Fréttablaðið - 08.08.2009, Síða 48
28 8. ágúst 2009 LAUGARDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
VÚMM
Ókei, þá er nóg
komið í dag.
Afleysingamaðurinn
tekur við.
Hvað!? Ég setti
hann bara í
þvottavélina!
Áfengi leysir engin
vandamál. Þvert
á móti. Það eykur
bara á vandamál
þín og kemur þér í
vítahring!
Og ég get vel skilið
að það sé freistandi
að ganga berserks-
gang með hafna-
boltakylfu, en það
gerir líka bara vont
verra!
Þar að auki held
ég að það sé
ólöglegt!
Jújú.
En þá er nú betra
að fá sér bara pillur!
Þær bláu eru sér-
staklega góðar!
Nei,
sko!
Palli, foreldrar
þínir eru
æðislegir!
Ég meina
(gvuðminn-
góður) svo
æðisleg!
Ég fæ þessa
bók lánaða
svo ég geti
klárað verk-
efnið mitt!
Og ég er svo
ánægð að
ég er bara að
flippa út!
Ég held að
ég hafi aldrei
séð svo mikla
orkueyðslu í
eitt „takk“.
Táningsstelpur
eru svo tilfinn-
ingasamar.
Af hverju ertu ekki
að gæta Lóu?
Mamma er
með hana.
En hepp-
inn.
Já, þá fæ ég
tíma til að sinna
öðru …
… eins og þessu! Þú sem sagt passar litlu systur
og stríðir stóru systur?
Ég sem ekki
reglurnar, ég fylgi
þeim bara.
SPLASS
Ég gladdist mjög yfir því að lesa brot af viðtali við Brad Pitt í nýjasta tölu-blaði tímaritsins Parade. Eins og við
var að búast var hann spurður út í sam-
band sitt við Angeline Jolie. Þegar talið
barst að hjónabandi útilokaði hann ekki
að þau myndu gifta sig einn daginn, en þó
ekki fyrr en það verður löglegt fyrir alla
að ganga í það heilaga. Þá vísar hann til
þess að Proposition 8 hafi verið samþykkt í
Kaliforníu, tillagan um bann á hjónabönd-
um samkynhneigðra.
Pitt segist ekki hafa nokkurn
skilning á slíku hatri og trúir því
að allir eigi að hafa sömu réttindi.
Þá viðurkenndi hann að hafa feng-
ið hatursbréf frá sértrúarsöfn-
uðum sem gagnrýna hann fyrir
skoðun sína. Hann sagðist ekki
botna í fólki sem vill meina að
hjónabönd samkynhneigðra
splundri fjölskyldum og særi börn því hann
hefur notið þeirra forréttinda að sjá sam-
kynhneigða vini sína verða foreldra og ala
upp börn sín í ástríku umhverfi.
Í gær var grein á visir.is um að Amer-
íska sálfræðingafélagið sé á móti því að
geðheilbrigðisstarfsfólk ráðleggi samkyn-
hneigðum skjólstæðingum sínum að breyta
kynhneigð sinni, því „fátt bendi til þess
að hægt sé að breyta kynhneigð homma
og lesbía og slík meðferð geti verið skað-
leg“. Vissulega verður að teljast jákvætt
að félagið gefi frá sér þessa yfirlýsingu,
en á sama tíma er svo sorglegt að fólk hafi
einhvern tíma haldið að þetta væri
hægt, gagnlegt eða siðferðislega
rétt og hafi trúað því að samkyn-
hneigð sé „val á lífsstíl“.
Ég gæti allavega ekki verið meira
sammála ummælum Pitts og held í
gleðigönguna í dag með bros á vör.
Fullkomnlega sammála Brad Pitt
NOKKUR ORÐ
Alma Guð-
mundsdóttir
Kvöldskóli BHS
haustönn 2009
Innritun í málmiðnadeild kvöldskóla Borgarholtskóla verður eftirtalda daga:
föstudag 14. ágúst kl. 17 - 19
laugardag 15. ágúst kl. 11 - 14
Námið er tilvalið fyrir þá sem ætla í sveinspróf í málmiðngreinum og sem valgrei-
nar með öðru námi. Í boði eru allir áfangar í rennimíði, afl vélavirkjun og áfangar
fyrir blikksmiði og bíliðnamenn. Einnig eru boðnar allar suðugreinar: MIG / MAG,
TIG, logsuða og rafsuða.
Upphaf kennslu: mánudag 24. ágúst frá 18:10 - 22:30
Lok kennslu: mánudaginn 30. nóvember
Ath.: Áfangar geta fallið niður náist ekki nægur fjöldi nemenda í hópa
Nánari upplýsingar á heimasíðu skólans: www bhs.is
Fagbóklegt efni
EÐL - 102 eðlisfræði
MRM - 112 rafmagnsmælingar
RAT - 112 rafeindatækni
RÖK - 102 rökrásir
REN - 341 rennismíði bókleg
REN - 441 rennismíði bókleg
Teikningar
GRT - 103 grunnteikning
GRT - 203 grunnteikning
ITM - 213 inventor/iðnteikning
TTÖ - 102 tölvuteikning
Verklegt og fagbóklegt
AVV-103/203 bóklegt/verklegt
HSU-102/212 verkleg suða
LSU-102/202 verkleg suða
RSU-102/202 verkleg suða
HSU - 232 verkleg suða
HVM - 103/203 verkleg handavinna
PLV - 102 verkleg plötusmíði
REN-103/203 verkleg rennism.
REN-344/443 verkleg rennism.
REN - 543 verkleg rennism.
Óska eftir að kaupa
íslensk enskt lingapon tungumála námskeið.
Sem er útgefi ð ár 1976, 1977 eða 1978 en ekki
English Course. En útgáfuárið er auðfundið í
bókum sem fylgja.
Upplýsingar í síma 865 7013.
Ég borga 25.000 kr. fyrir námskeiðið
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki