Fréttablaðið - 18.07.2009, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 18.07.2009, Blaðsíða 29
Innköllun Samkvæmt heimild í 100. gr. a. í lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, sbr. þáverandi 5. gr. laga nr. 129/2008 um heimild til fjárveitinga úr ríkissjóði vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði ákvað stjórn Fjármálaeftirlitsins þann 21. mars 2009 að Fjármálaeftirlitið tæki yfi r vald hluthafafundar Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis hf. (SPRON) og skipaði því skilanefnd. Með lögum nr. 44/2009 varð skilanefnd SPRON að bráðabirgðastjórn. Skv. 3. mgr. 100. gr. a laga nr. 161/2002 lauk störfum bráðabirgðastjórnar þann 23. júní 2009 er héraðsdómur Reykjavíkur skipaði SPRON slitastjórn og hefur hún meðal annars með höndum meðferð krafna á hendur bankanum meðan á slitameðferð stendur. Frestdagur er 30. október 2008 sbr. 4. mgr. 101. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Upphafsdagur slitameðferðar miðast við uppkvaðningu héraðsdóms Reykjavíkur um skipun slitastjórnar þann 23. júní 2009, sbr. 2. ml. 3. mgr. 102. gr. laga nr. 44/2009. Hér með er skorað á alla þá sem telja til hvers kyns skulda eða annarra réttinda á hendur SPRON eða eigna í umráðum bankans, að lýsa kröfum sínum skrifl ega fyrir slitastjórn bankans innan sex mánaða frá fyrri birtingu þessarar innköllunar í Lögbirtingablaði. Kröfulýsingar skulu hafa borist slitastjórn innan fyrrgreinds tímamarks og skal efni þeirra vera í samræmi við fyrirmæli 2. og 3. mgr. 117. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl . nr. 21/1991. Kröfulýsingar skulu sendar til: Slitastjórn SPRON Lágmúla 6, 108 Reykjavík. Vegna áðurnefndra lagaákvæða er því beint til kröfuhafa að í kröfulýsingu komi fram sundurliðuð fjárhæð kröfu þann 23. júní 2009. Kröfum í erlendri mynt skal lýst í viðkomandi mynt. Kröfuhöfum frá aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins eða Fríverslunarsamtaka Evrópu er heimilt að lýsa kröfum á tungumáli heimalands síns. Slíkum kröfulýsingum skal fylgja íslensk þýðing en þó er heimilt að lýsa kröfu á ensku án þess að þýðing fylgi. Aðrir kröfuhafar geta lýst kröfum sínum á íslensku eða ensku. Sé kröfum ekki lýst innan framangreinds frests gilda um það sömu réttaráhrif og um vanlýsingu kröfu skv. 118. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl . nr. 21/1991 og telst hún því fallin niður gagnvart SPRON nema undantekningar í 1.-6. tölulið lagaákvæðisins eigi við. Sérstaklega er áréttað að með því að lýsa kröfu sinni telst kröfuhafi hafa fallist á brottfall þagnarskyldu (bankaleyndar) að því er varðar viðkomandi kröfu. Hér með er boðað til kröfuhafafundar og verður hann haldinn miðvikudaginn 17. mars 2010 kl. 10.00, að Hilton Hotel Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík. Rétt til setu á fundinum eiga þeir sem lýst hafa kröfu á hendur bankanum. Á fundinum verður fjallað um skrá yfi r lýstar kröfur og afstöðu slitastjórnar að því leyti sem hún liggur fyrir. Skrá yfi r lýstar kröfur verður aðgengileg þeim sem lýst hafa kröfum