Fréttablaðið - 08.08.2009, Blaðsíða 39
inni&úti ●
Frískandi íste
4 tepokar
1 bolli ferskur sítrónusafi (5-6
sítrónur)
½ bolli af fínum sykri
3 sneiðar af sítrónu
Látið tepokana liggja í því sem sam-
svarar fjórum bollum af sjóðandi
vatni í tíu mínútur. Takið tepokana úr
vatninu og látið það kólna. Setjið sítr-
ónusafann, sykurinn og fjóra bolla
af köldu vatni í könnu og hrærið vel.
Bætið teinu, sítrónusneið-
um og loks nokkr-
um ísmolum út í og
njótið.
drykkir
S veitasælan verður í algleymingi í Árbæjarsafni á sunnudag en þá gefst gestum og gangandi kostur á að kynna sér gömlu sveita-
störfin sem mörgum finnst hafa yfir sér rómantískan blæ.
Ófá handtök þurfti til að klæða fólk og fæða á árum áður og mun
starfsfólk Árbæjarsafns veita gestum innsýn inn í þann horfna heim.
Sýnt verður hvernig smjör var strokkað og hvernig skyr er gert upp á
gamla mátann auk þess sem tóskapur verður á barstofuloftinu í Árbæ
og járnsmiður í smiðjunni.
Þeir sem vilja hverfa aftur í tímann geta byrjað daginn á guðsþjón-
ustu í safnkirkjunni klukkan 14 og fylgjast svo með mjöltum klukkan 17.
Rómantísk sveitasæla
í Árbæjarsafninu
Klukkan 17 á sunnudag verður hægt að fylgjast með mjöltum.
Engin málamiðlun í gæðum
Eykur styrk og þol vöðva
Lengri högg, lægri forgjöf !
Fæst í apótekum, heilsubúðum og Fríhöfninni.
Rannsóknir staðfesta árangur, sjá www.celsus.is
Astazan er öflugt
andoxunarefni sem
kemur í veg fyrir og
lagar eymsli, strengi,
vöðva- og sinabólgur.
Fyrir bak, fætur og hné.
Íþróttafólk og sjúkra-
þjálfarar mæla
með AstaZan.
1 hylk
i á dag
.
Virkar
strax
!
Hraunhús er staðsett í hluta Álafoss-
verksmiðjunnar í Mosfellsbæ, í mjög
skemmtilegu og stóru rými, en rétt
er að taka fram að rýmið tilheyrir
ekki Kvosinni heldur er það í iðnað-
arhverfinu, við Völuteig 6, en hægt
er að keyra í gegnum Kvosina.
Að sögn eigenda hússins, fyrir-
tækisins Loftbyggs, tóku þeir þá
ákvörðun síðasta vetur þegar allt
hrundi, að reyna að gera eitthvað
nýtt fyrir húsnæðið sem er skrif-
stofuhúsnæði og verslunareiningar,
og hugsa út fyrir rammann. Úr varð
að í samstarfi ráðgjafa sem þekkja
vel til íslensk hönnunarheims; þær
Jóhönnu Erlu Jóhannesdóttur og
Þórdísi Classen, verður Hraunhús
nú opnað þar sem íslensk hönnun
verður í öndvegi.
„Hönnunarverslunin, þar sem
við erum nú þegar með þrjátíu ís-
lenska hönnuði, heitir Magmatika
en þarna eru bæði þekktir hönnuð-
ir, svo sem Ingibjörg Hanna sem er
með töflur sem hún hannaði í vetur
með mynd af Laxness, Marý, með
Dyggðateppið, Örn Þór Halldórs-
son er með stólana sína sem kallast
Skatan og svo má nefna hönnun sem
kallast Volki og er alveg ný, svo fátt
eitt sé nefnt,“ segir Jóhanna Erla.
Volki er hönnun Elísabetar Jóns-
dóttur og Olgu Hrafnsdóttur en
þær endurvinna gamlan ullarfatn-
að, búta hann niður og búa til hús-
gögn, púða og fleira úr ullinni.
„Við leitumst eftir að bjóða upp
á gæðahönnun, skemmtilega og
lifandi sem kemur neytandanum
á óvart og þetta verða allt nytja-
hlutir. Margir hönnuðanna eru
að klára framleiðslu sína í haust
þannig að fleiri nýjar vörur munu
svo detta inn með haustinu.“
Með haustinu verða líka opn-
aðar vinnustofur fyrir hönnuð-
ina sjálfa sem og sýningarsalur
og veisluþjónusta.
Á kaffihúsinu stendur nú yfir
sýning þar sem þemað er Hall-
dór Laxness en Jóhanna segir að
þau hafi lagt áherslu á að hafa
kaffihúsið og aðstöðuna þannig
að fólk gæti slakað á. „Við erum
með sófa, blöð og bækur, barna-
horn og þetta á að vera endur-
nærandi ferð upp í Mosó.“ Kaffi-
húsið er opið frá 11 til 17 á laug-
ardögum, 11 til 18 virka daga og
svo verður opið fyrsta sunnudag
í hverjum mánuði. - jma
Kaffi, hraun og hönnun
● Í gær var opnað í Mosfellsbæ Hraunhús sem á að sögn rekstraraðila að vera miðstöð fyrir
íslenska hönnun, kaffihús, verslun og síðar sýningarsalur og vinnustofur fyrir hönnuði.
Jóhanna Erla Jóhannesdóttir hefur
fengið 30 hönnuði til liðs við Hraunhús
og verða vörur þeirra þar til sölu.
Mörgum þykir gaman að keyra upp í Mosfellsbæ og heimsækja jafnvel bakaríið og
Kvosina. Nú er ástæðan fyrir smá bíltúr enn ærnari því Hraunhús, kaffihús og mið-
stöð íslenskrar hönnunar, verður opnað þar um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Heklaðar hálsfestar sem Elín Hrund Þorgeirs-
dóttir hannar undir merkinu Dýrindi.
LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2009 1