Fréttablaðið - 18.07.2009, Blaðsíða 23
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Ég byrjaði að hlaupa árið 1992.
Fór aðeins til prufu en þetta hent-
aði mér svo vel að ég hef verið á
hlaupum síðan,“ segir Hallgerð-
ur Arnórsdóttir, eða Gerður, sem
tekur í dag þátt í Laugavegshlaup-
inu í fjórða sinn. Hlaupið, sem er
55 km langt, hefst í Landmanna-
laugum og lýkur í Húsadal í Þórs-
mörk.
Gerður hefur verið í hlaupahópn-
um ÍR-skokk frá árinu 1994 og
hefur hópurinn haldið vel saman og
tekið þátt í ýmsum hlaupum. „Við
fórum stutt fyrst og svo hefur þetta
verið að smálengjast,“ útskýrir
Gerður. Árið 1999 ákváðu svo sex-
tán úr skokkhópnum að taka þátt
í Laugavegshlaupinu. „Þá gerði ég
það í tilefni þess að ég yrði fimm-
tug á árinu,“ segir Gerður sem
hefur farið hlaupið tvisvar síðan.
„Svo fannst mér tilvalið að fara
síðasta Laugavegsmaraþonið á
árinu sem ég yrði sextug og loka
ferlinum þannig,“ segir hún glað-
lega.
Þegar Gerður tók þátt í hlaupinu
fyrst var aðeins til flokkur kvenna
38 ára og eldri sem hún var ekki
sátt við enda var til flokkur karla
fimmtíu ára og eldri. Korteri fyrir
upphaf hlaupsins var því búinn til
flokkur kvenna fimmtíu ára og
eldri sem Gerður keppti í ásamt
einni erlendri konu. Í þetta sinn
þurfti aftur að búa til nýjan flokk
fyrir Gerði, konur 60 ára og eldri,
þar sem hún verður eini keppand-
inn. Hún er þó ekkert að hreykja
sér af þessum afrekum. „Mér
finnst bara gaman að vera sextug
og geta gert þetta,“ segir hún.
En hvernig undirbýr hún sig
fyrir svona langt hlaup? „Ég
hleyp um þrisvar til fjórum sinn-
um í viku, hjóla og fer í nokkrar
fjallgöngur,“ svarar Gerður. Hún
vonast til að geta hlaupið leiðina
á undir átta tímum en besti tími
hennar er sjö og hálfur tími. Þess
má geta að metið í kvennaflokki er
5 klukkustundir og 31 mínúta.
En er einhver hluti leiðarinn-
ar erfiðari en aðrir? „Mér finnst
leiðin yfir sandana, áður en komið
er að Emstrum, erfiðasti hlutinn.
Leiðin er löng og það tekur alltaf
við nýr og nýr hóll,“ segir Gerður
kankvís. Hún segir þó fátt jafnast
á við að koma niður í fagurgrænan
Húsadalinn eftir langt og stremb-
ið hlaup.
Gerður ætlar að taka rútuna í
bæinn strax að hlaupi loknu og úti-
lokar ekki að halda upp á afrekið
á einhvern hátt. Það fari þó eftir
líðaninni.
Á sunnudaginn stefnir hún svo
aftur út úr bænum í bústað aust-
ur fyrir fjall þar sem hún ætlar að
slaka á og láta þreytuna líða úr sér
áður en hún heldur aftur af stað,
nú í fjögurra daga gönguferð um
Tröllaskaga. solveig@frettabladid.is
Bara glöð að geta þetta
Þrettánda Laugavegshlaupið er haldið í dag. Hallgerður Arnórsdóttir er ein af 342 keppendum og hleyp-
ur Laugaveginn nú í fjórða sinn. Hún er fyrsta og eina konan sem skráð er í flokk kvenna 60 ára og eldri.
ULL Í FAT er þjóðleg keppni sem haldin verður á
Hvanneyri í dag. Það er Ullarselið sem stendur fyrir
keppninni sem fara mun fram í kálfafjósi Halldórsfjóss.
Háð verður keppni í því að vinna ull í fat, frá hráefni til
fullunninnar vöru. Keppnin hefst klukkan 13.30.
Hallgerður Arnórsdótt-
ir hleypur Laugaveg-
inn í dag ásamt 341
öðrum hlaupara.
Hún er fyrsta og eina
konan í flokki kvenna
60 ára og eldri.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
the
Elding Reykjavík Whale Watching
Tel: (+354) 555 3565
Online booking: www.elding.is
Komdu með hundinn í Viðey
Hundadagur 19. júlí
Kynningar frá Líflandi og Dýra-
ríkinu frá 12:00-17:00
Hundaþjálfari verður á staðnum
á milli 13:00 og 16:00 og svarar
spurningum og gefur góð ráð.
ATH! Allir hundar verða að vera
í bandi og eru á ábyrgð eiganda.
Dúnmjúkar
BRÚÐARGJAFIR
Laugavegi 176
Sími 533 2220
www.lindesign.is
Við hjá Lín Design erum í essinu þegar kemur
að brúðkaupsgjöfum. Vörulína okkar er hönnuð
á Íslandi þar sem íslensk náttúra spilar stórt
hlutverk. Allt okkar efni er sérvalið svo úr verð-
ur vara sem gefur mýkt og hlýju.
Brúðhjón sem eru með gjafalista hjá
Lín Design fá gjöf frá versluninni
ef keypt er af listanum.
Hlý og persónuleg þjónusta
Auglýsingasími
– Mest lesið