Fréttablaðið - 08.08.2009, Page 22
22 8. ágúst 2009 LAUGARDAGUR
Meira að segja minnstu smáþjóðir heims brugga sinn eigin bjór og þar
er Ísland engin undantekning. Þrátt fyrir skarðið sem bjórbannið mynd-
aði hefur bjór verið bruggaður hér allt frá víkingaöld og þar til íslenskir
bjórrisar á borð við Ölgerð Egils Skallagrímssonar risu upp. En undan-
farin fjögur ár hafa þrjár minni bruggverksmiðjur haslað sér völl úti á
landi með háleit markmið um að brugga metnaðarfullan og bragðmik-
inn bjór. Ölvisholt brugghús stendur rétt utan við Selfoss en þar er bjór-
inn Skjálfti bruggaður. Norður í landi, á Árskógssandi er svo bjórinn
Kaldi bruggaður eftir tékkneskri hefð, og fyrir vestan, í Stykkishólmi,
er bruggaður bjórinn Jökull. Íslendingar hafa tekið þessum bragðgóðu
afurðum afbragðsvel og spennandi verður að fylgjast með framgangi
þeirra. - amb
Hinn gullni
mjöður
Á fáeinum árum hafa sprottið upp þrjú afbragðs
brugghús á Íslandi sem sérhæfa sig í metnaðar-
fullri bjórgerð. Pjetur Sigurðsson ljósmyndari fór
hringveginn um landið í sumar og sótti þau heim.
HRÆRT Í BJÓRNUM Hjá brugghúsinu Mjöður ehf. á Stykkishólmi er bjórinn Jökull bruggaður en hann er millidökkur og bragð-
góður lagerbjór. Hér sést Magnús Þór Stefánsson bruggmeistari að störfum.
ÁRANGUR ERFIÐIS Jón Elías Gunnlaugsson á Ölvisholti með bjórinn Skjálfta sem hann segir metnaðar-
fullan bjór fyrir sælkera.
SVELLKALDUR Hjónin Agnes Sigurðardóttir og Ólafur Þröstur Ólafsson á Árskógssandi með bjórinn Kalda
sem bruggaður er eftir tékkneskri hefð.
SAMVINNA Magnús Þór Stefánsson bruggmeistari í bruggverksmiðjunni Mjöður hf. FAGMANNSGRÆJUR Jón Elías Gunnlaugsson við bruggkatlana í í Ölvisholti.
PUNKTURINN YFIR I-IÐ Tapparnir settir á Kalda frá Ársskógssandi. SVEITASÆLA Bruggverksmiðjan Ölvisholt er í gömlu fjósi rétt hjá Selfossi.