Fréttablaðið - 18.07.2009, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 18.07.2009, Blaðsíða 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Davíðs Þórs Jónssonar Þegar ég var yngri voru bensín-stöðvar staðir þar sem vegfar- endur námu staðar ef þá vantaði bensín. Þar var reyndar einnig boðið upp á ýmsa aðra þjónustu fyrir bílinn. Maður var ekki bara spurður hvort ætti að „fyll’ann“ heldur jafnvel líka hvort það ætti að athuga olíuna eða strjúka af framrúðunni. Þetta heyrir sög- unni til. Æ víðar eru komnar afgreiðslustöðvar þar sem maður verður sjálfur að veita sér alla þá þjónustu sem mann vanhagar um, væntanlega til að koma í veg fyrir hvimleið persónuleg samskipti við starfsfólk. Eina leiðin til að „fyll’ann“ er að vita fyrirfram upp á krónu hve mikið bensín í viðbót tankurinn rúmar. ÞETTA virðist þó ekki gert til að spara starfsfólk. Öðru nær. Flest- ar bensínstöðvar eru nefnilega orðnar einhver ofursjoppa, jafn- vel smákjörbúð með Smáratorgs- drauma. Þar er nú öll áherslan lögð á að bjóða svo fjölbreytt úrval af samlokum, gosdrykkjum, smá- réttum, grillmat og útilegudóti, auk þess sem þar eru sjaldnast færri en tvær alþjóðlegar skyndi- bitakeðjur með aðstöðu, að ekkert pláss er eftir fyrir frostlög eða vinnukonur. ÞÁ voru loftmælar líka einföld, sjálfsögð og auðskilin tæki og til á öllum bensínstöðvum. Þeir líktust penna sem smellt var á ventilinn. Þrýstingurinn ýtti þar til gerðum pinna út. Því lengra út sem pinninn fór, þeim mun meiri var þrýsting- urinn. Allt saman eins frumstætt, analóg og auðskilið og framast gat orðið. Nú hefur bansett fram- þróunin einnig náð inn á þetta svið. Horfin er sú vinalega spurn- ing: „Getiði lánað mér loftmæli?“ Enda er auðvitað óskiljanlegt hvað samloku- eða hamborgarasali ætti að gera við slíkt tæki. Á bensín- stöðvum þar sem eru mexíkósk- ir skyndibitastaðir er spurning- in kannski eðlilegri. Loftleiðslan kemur engum inni á staðnum við, er digítal og tölvuvædd. Maður slær inn æskilegan loftþrýsting og bíður eftir pípi, eftir að einhver góðhjartaður hefur útskýrt fyrir manni hvernig þetta virkar. VERST er þó að þegar maður lætur móðan mása af réttlátri vandlætingu eftir að hafa heim- sótt þá framtíðar-dystópíu sem íslenskar bensínstöðvar eru upp til hópa orðnar, þá góna börnin manns á mann eins og maður sé að missa vitið. Þau heyra ekki hvöss snjallyrði reiða, unga mannsins sem glymja í eyrum manns sjálfs, heldur bara tuð í geðillu gamal- menni sem ekki nær að fylgjast með. Svona læðist tíminn aftan að manni. Fyll’ann gremju 3.50 13.34 23.15 3.08 13.19 23.26 Í dag er laugardagurinn 18. júlí 2009, 199. dagur ársins. Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára. Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009. Hvar er þín auglýsing? 34% 74%
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.