Fréttablaðið - 08.08.2009, Side 40

Fréttablaðið - 08.08.2009, Side 40
● inni&úti „Við köllum þetta Íslenska sælu- húsið og fólk hefur veitt því mikla athygli í sumar. Það lætur mynda sig utan við það og heldur jafnvel í snerilinn eins og það sé á leið- inni inn. Þannig virðist húsið vekja góðar tilfinningar og það er okkur mikils virði,“ segir Guðný Róberts- dóttir kennari, sem stendur að byggingu hins nýja frístundahúss á Siglufirði, ásamt sambýlismanni sínum, Örlygi Kristfinnssyni. „Ör- lygur er hönnuðurinn, hann hefur óbilandi áhuga á húsagerð og ég út- vegaði styrki til verksins. Bygging- arfyrirtækið Berg sá svo um smíð- ina, sem er mjög vönduð,“ segir Guðný og tekur fram að húsið sé einangrað samkvæmt stöðlum nú- tímans. „Við létum líka leiða þang- að vatn, rafmagn og hitaveitu.“ Sæluhúsið er um 20 fermetrar að flatarmáli og skiptist í forstofu, eldhús, borðstofukrók, svefn- stofu og snyrtingu. Allt er það klætt innan með stafverki sem er þannig að lóðréttum furuborðum er smeygt á milli tveggja láréttra. Guðný segir hugmyndina að sjálf- sögðu sótta í íslenska byggingar- arfinn. „Það eru til málverk af gömlum kotbýlum hér á Siglufirði frá aldamótunum 1900 og þaðan er fyrirmyndin. Kaupendur geta valið um nokkra 19. aldar liti á út- veggi og hægt er að tengja fleiri en eitt hús saman ef vilji er fyrir hendi. Þá mynda þau burstabæ.“ Smíði hússins er tilraunaverk- efni í íslensku atvinnulífi að sögn Guðnýjar enda er stefnt að fjölda- framleiðslu. „Verðið verður komið innan skamms á nýju heimasíðuna, www.saeluhus.com, sem er í burð- arliðnum,“ segir hún og kveðst vona að Íslendingar vilji eignast sumarhús sem falli vel að sögu og náttúru landsins. „Við höfum bara fengið jákvæð viðbrögð og erum bjartsýn.“ - gun Guðný og smiðirnir, Björn Jónsson og Sverrir Jónsson, við sökkla Sæluhússins í vor. Nútíma þægindi eru til staðar í hinum snotru húsakynn- um. Allar klæðn- ingar innandyra eru gerðar sam- kvæmt gamla stafverkinu. MYNDIR/ÖRLYGUR KRISTFINNSSON Nýtt hús í gömlum stíl ● Lítið og vinalegt hús með nítjándu aldar útliti er nýrisið í miðbæ Siglufjarðar. Það er með torfþaki og tréstöfnum og hugsað sem frístundahús sem hægt er að fjöldaframleiða og flytja hvert á land sem er. Tilraunverkefni í atvinnulífi segir hugmyndasmiðurinn. É g er fæddur á Hamraendum í Stafholtstungum þannig að ræturnar liggja í Borgarfirðinum. Svo var ég í sveit í Gnúpverja- hreppi og hef sterkar taugar þangað líka,“ segir Jóhann Sig- urðarson leikari. Spurður nánar út í sumardvölina í Hreppunum svarar hann: „Ég var kaupamaður á Sandlæk í Gnúpverjahreppi í þrjú sumur þegar ég var 15 til 17 ára. Var reyndar oft í sveit alveg frá því ég fæddist til sautján ára aldurs, meðal annars í Skagafirði og Húnavatnssýslu en Borgar- fjörðurinn og Gnúpverjahreppurinn eru í mestu uppáhaldi.“ Það besta við Borgarfjörðinn segir Jóhann að hann sé fagur og víð- feðmur og svo búi þar gott fólk. Það eigi líka við um Árnessýsluna þar sem hann þekki til. „Mér leið mjög vel á Sandlæk og hafði nóg að sýsla,“ segir hann og rifjar upp viðfangsefnin. „Ég mjólkaði kýr, tók saman hey, sló í súrhey, gerði við girðingar og smalaði fé og er þakklátur fyrir að hafa fengið tækfæri til að taka þátt í þessu öllu.“ Ekki kveðst Jóhann hafa farið í göngur síðan hann var í Hreppun- um en hins vegar ferðast á hestum um byggðir og óbyggðir. „Ég reið úr Þjórsárdalnum upp að Hofsjökli í fyrra og fyrir nokkr- um vikum fór ég í fimm daga útreið um Borg- arfjörð og Mýrar í fylgd með Ólafi Flosasyni, þeim öndvegispilti. Við riðum að Langavatni og upp á Langavatnsmúla, niður Hraundal og um Mýrarnar til baka.“ Jóhann er einmitt að sinna rótunum í Borgarfirðinum þegar haft er samband við hann. „Ég er að paufast við að koma mér upp sumarhúsi í Skorradalnum,“ segir hann. „Er búinn að vera að dunda við það í nokkur ár og gengur voða hægt.“ - gun SVEITIN MÍN Borgarfjörður Húsið er smíðað í staðlaðri stærð og hægt að reisa það með eða án grjóthleðslu hvar sem er. ● ÞRÆÐIR nefnist samsýning fjögurra glerlistakvenna sem verður opnuð í Gall- eríi Ófeigs á Skólavörðustíg 5 í dag. Þær eru Helle Viftrup Kristiansen, Susanne Aaes, Ólöf Sigríður Davíðsdóttir og Dagný Þrastardóttir. Döðlukaka sem ekki þarf að baka Heilsusamlegir eftirréttir geta svo sannarlega líka verið bragðgóðir. Það sann- ast á döðlukökunni hennar Gyðu Ölvisdóttur, hjúkrunarfræðings og myndlistarkonu. Kakan flokkast undir hollt nammi. eftirréttir FR ÉT TA BL A Ð IÐ /A N TO N 500 g döðlur 60-70 g kókosolía 50-100 g Síríus suðusúkkulaði, brytjað 1 lítill bolli haframjöl 2 bananar Smávegis af hökkuðum heslihnetum eða möndlum. Döðlurnar eru hitaðar í potti og maukaðar. Maukuðum bönunum er bætt út í ásamt haframjöli og kókosolíu. Maukið er sett í eitt stórt form eða tvö lítil og haft í kæli (eða frysti) í smá tíma. Síðan eru kókosflögur, fersk jarðarber og brytjað suðusúkkulaði sett ofan á og kakan borin fram með þeyttum rjóma. Tengja má fleiri en eitt hús saman og mynda þannig burstabæ. 8. ÁGÚST 2009 LAUGARDAGUR2

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.