á hendur bankanum að minnsta kosti viku fyrir framangreindan fund. Nánari upplýsingar um kröfulýsingar og meðferð krafna munu gerðar aðgengilegar á heimasíðu bankans, www.spron.is. Slitastjórn beinir eftirtöldum tilmælum til kröfuhafa: a) Að upplýsa um tölvupóstfang sitt eða umboðsmann sinn í kröfulýsingu til að auðvelda miðlun upplýsinga. b) Að tilgreina bankareikning til að auðvelda útgreiðslu, þegar og ef til hennar kemur. c) Að lýsa kröfum sem fyrst eftir birtingu innköllunar. Reykjavík, 14. júlí 2009. Slitastjórn SPRON. Hildur Sólveig Pétursdóttir hrl. Hlynur Jónsson hdl. Jóhann Pétursson hdl. Tilboð óskast Tilboð óskast í ADRIA CLASSICA hjólhýsi, árgerð 2005, skemmt eftir óhapp. Tilboð skilist inná heimasíðu Tryggingamiðstöðvarinnar hf. ( útboð tjónabíla ) í síðasta lagi kl 07.00 að morgni 21. júlí. 2009. Hólhýsið er til sýnis í Tjónaskoðunarstöð TM, Hamarshöfða 2 110 Reykjavík á opnunartíma ( frá 8.30 til 16.30 virka daga ) Einnig er bent á Sölutorg TM http://www.tryggingamidstodin.is/solutorg en þar eru til sölu bifreiðar og munir í eigu félagsins. Tilboð óskast TTilboð óskast í Mercedes Benz Actros 2660 dráttarbifreið, árgerð 2007, skemmd eftir umferðaróhapp. Tilboð skilist inná heimasíðu Tryggingamiðstöðvarinnar hf. ( útboð tjónabíla ) í síðasta lagi kl 07.00 að morgni 21. júlí. 2009. Bifreiðin er til sýnis á Geymslusvæðinu Hafnarfi rði, á opnunartíma Einnig er bent á Sölutorg TM http://www.tryggingamidstodin.is/solutorg en þar eru til sölu bifreiðar og munir í eigu félagsins. Tilboð óskast Tilboð óskast í KRUZ FST-25 malarvagn, árgerð 2007, skemmdur eftir umferðaróhapp. Tilboð skilist inná heimasíðu Tryggingamiðstöðvar- innar hf. ( útboð tjónabíla ) í síðasta lagi kl 07.00 að morgni 21. júlí. 2009. Vagninn er til sýnis í Tjónaskoðunarstöð TM, Hamarshöfða 2 110 Reykjavík á opnunartíma ( frá 8.30 til 16.30 virka daga ) Einnig er bent á Sölutorg TM http://www.tryggingamidstodin.is/solutorg en þar eru til sölu bifreiðar og munir í eigu félagsins. Tilboð óskast Tilboð óskast í Mecedes Benz ATEGO fl utningabíl, árgerð 2003, skemmdur eftir umferðaróhapp. Bifreiðin er með fl utningakassa, kælivél og lyftu. Tilboð skilist inná heimasíðu Tryggingamiðstöðv- arinnar hf. ( útboð tjónabíla ) í síðasta lagi kl 07.00 að morgni 21. júlí. 2009. Bifreiðin er til sýnis á Geymslusvæðinu Hafnarfi rði, á opnunartíma Einnig er bent á Sölutorg TM http://www.tryggingamidstodin.is/solutorg en þar eru til sölu bifreiðar og munir í eigu félagsins. Innköllun Þann 23. júní 2009 krafðist stjórn Frjálsa fjárfestingarbankans hf. þess að bankinn yrði tekinn til slita í samræmi við 3. tl. 1. mgr. 101. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki þar sem ekki var talið sennilegt að greiðsluörðugleikar þess myndu líða hjá innan skamms tíma. Frestdagur er 23. júní 2009 sbr. 2. ml. 3. mgr. 102. gr. laga nr. 44/2009 er héraðsdómur Reykjavíkur skipaði bankanum slitastjórn. Hér með er skorað á alla þá sem telja til hvers kyns skulda eða annarra réttinda á hendur Frjálsa fjárfestingarbankanum hf. eða eigna í umráðum bankans, að lýsa kröfum sínum skrifl ega fyrir slitastjórn bankans innan þriggja mánaða frá fyrri birtingu þessarar innköllunar. Kröfulýsingar skulu hafa borist slitastjórn innan fyrrgreinds tímamarks og skal efni þeirra vera í samræmi við fyrirmæli 2. og 3. mgr. 117. