
11. na, 12. nefnd, 14. pláss, 16. óp,
17. rek, 18. suð, 20. te, 21. arða.
LÓÐRÉTT: 1. skán, 3. af, 4. vindset,
5. ata, 7. kleppur, 10. afl, 13. nár, 15.
sker, 16. ósa, 19. ðð.
„Ég er ekkert sérstaklega skipu-
lögð og á ekki einu sinni dagbók,“
segir María Lind Sigurðardóttir,
dúx Kvennaskólans í Reykjavík.
María útskrifaðist í gær af nátt-
úrufræðibraut, líffræðilínu, með
9,61 í einkunn á stúdentsprófi en
frá því hún byrjaði í skólanum
hefur hún árlega verið með hæstu
einkunn og var með tíu á öllum
lokaprófum þessa árs. Hún situr
ekki auðum höndum utan skóla,
því frá barnsaldri hefur hún æft
körfubolta með Haukum sem urðu
nýlega Íslandsmeistarar og spilar
á píanó í Tónlistarskóla Hafnar-
fjarðar.
Spurð hvernig hún komi öllu
fyrir í dagskránni segist hún
aldrei hafa vanist öðru en að hafa
mikið að gera. „Ég byrjaði svo
snemma í körfunni og píanónám-
inu að þetta komst upp í vana. Ég
hef aldrei pælt í því hvernig væri
að hætta. Þetta getur verið mjög
erfitt á köflum, en maður kemst
alltaf einhvern veginn í gegnum
það. Ef það eru erfiðar vikur fram
undan reyni ég að búa til plan og
þegar ég sé að ég hef tíma fyrir
þetta allt róast ég,“ segir María
brosandi.
Maríu hefur alla tíð gengið vel
í skóla, en segist aldrei hafa verið
langt á undan samnemendum
sínum og jafnöldrum. „Ég man
ekki hvernig þetta var frá fyrsta
upp í sjöunda bekk, en mér gekk
mjög vel í unglingadeild. Ég var
samt aldrei eins og sumir sem voru
langt á undan og kláruðu stærð-
fræðibækurnar á undan öllum
hinum. Ég hef alltaf tekið þetta
á mínum tíma og reynt að vanda
mig frekar en að drífa mig,“ segir
María og telur að skólagangan,
píanónámið og körfuboltinn spili
vel saman. „Maður getur tekið eitt-
hvað úr öllu og notað það, til dæmis
agann úr tónlistinni og keppnis-
skapið úr íþróttunum, þegar maður
vill standa sig vel í skólanum og
gera betur en síðast.“
Aðspurð segist María ekki vera
í föstu sambandi en gefa sér tíma
til að stunda félagslífið og rækta
vinina. „Maður reynir að mæta
á böll og svo eru vinirnir margir
í körfuboltanum svo maður hittir
þá daglega, en stundum koma auð-
vitað tímabil þegar það er mikið að
gera og maður hefur engan tíma,“
útskýrir María og segist hlakka
til sumarsins. „Ég er að fara að
vinna í sumarbúðum fyrir fatl-
aða í Reykjadal í Mosfellssveit. Ég
byrjaði sumarið eftir tíunda bekk
í afleysingum í eldhúsinu og hef
ekkert farið síðan. Ég var í eldhús-
inu í tvö sumur og hef verið fóstra
núna. Þetta er það skemmtilegasta
sem ég geri og ég hlakka alltaf
til,“ segir hún. „Ég er ekki búin að
ákveða hvað ég geri næsta vetur,
en ég fer líklega í Háskóla Íslands
í einhverjar raungreinar. Ég á bara
eftir að ákveða hvað ég skrái mig
í, en ég ætla að leggjast yfir þetta
um helgina.“ alma@frettabladid.is
MARÍA LIND SIGURÐARDÓTTIR: DÚXAÐI Í KVENNASKÓLANUM Í REYKJAVÍK
Fékk 10 í öllum prófunum
FRÁBÆR ÁRANGUR María Lind er ekki bara frábær námsmaður heldur er hún
Íslandsmeistari í körfubolta með Haukum og er á 6. stigi í píanónámi við Tónlistar-
skóla Hafnafjarðar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
PERSÓNAN
Hrafna Hanna Elísa Herberts-
dóttir
Aldur: 21 árs.
