Fréttablaðið - 18.07.2009, Blaðsíða 54
30 18. júlí 2009 LAUGARDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
PERSÓNAN
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8.
1 33.
2 Ísland vann, 2-0.
3 Gunnar Björn Guðmundsson.
LÁRÉTT
2. ryk, 6. samþykki, 8. poka, 9. berg-
mála, 11. eldsneyti, 12. peningar, 14.
mjóróma, 16. kusk, 17. röst, 18. pota,
20. tvíhljóði, 21. málmur.
LÓÐRÉTT
1. gjóta, 3. kringum, 4. samtal, 5.
nögl, 7. heimakoma, 10. struns, 13.
örn, 15. viðskipti, 16. umrót, 19. í röð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. kusk, 6. já, 8. mal, 9.
óma, 11. mó, 12. aurar, 14. skræk, 16.
ló, 17. iða, 18. ota, 20. au, 21. stál.
LÓÐRÉTT: 1. gjóa, 3. um, 4. sam-
ræða, 5. kló, 7. ámusótt, 10. ark, 13.
ari, 15. kaup, 16. los, 19. aá.
„Þetta leggst frábærlega í mig.
Innipúkinn hefur alltaf verið
skemmtileg hátíð og góð stemning
í kringum þetta. Dagskráin sem
við erum búin að setja saman í ár
er gríðarlega öflug og spennandi,
þannig að ég hlakka mikið til,“
segir Eldar Ástþórsson, einn skipu-
leggjenda Innipúkans í ár. Hátíðin
er sem fyrr haldin um verslunar-
mannahelgina.
Af dagskránni ber helst að
nefna Agent Fresco, Benna Hemm
Hemm, Borko, Diktu, FM Belfast,
Fallega menn, Gylfa Ægisson og
Jóhönnu Finnborgu, eða GÆJÓ, K-
Trio, Mammút, Morðingjana, Ólöfu
Arnalds, Seabear, Sudden Weather
Change og Sykur.
Gylfi Ægisson spilar í fyrsta sinn
á Innipúkanum og verður með tón-
leikana á laugardeginum. Þá eru
þau GÆJÓ í Galtarlæk á sunnu-
deginum. „Mér fannst þetta snið-
ugt að prófa þetta. Það er fínt að
fá eitt gamalmenni og unga konu,
með létt og fjörugt prógramm,“
segir Gylfi. Hann lofar því að taka
öll sín bestu lög. Syngur yngri kyn-
slóðin með? „Mér sýnist það að
hún kunni allavega Minningu um
mann. Ef þau kunna ekki hitt þá
syngur maður bara Minningu um
mann allt kvöldið.“
Hátíðin í ár er haldin á Sódómu
og Batteríinu og stendur í þrjá
daga, en ekki tvo líkt og síðustu
ár. Þá er miðaverð aðeins 2.900
krónur. „Með því að lengja hátíð-
ina um einn dag náum við að koma
að fleiri hljómsveitum og búa til
stærri pakka í kringum þetta,
meira fjör og meiri stemmingu.
Þannig að um leið að við erum
að lækka miðaverðið erum við að
stækka dagskrána, sem er ánægju-
leg þróun,“ segir Eldar.
Síðdegis verður svo grillað í
portinu við Batteríið við undirspil
trúbadora, „pop-quiz“ haldin, tón-
listarmarkaður og auðvitað flæðir
allt í kokteilum á „Cocktail-Zeit“.
Miðasala hefst á mánudag á
midi.is og í Skífunni. - kbs
Gylfi Ægis aðalnúmerið á Innipúkanum
„Þessi bareigandi rambaði inn á Hverfisbarinn fyrir
slysni með vinum sínum og sat þarna meðan við
vorum að spila,“ segir Sigurjón Brink tónlistarmaður,
betur þekktur sem Sjonni. Hann hefur komið fram á
Hverfisbarnum um árabil ásamt Gunnari Ólasyni úr
Skítamóral, en þeim félögum hefur nú verið boðið til
Bandaríkjanna að spila.
