Fréttablaðið - 08.08.2009, Blaðsíða 32
Vélsmiðja Konráðs Jónssonar sf
Helluhrauni 20, 220 Hafnarfjörður
Vegna mikillar vinnu framundan vantar okkur
2-3 vana járnsmiði í vinnu. Þeir sem hafa öll
tilskilin réttindi ganga fyrir. Um er að ræða
nýsmíði á handriðum og stigum.
Gerðar eru kröfur um vandvirkni og stundvísi.
Vinsamlega sendið upplýsingar á e-mail:
kjgj@simnet.is
HEKLA - BIFVÉLAVIRKJAR Á BÍLASVIÐI
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólafur B. Jónsson, þjónustustjóri bílasviðs (obj@hekla.is)
Hægt er að senda inn umsóknir í gegnum heimasíðu HEKLU www.hekla.is eða til Valdísar Arnórsdóttur, starfsmanna- og gæðastjóra (va@hekla.is)
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
HEKLA er þjónustufyrirtæki sem
sérhæfir sig i sölu og þjónustu á bílum
og vélum með það að leiðarljósi að
veita úrvals þjónustu og ráðgjöf.
Bílasvið HEKLU flytur inn og þjónustar
eftirtalin vörumerki; Volkswagen, Audi,
Skoda, Volkswagen atvinnubíla og
Mitsubishi. Á undanförnum mánuðum
hafa gríðarlegar breytingar átt sér stað
í þjónustudeildum bílasviðs en markmið
breytinganna var að aðgreina verkstæði
hvers vörumerkis til þess að efla
þjónustu og bæta aðgengi fyrir
viðskiptavini félagsins.
Við leitum að fagmenntuðum og reynslumiklum bifvélavirkjum. Boðið er upp á skemmtilegan vinnustað, úrvals
aðstöðu til viðgerða og viðhalds, gott tæknilegt umhverfi ásamt miklum möguleikum á þjálfun og endurmenntun.
Á verkstæðum HEKLU er unnið eftir gæðakerfi sem byggir á Volkswagen Group og ISO 9001:2000 stöðlum.
Gæðakerfið er vottað af faggiltum aðilum.
Bifvélavirki á bílaverkstæði hefur það hlutverk að greina, finna úrlausnir og vinna við viðgerðir á verkstæðinu.
Vinnutími á verkstæðinu er frá kl. 8:00 - 16:00.
Allir starfsmenn HEKLU eru hvattir til að sýna frumkvæði, metnað og vilja til að ná árangri í starfi.
Hæfniskröfur
Fullgild réttindi og reynsla af starfi sem bifvélavirki
Góð almenn ensku- og tölvukunnátta
Þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
Áhugi á símenntun í greininni og vilji til að
kynna sér tækninýjungar
Ábyrgð og verkefni
Öll almenn viðhalds- og viðgerðarvinna
Meðhöndlun bilanagreininga
Deila þekkingu með starfsfélögum
Framfylgja öllum öryggisreglum og
gæðakröfum framleiðenda
Viljum bæta við okkur eldklárum, handlögnum, úrræðagóðum,
þaulreyndum, mannblendnum, röggsömum, samviskusömum,
bráðsnjöllum og skemmtilegum bifvélavirkjum.
!" "
#
$
%
$
"
&
'
"
"
(
) %
'
"
)
*
+ )
'
! )
%"
,,-,./0
1
2
3 % %
!444
"
56
!
"
7
'
! 8
% ,,-,590
1
"
2
Austurbergi 5 • 111 Reykjavík • Sími 570 5600
Símbréf 567 0389 • Tölvupóstur: fb@fb.is • www.fb.is
Okkur vantar strax
kennara í stærðfræði.
Um 100% starf er að ræða.
Allar upplýsingar gefur aðstoðarskólameistari
í síma 570 5600 og gsm 896 1808.
Skólameistari
Tækifæri til
atvinnusköpunar.
Skeiða- og Gnúpverjahreppur og Landsvirkjun eru að
huga að framtíðarrekstri á sundlauginni í Þjórsárdal.
Svæðið býður upp á mikla möguleika, er staðsett í
hjarta Þjórsárdals. Þar er heitt og kalt vatn í talsverðu
mæli. Við leitum að áhugasömum aðilum til uppbygg-
ingar á svæðinu. Veitum ykkur frekari upplýsingar og
sínum ykkur staðinn ef áhugi er á. Vinsamlegast hafi ð
samband við Gunnar á skrifstofu Skeiða- og
núpverjahrepps í síma 486-6014.
Skeiða- og Gnúpverjahreppur
Landsvirkjun