Starf: Vinnur í Löngubúð sem er
kaffihús á Djúpavogi.
Foreldrar: Jónína Björk Ingvars-
dóttir og Herbert Jón Hjörleifsson,
skógræktarbændur.
Búseta: Teigarhorn í Berufirði.
Stjörnumerki: Meyja.
Hrafna Hanna er Idolstjarna ársins 2009.
Hún bar sigurorð af Önnu Hlín í úrslitun-
um og hlaut tvær milljónir í verðlaun.
Nýtt spurningaspil, Spurt að leiks-
lokum, kemur út 5. júní. Höfund-
ar eru félagarnir Steinþór Stein-
grímsson og Ölvir Gíslason, sem
misstu báðir vinnuna í haust. Ætla
þeir að eyða næstu tveimur vikum
í að raða spilinu sjálfir ofan í
kassa. „Okkur datt í hug að dútla
við þetta upp úr áramótum. Svo
ákváðum við að láta slag standa
fyrir tveimur mánuðum og klára
þetta,“ segir Steinþór.
Spurt að leikslokum er ekki
borðspil og er án tenings og því
er hægt að spila það hvar sem er,
meðal annars í bílnum eða útileg-
unni. Í því eru 1.620 spurningar
sem er skipt í sex flokka.
Steinþór og Ölvir eru síður en
svo óreyndir úr spurningabrans-
anum því þeir hafa samið spurn-
ingar fyrir spurningakeppnina á
Grand Rokk auk þess sem þeir
hafa hist í heimahúsi ásamt fleiri
vinum og haldið spurningakvöld
undanfarin ár. Þeir skemmtu
sér vel við gerð nýja spilsins.
„Við skemmtum okkur konung-
lega sjálfir og vonum að fólk sem
spili það skemmti sér jafn vel. Ef
það gerir það verður þetta besta
spurningaspil sem hefur komið
út,“ segir Steinþór og sparar ekki
stóru orðin. Spurt er um marga
kunna Íslendinga í spilinu og
ætla þeir félagar að bjóða þeim
öllum í útgáfupartíið sem verður
haldið á næstunni. Þar má nefna
Jóhönnu Sigurðardóttur, Hann-
es Smárason, Júlíus Brjánsson,
Júlla í Draumnum, Olgu Fær-
seth og Halla, bróður Ladda.
„Þetta verður skemmtilegt partí.
Þetta eru mörg hundruð manns
sem við þurfum að bjóða en við
gerum kannski ekki ráð fyrir að
allir mæti.“
Spilið verður til sölu í verslunum
og á heimasíðunni Spurtadleiks-
lokum.is þar sem það kostar 2.990
krónur á sérstöku kynningarverði.
Steinþór segir þá félaga alls ekki
sjá eftir að hafa nýtt atvinnuleys-
ið á þennan skapandi hátt. „Við
sjáum ekki eftir því, nema þetta
geri okkur gjaldþrota. Þá verð-
um við bara gjaldþrota með bros
á vör.“ - fb
Spurningaspil í atvinnuleysi
SPURNINGASÉNÍ Steinþór Steingrímsson
(til hægri) og Ölvir Gíslason, höfundar
spurningaspilsins Spurt að leikslokum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Ég veit ekki af hverju fólk er að
velta þessu fyrir sér, ég hef sagst
vera bindindismanneskja og hef
enga ástæðu til að ljúga um það,
ég skil ekki hvers vegna fólk er að
reyna að hanka mig á því,“ segir
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir. Eins
og gefur að skilja er Jóhanna Guð-
rún nú í kastljósi fjölmiðlanna eftir
frækilega frammistöðu í Moskvu.
Hún má sig nú varla hreyfa án þess
að næsti maður veiti því athygli.