„Eftir giggið kom hann og talaði við okkur
og lýsti yfir áhuga sínum á að fá okkur út
að spila á hóteli, veitingastað og risastór-
um írskum bar sem hann á við Lake
Michigan. Það leið svo eflaust um
hálft ár þangað til ég fékk skila-
boð frá honum í gegnum MySpace,
en hann var þá búinn að vera að
reyna að senda mér tölvupóst sem
komst aldrei til skila út af ein-
hverri síu í netvörninni hjá mér.
Við komumst þá í samband og erum
búnir að spjalla heilmikið saman og
reyna að finna dagsetningu,“ segir Sjonni.
Aðspurður segir hann tilboðið mjög gott í ljósi
núverandi gengis Bandaríkjadollars gagnvart
íslensku krónunni. „Þetta er engin smá spila-
mennska því þarna er spilað fimm daga vikunn-
ar og aðeins frí á mánudögum og þriðjudögum,
en þetta er mjög girnilegt tilboð og eflaust
aldrei eins hagstætt að gera þetta eins og
núna. Við Gunni erum báðir mikið bók-
aðir í sumar svo við ákváðum að slá
þessu á frest, en við komum pottþétt til
með að fara þegar við sjáum fram á að
hafa tíma og dvelja í mánuð.“ - ag
MÁNUÐUR Í SPILAMENNSKU
Sjonni og Gunni Óla ætla að taka boði
um að spila á hóteli, veitingastað og
írskum bar við Lake Michigan í heilan
mánuð um leið og tími gefst til.
FREMSTUR MEÐAL JAFNINGJA Gylfi Ægis er tilbúinn
að spila Minningu um mann alla laugardagsnótt-
ina ef fólk þekkir ekkert annað.
Boðið að spila við Lake Michigan
„Þetta er stórmynd og mjög stórt
verkefni fyrir okkur,“ segir Krist-
inn Þórðarson hjá framleiðslu-
fyrirtækinu Saga Film um nýj-
ustu mynd rússneska leikstjórans
Aleksandr Sokurov. Myndin verður
tekin að hluta til á Íslandi og með
íslenskum leikurum. Sokurov sótti
Ísland heim í maí og voru haldnar
stórar áheyrnarprufur í samstarfi
við Eskimó.
„Hann var mjög spenntur að
hitta íslenska leikara og hitti fjöl-
marga. Við erum langt komin með
samningaviðræður við nokkra
unga leikara, alveg frábæra. Við
vorum upprunalega bara að leita
að fólki í minni hlutverk en hann
vildi samt hitta nokkra stærri leik-
ara, sem ég kynnti hann svo fyrir,“
segir Andrea Brabin hjá Eskimó.
Sigurður Skúlason sló í gegn í
prufunum og fékk í kjölfarið hlut-
verk í myndinni. Hann fór til Rúss-
lands fyrir tveimur vikum í bún-
ingamátun, hár og förðun. „Hann
mun svo halda til þeirra landa sem
tekið verður upp í fyrir utan Ísland
og leika í nokkra daga. Þannig að
þetta er nokkuð stórt hlutverk.
Það kom skemmtilega á óvart,“
segir Andrea. Ekki náðist í Sigurð
í gær.
Ungu leikararnir eru fimm
talsins og koma úr Listaháskóla
Íslands. Þau verða í minni hlut-
verkum án texta, en hafa þó verið
beðin um að senda mál af sér fyrir
búninga. Þá er ekki loku fyrir það
skotið að fleiri bætist í hóp-
inn.
Mikil leynd er yfir
myndinni. „Það liggur
mikill trúnaður yfir
handritinu. Sigurður
er búinn að sjá það
en bara af því að
æfingar standa
yfir. Það má
enginn tjá sig
um það að
svo stöddu.
En þetta er
skemmtilegt
verkefni og stórir aðilar sem koma
að þessu,“ segir Andrea.
