Fréttablaðið - 18.07.2009, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 18.07.2009, Blaðsíða 24
Vinningshafar í sumarleik Nings: Í vinningi A eru 50 lítrar af gosi frá Ölgerðinni, 3. mánaða kort hjá World Class, 10.000 króna úttekt frá Olís og frítt frelsi frá Tal í allt sumar. Vinning A hlutu: ■ Linda Dögg Jóhannsdóttir Drekavelli 16. ■ Olga Sigfúsdóttir Úthlíð 9. ■ Erling Örn Magnússon Dvergabakka 26. ■ Bóas R. Bóasson Brúnastöð- um 33. Í vinningi B eru 50 lítrar af gosi frá Ölgerðinni, 15.000 kr gjafabréf í Bónus, frítt í Laugarásbíó í allt sumar og Temp- ur heilsukoddi frá Betra baki. Vinning B hlutu: ■ Ingólfur K. Guð- mundsson Álm- holti 11. ■ Bjarki Reynis- son Lautasmára 37. ■ Auður Lilja Dav- íðsdóttir Lækja- smára 6. ■ Elfa Björk Kjart- ansdóttir Mosa- rima 15. Glæsilegir vinningar „Þetta var kreppuhugmynd. Hún vaknaði þegar við vorum að taka til í geymslunum hjá okkur fyrir tæpu ári og fundum þá ýmis húsgögn sem við höfðum safnað að okkur í gegnum tíðina og voru farin að láta aðeins á sjá. Í stað þess að láta þau á haugana ákváðum við að gera þau upp og selja,“ segir Jökull Jóhanns- son sem ásamt Sævari Eyjólfssyni rekur fyrirtækið S&J Húsgögn. „Svo vatt þetta upp á sig og við vorum farnir að kaupa húsgögn sem voru í slæmu ásigkomulagi og gera upp,“ segir hann. Brátt var fólk einnig farið að gefa þeim félög- um gömul húsgögn eða láta þá gera upp fyrir sig. „Við erum báðir nokkuð handlagnir,“ segir Jökull inntur eftir því hvort þeir séu eitthvað mennt- aðir á þessu sviði. „Svo lærði Sævar líka húsgagnasmíði í eitt ár auk þess sem við erum báðir mikl- ir áhugamenn um fal- leg húsgögn,“ bætir hann við. Þegar þeir félagar opnuðu fésbókarsíðu fóru hlutirnir að rúlla fyrir alvöru. „Fyrr en varði vorum við komnir með 2.000 aðdáendur,“ segir Jökull en fyrirtækið stækkaði mun hraðar en þeir bjuggust við. „Við byrjuðum að gera upp í kjallaranum hjá Sæv- ari og áður en við vissum af vorum við komnir með stóra vinnustofu og ljósmyndastúdíó,“ segir hann áhugasamur. Jökull er lærður ljós- myndari og tekur myndir af hús- gögnunum fyrir vefsíðuna. Hingað til hafa þeir mest gert upp húsgögn en eru að sögn Jökuls í meira mæli farnir að taka gamla hluti og gjörbreyta þeim eftir sínu lagi. Einnig eru þeir með nokkrar hugmyndir að frumsmíði. Jökull og Sævar munu sýna nokkur húsgögn úr sinni smiðju í glugga verslunarinn- ar GK á Lauga- vegi 66 næstu vikurnar. Auk þeirra mun Hulda Vilhjálmsdóttir sýna skúlptúra í glugg- anum en hún deil- ir vinnustofu með þeim félögum. solveig@frettabladid.is Húsgögn í glugga tískuverslunar Verslunin GK á Laugavegi mun nýta glugga sína til að sýna hönnun og list. Fyrstir út í glugga eru Jökull Jóhannsson og Sævar Eyjólfsson sem endurhanna gömul húsgögn undir nafninu S&J Húsgögn. MENNINGARDAGSKRÁ tileinkuð ævi og verkum Jóns Trausta verður í Þistilfirði á sunnudag. Hún hefst á gönguferð með leiðsögn á Öxarfjarðarheiði um söguslóðir Höllu og heiðarbýlisins sem er eitt af ritverkum Jóns Trausta. Lagt verður af stað frá sæluhúsinu á Öxarfjarðarheiði klukkan 9.30. Sævar Eyjólfsson og Jökull Jóhannsson gera upp og endur- hanna gömul húsgögn undir nafninu S&J Húsgögn. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.