Fréttablaðinu bárust þannig
nokkrar ábendingar um mynd sem
er að finna á Facebook-síðu förð-
unarfræðingsins Elínar Reynis-
dóttur. Þar stendur Jóhanna með
glas í hendi og rauðleitur vökvi
þess minnir eilítið á rauðvín. „Nei,
þetta er orkudrykkur, rússnesk-
ur, og heitir Adrenalín, við vorum
tvær bindindismanneskjur í Eur-
ovision-hópnum og sötruðum á
þessu þegar aðrir voru með áfengi
um hönd,“ segir Jóhanna.
Söngkonan hefur annars í nægu
að snúast þessa dagana, hefur
verið að syngja og mæta í viðtöl
hjá nánast allri íslensku pressunni
eins og hún leggur sig. Á borði
hennar er síðan aragrúi af tilboð-
um frá hinum og þessum stöðum.
Eitt af þeim mest spennandi eru
tónleikar í Tyrklandi. „Það yrði
mjög gaman að koma þangað, tyrk-
neska söngkonan yrði þarna líka,“
segir Jóhanna en bæði Danir og
Svíar hafa óskað eftir því að nýj-
asta þjóðareignin heiðri þá með
nærveru sinni. - fgg
Ekkert vín hjá Jóhönnu Guðrúnu
Ómar R. Valdimarsson
PR-maður og laganemi
hefur í nægu að snúast.
Hann skrifaði töluvert
fyrir Reuters-frétta-
veituna þegar
bankahrunið reið
yfir þjóðina og hér
voru haldnir blaða-
mannafundir nán-
ast daglega í Iðnó. Ómar hefur nú
söðlað um og verður Bloom berg-
fréttaveitunni innan handar við að
afla upplýsinga um hvað er hér á
seyði. Þetta þýðir hins vegar að
Ómar verður í samkeppni við föður
sinn, Ómar Valdimarsson, sem
starfar fyrir Reuters.
Ekki er óalgengt
að popptón-
listarmenn hafi
umboðs-
mann sér
til halds
og traust.
Hins vegar fer ekki mörgum sögum
af því að klassískir tónlistarmenn
séu með slíka aðila innan sinna
vébanda. Hjörleifur Valsson, einn
vinsælasti fiðluleikari landsins,
hefur þó neyðst til að ráða sér
umboðsmann enda hefur hann
vart undan að taka við tónleika-
bókunum og öðrum beiðnum. Sá
heppni ku heita Hallur Hallsson og
er liðsmaður Varsjárbandalagsins.
Og það er varla hægt að sleppa
við Eurovision alveg strax enda
svífur þjóðin enn um á bleiku
skýi. Samkvæmt áhorfstölum hafa
aldrei fleiri horft á úrslitakvöld-
ið og nú. Tæplega 122 milljónir
áhorfenda sátu límdar við skjáinn
þegar Jóhanna Guðrún söng sig
inn í hug og hjörtu Evrópu með Is
It True? Samkvæmt niðurstöðum
EBU, samtaka evrópskra sjónvarps-
stöðva, náðist að bæta
áhorfið um sautján
millj-
ónir
frá því
í Bel-
grad
í fyrra.
- fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
EKKERT VÍN Jóhanna er bind-
indismanneskja og skilur ekki,
af þeim sökum, af hverju fólk
er velta því fyrir sér hvort hún
drekki eða ekki.
Fatahönnuður
(Freelance fyrir þekkt
erlent fyrirtæki)
Kunnátta í peysuhönnun og
útsaum áriðandi einnig útfærsla
á línu. Spennandi tækifæri fyrir
skapandi fólk.
Umsóknir og upplýsingar sendist á
netfangið igunnarsd@gmail.com
fyrir 31. maí.
Handverkshúsið Bolholt 4, 105 Rvk. Sími: 555 1212 Vefverslun: handverkshusid.is
ÚTSALA
15-50%
afsláttur
Græjaðu þig í handverkið núna!
Verkfæri - hráefni - smávélar - bækur
25.-30. maí
Auglýsingasími
– Mest lesið