Fréttablaðið - 08.08.2009, Page 32

Fréttablaðið - 08.08.2009, Page 32
Vélsmiðja Konráðs Jónssonar sf Helluhrauni 20, 220 Hafnarfjörður Vegna mikillar vinnu framundan vantar okkur 2-3 vana járnsmiði í vinnu. Þeir sem hafa öll tilskilin réttindi ganga fyrir. Um er að ræða nýsmíði á handriðum og stigum. Gerðar eru kröfur um vandvirkni og stundvísi. Vinsamlega sendið upplýsingar á e-mail: kjgj@simnet.is HEKLA - BIFVÉLAVIRKJAR Á BÍLASVIÐI Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólafur B. Jónsson, þjónustustjóri bílasviðs (obj@hekla.is) Hægt er að senda inn umsóknir í gegnum heimasíðu HEKLU www.hekla.is eða til Valdísar Arnórsdóttur, starfsmanna- og gæðastjóra (va@hekla.is) F í t o n / S Í A HEKLA er þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig i sölu og þjónustu á bílum og vélum með það að leiðarljósi að veita úrvals þjónustu og ráðgjöf. Bílasvið HEKLU flytur inn og þjónustar eftirtalin vörumerki; Volkswagen, Audi, Skoda, Volkswagen atvinnubíla og Mitsubishi. Á undanförnum mánuðum hafa gríðarlegar breytingar átt sér stað í þjónustudeildum bílasviðs en markmið breytinganna var að aðgreina verkstæði hvers vörumerkis til þess að efla þjónustu og bæta aðgengi fyrir viðskiptavini félagsins. Við leitum að fagmenntuðum og reynslumiklum bifvélavirkjum. Boðið er upp á skemmtilegan vinnustað, úrvals aðstöðu til viðgerða og viðhalds, gott tæknilegt umhverfi ásamt miklum möguleikum á þjálfun og endurmenntun. Á verkstæðum HEKLU er unnið eftir gæðakerfi sem byggir á Volkswagen Group og ISO 9001:2000 stöðlum. Gæðakerfið er vottað af faggiltum aðilum. Bifvélavirki á bílaverkstæði hefur það hlutverk að greina, finna úrlausnir og vinna við viðgerðir á verkstæðinu. Vinnutími á verkstæðinu er frá kl. 8:00 - 16:00. Allir starfsmenn HEKLU eru hvattir til að sýna frumkvæði, metnað og vilja til að ná árangri í starfi. Hæfniskröfur Fullgild réttindi og reynsla af starfi sem bifvélavirki Góð almenn ensku- og tölvukunnátta Þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum Áhugi á símenntun í greininni og vilji til að kynna sér tækninýjungar Ábyrgð og verkefni Öll almenn viðhalds- og viðgerðarvinna Meðhöndlun bilanagreininga Deila þekkingu með starfsfélögum Framfylgja öllum öryggisreglum og gæðakröfum framleiðenda Viljum bæta við okkur eldklárum, handlögnum, úrræðagóðum, þaulreyndum, mannblendnum, röggsömum, samviskusömum, bráðsnjöllum og skemmtilegum bifvélavirkjum.                                                !"  "      #    $                         %    $  "       &   '   "     "    (           ) %   '            "         )      *  + ) ' ! )  %"           ,,-,./0  1 2     3 % %    ! 444    "          56 !   " 7       ' ! 8  % ,,-,590  1   "  2     Austurbergi 5 • 111 Reykjavík • Sími 570 5600 Símbréf 567 0389 • Tölvupóstur: fb@fb.is • www.fb.is Okkur vantar strax kennara í stærðfræði. Um 100% starf er að ræða. Allar upplýsingar gefur aðstoðarskólameistari í síma 570 5600 og gsm 896 1808. Skólameistari Tækifæri til atvinnusköpunar. Skeiða- og Gnúpverjahreppur og Landsvirkjun eru að huga að framtíðarrekstri á sundlauginni í Þjórsárdal. Svæðið býður upp á mikla möguleika, er staðsett í hjarta Þjórsárdals. Þar er heitt og kalt vatn í talsverðu mæli. Við leitum að áhugasömum aðilum til uppbygg- ingar á svæðinu. Veitum ykkur frekari upplýsingar og sínum ykkur staðinn ef áhugi er á. Vinsamlegast hafi ð samband við Gunnar á skrifstofu Skeiða- og núpverjahrepps í síma 486-6014. Skeiða- og Gnúpverjahreppur Landsvirkjun

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.