Fréttablaðið - 18.07.2009, Blaðsíða 37
F
lugfélag Íslands hefur
hafið flug til bæjarins
Ilulissat (Jakobshavn) á
Norður-Grænlandi.
Ilulissat er einn helsti ferða-
mannastaður á Grænlandi og
þykir hvergi jafn mikilfenglegt
að skoða jökulinn brotna fram í
sjóinn eins og þarna. Um 4.500
íbúar búa við Diskóflóann og er
fjörðurinn á heimsminja skrá
UNESCO. Flogið verður með
DASH 8-vél frá Keflavík tvisv-
ar í viku í júlí og ágúst.
Mjög hefur aukist hjá fyrir-
tækjum og stofnunum að nota
Grænland sem áfangastað
þegar halda á ýmiss konar við-
burði, hópefli eða hvataferðir
þar sem umhverfið þarf að vera
óvenjulegt eða einstakt.
Flugfélag Íslands flýgur
nú til allra landshluta Græn-
lands, þ.e.a.s. Ilulissat á Norð-
ur-Grænlandi, Nuuk á vestur-
strönd Grænlands, Narsarsuaq
á Suður-Grænlandi og svo til
Kulusuk og Constable Point sem
eru á austurströndinni.
ILULISSAT
NÝR OG SPENNANDI
ÁFANGASTAÐUR
Bátsferð Í baksýn sést jökullinn sem gengur í sjó fram og er mikilfenglegt að sjá þegar
jakarnir brotna frá.
Leið 7 Einkennilegt að sjá strætó i þessu litla þorpi á Grænlandi.
Sölukonur Lítill sölubás í Nuuk á vesturströnd Grænlands.
FRÍTT
Það kost
ar ekker
t að nálg
ast
Konur og
Kaupma
nnahöfn
á
www.ice
landexpr
ess.is
með ánægju
Aðra leið með sköttum og öðrum greiðslum. Um er að ræða valdar
dagsetningar og takmarkað sætaframboð.
Flugsæti frá:
12.900 kr.
Kaupmannahöfn er frábær fyrir konur á öllum aldri. Verslanir með
öllum fínustu merkjunum, það heitasta í hönnun og náttúrulega
þessar stóru og ódýrari fataverslanir sem allir þekkja. Svo er upplagt
að dekra aðeins við sig inn á milli og hafa það huggulegt á kaffihúsum
og njóta lífsins á veitingahúsum borgarinnar. Af nógu er að taka!
Á vefnum okkar finnurðu veftímaritið Konur og Kaupmannahöfn
sem hefur að geyma spennandi og hagnýtar upplýsingar um tísku og
hönnun, bestu kaupin og ýmis góð ráð fyrir konur í Kaupmannahöfn.
Nánar á www.icelandexpress.is
Kvenlega hliðin á Køben
BÓKAÐU
NÚNA!