Fréttablaðið - 23.05.2009, Blaðsíða 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
í dag er laugardagurinn 23. maí
143. dagur ársins.
3.48 13.24 23.03
3.08 13.09 23.14
Það er ekkert að því að veiða sér til matar. Þannig má sameina
holla útiveru sjálfsbjargarviðleitni
sem manninum virðist vera eðlis-
læg. Að á menn renni drápsæði
þannig að allt kvikt, sem á vegi
þeirra verður, liggi örent á eftir
flokkast ekki undir það. Sömuleiðis
er ekki stigsmunur á því að kunna
að meta góð vín með góðum mat
og því að vera fullur allan sólar-
hringinn sjö daga vikunnar, heldur
eðlismunur. Hófsemi er dyggð, hún
þarf ekki að fela í sér neinn niður-
drepandi meinlætalifnað.
NÚ er skemmtiferðaskip í Reykja-
víkurhöfn. Því fylgir gjaldeyrir
sem okkur veitir ekki af. Auk þess
hefur fólk gott af því að skipta um
umhverfi og anda að sér fersku
sjávarlofti. Það bætir líka hvern
mann að skoða heiminn og kynn-
ast framandi þjóðum og menningu
þeirra. Það er ekkert rangt við að
eiga frí og nota það til ferðalaga.
AFTUR á móti runnu á mig tvær
grímur þegar það var upplýst að
nóttin um borð kostar hálfa millj-
ón. Ferðin hingað til lands kostar
því um fimm milljónir króna. Að
vísu er fæðið innifalið í verðinu, en
um borð eru nokkrir veitingastað-
ir. Á einum þeirra er trosið meira
að segja étið af Versace-diskum.
Einnig eru sundlaugar, verslan-
ir og spilavíti um borð. Þarna er
sem sé boðið upp á hvers konar
afþreyingu í formi sömu verslun-
ar, neyslu og þjónustu og farþeg-
arnir eiga að venjast heima fyrir.
Að vísu reikna ég með því að það
sé frítt í sund.
NÚ vil ég ekki hljóma eins og
krumpaður fýlupoki, en ég get ekki
að því gert að mér finnst dálítið
úrkynjað að borga margar milljón-
ir fyrir að fá að vera lokaður inni
í einhverri fljótandi Smáralind á
sterum dögum saman, jafnvel þótt
manni gefist kostur á að brjóta upp
búðarápið með því að kíkja á Gull-
foss og Geysi eins og einn eftir-
miðdag. Það er eitthvað rangt við
það, eitthvað sem storkar velsæm-
iskennd minni. Reyndar myndi ég
ganga svo langt að segja að það
sýni slíkan skort á lágmarksdyggð-
um í ætt við hófsemi, samhygð og
smekkvísi að jaðri við úrsögn úr
samfélagi siðaðra manna.
ÁRIÐ 1986 var tveim hvalbátum
sökkt í Reykjavíkurhöfn. Einhverj-
ir ofurhugar gerðu sér lítið fyrir
og losuðu botnlokur skipanna til
að vekja athygli á málstað sínum.
Hérmeð auglýsi ég eftir þeim sem
þar voru að verki. Ég er með verk-
efni handa þeim.
Fljótandi
Smáralind
á sterum
2009
19.990,-/settið
TULLERÖ borð, bekkur og 2 stólar. Gegnheill akasíu-
viður Borð: B71×L120, H68cm. Bekkur: B111×D65, H86cm.
Sætishæð 41cm. Stóll: B62×D65, H86cm. Sætishæð 41cm.
19.9 0,-/settið
16.990,-
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára.
Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009.
Hvar er þín auglýsing?
34%
74%