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl . nr. 21/1991. Kröfulýsingar skulu sendar til: Slitastjórn Frjálsa fjárfestingarbankans hf. Lágmúla 6, 108 Reykjavík. Vegna áðurnefndra lagaákvæða er því beint til kröfuhafa að í kröfulýsingu komi fram sundurliðuð fjárhæð kröfu þann 23. júní 2009. Kröfum í erlendri mynt skal lýst í viðkomandi mynt. Kröfuhöfum frá aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins eða Fríverslunarsamtaka Evrópu er heimilt að lýsa kröfum á tungumáli heimalands síns. Slíkum kröfulýsingum skal fylgja íslensk þýðing en þó er heimilt að lýsa kröfu á ensku án þess að þýðing fylgi. Aðrir kröfuhafar geta lýst kröfum sínum á íslensku eða ensku. Sé kröfum ekki lýst innan framangreinds frests gilda um það sömu réttaráhrif og um vanlýsingu kröfu skv. 118. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl . nr. 21/1991 og telst hún því fallin niður gagnvart Frjálsa fjárfestingarbankanum hf. nema undantekningar í 1.-6. tölulið lagaákvæðisins eigi við. Sérstaklega er áréttað að með því að lýsa kröfu sinni telst kröfuhafi hafa fallist á brottfall þagnarskyldu (bankaleyndar) að því er varðar viðkomandi kröfu. Hér með er boðað til kröfuhafafundar og verður hann haldinn fi mmtudaginn 19. nóvember 2009 kl. 10.00, að Hilton Hotel Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík. Rétt til setu á fundinum eiga þeir sem lýst hafa kröfu á hendur bankanum. Á fundinum verður fjallað um skrá yfi r lýstar kröfur og afstöðu slitastjórnar að því leyti sem hún liggur fyrir. Skrá yfi r lýstar kröfur verður aðgengileg þeim sem lýst hafa kröfum á hendur bankanum að minnsta kosti viku fyrir framangreindan fund. Nánari upplýsingar um kröfulýsingar og meðferð krafna munu gerðar aðgengilegar á heimasíðu bankans, www.frjalsi.is. Slitastjórn beinir eftirtöldum tilmælum til kröfuhafa: a) Að upplýsa um tölvupóstfang sitt eða umboðsmann sinn í kröfulýsingu til að auðvelda miðlun upplýsinga. b) Að tilgreina bankareikning til að auðvelda útgreiðslu, þegar og ef til hennar kemur. c) Að lýsa kröfum sem fyrst eftir birtingu innköllunar. Reykjavík, 14. júlí 2009. Slitastjórn Frjálsa fjárfestingarbankans hf. Hildur Sólveig Pétursdóttir hrl. Hlynur Jónsson hdl. Jóhann Pétursson hdl. Tilboð óskast Tilboð óskast í FLEETWOOD EVOLUTION fellihýsi, árgerð 2007, skemmt eftir óhapp. Tilboð skilist inná heimasíðu Tryggingamið- stöðvarinnar hf. ( útboð tjónabíla ) í síðasta lagi kl 07.00 að morgni 21. júlí. 2009. Hýsið er til sýnis í Tjónaskoðunarstöð TM, Hamarshöfða 2 110 Reykjavík á opnunartíma ( frá 8.30 til 16.30 virka daga ) Einnig er bent á Sölutorg TM http://www.tryggingamidstodin.is/solutorg en þar eru til sölu bifreiðar og munir í eigu félagsins. Auglýsingasími – Mest lesið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.