Endir myndarinnar er tekinn
upp á Íslandi en tökur hér hefj-
ast seinni part-
inn í október
og standa í
rúma viku.
Svokallað B-
Unit kemur
hingað í
lok mán-
aðar til að
mynda og
ferðast það vítt og breitt um land-
ið og er tekið meðal annars úr
þyrlum. Þær tökur verða svo meðal
annars notaðar við tölvuvinnslu.
Aleksandr Sokurov hefur leik-
stýrt 47 verkum auk þess að skrifa
handrit og hefur hann unnið til
verðlauna á öllum helstu kvik-
myndahátíðum heims, líkt og í
Toronto, Montréal og Cannes.
Hann hefur lengi verið leiðandi í
rússneskri kvikmyndagerð og hafa
myndir eins og Russian Ark, Fath-
er and Son, Aleksandra, The Sun,
Mother and Son og fleiri vakið
verðskuldaða athygli um allan
heim.
kbs@frettabladid.is
SIGURÐUR SKÚLASON: FÉKK HLUTVERK Í MYND ALEKSANDRS SUKAROV
Rússnesk stórmynd á Íslandi
SLÓ Í GEGN Sigurður fékk óvænt hlutverk í kvikmyndinni við prufur í maí.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Guðmundur Felixson
Aldur: 19 ára.
Starf: Vinn hjá
Orkuveitunni í
sumar og svo
nemandi í MR.
Stjörnumerki:
Hrútur.
Búseta: Bý í
Vesturbænum
hjá foreldrum
mínum.
Fjölskylda: Þrír pabbar, ein
mamma, ein hálfsystir og þrjár
stjúpsystur.
Guðmundur er formaður Herranætur og
stofnaði nýverið Félag íslenskra fram-
haldsskólaleikfélaga, FÍFL.
LEIÐANDI AFL Rússneski
kvikmyndaleikstjórinn
Alexandr Sokurov leitar
til Íslands vegna nýrrar
kvikmyndar.
NORDICPHOTOS/AFP
Breski lögfræðingurinn
Christopher Watson
hefur verið við veiðar
á Íslandi undanfarna
daga. Watson er kunnur
lögfræðingur í Bret-
landi en kunnari er
hann þó vænt-
anlega fyrir að
vera faðir Harry
Potter-leikkonunn-
ar Emmu. Watson flaug hingað
til lands beint eftir frumsýningu
nýjustu Harry Potter-myndarinnar í
New York. Með í för var sonur hans
og yngri bróðir Emmu, Alex, og
besti vinur hans. Alex lék reyndar
lítið hlutverk í Harry Potter-mynd-
inni Fönixreglunni fyrir nokkrum
árum. Þetta föruneyti veiddi í
Norðurá, Laxá í Kjós og Langá og
alls staðar veiddist vel. Má því
búast við að Watson láti þetta ekki
verða síðustu Íslandsheimsókn
sína.
Seinna mark bikarmeist-
ara KR í Evrópuleiknum
gegn Larissa fór eitthvað
illa í grísku gestina.
Kristinn Kjærn-
ested og aðrir
höfðingjar í
KR-mafíunni
voru búnir að
skipuleggja kvöldverð og drykki
fyrir aðalmennina í gríska föruneyt-
inu eftir leikinn. Þeir grísku struns-
uðu hins vegar beint úr Frostaskjól-
inu eftir leikinn og kvöddu hvorki
kóng né prest.
Eiður Smári Guðjohn-
sen og Auðunn
Blöndal skemmtu
sér saman á Mojito-
kvöldi á Vegamót-
um á fimmtudags-
kvöld. Þeir félagar
létu þó kokteilana
vera þetta kvöldið,
að minnsta kosti
Eiður Smári, sem
drakk bjór á milli
þess sem hann
gaf ungum kven-
kyns aðdáendum
eiginhandarárit-
un. - hdm
FRÉTTIR AF FÓLKI