Fréttablaðið - 08.08.2009, Page 53
LAUGARDAGUR 8. ágúst 2009
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Laugardagur 8. ágúst 2009
➜ Tónleikar
14.00 Ragnar Bjarnason heldur
tónleika ásamt Þorgeiri Ástvaldssyni í
Sólheimakirkju í Grímsnesi. Aðgangur
er ókeypis.
21.30 Hljómsveitin Rósin okkar flytur
írska, norska og íslenska þjóðlagatónlist
á Café Rosenberg við Klapparstíg.
22.00 Hvanndalsbræður verða
á Græna hattinum, Hafnarstræti
96 á Akureyri.
➜ Motocross
Fjórða umferð Íslands-
meistaramótsins í Motocross
fer fram í Sólbrekku á keppn-
issvæði Vélhjólaíþróttaklúbbs
Reykjaness, (beygja til hægri
af Grindavíkurvegi að Seltjörn
og aka í gegnum Sólbrekku-
skóg). Keppni hefst kl. 12.
Nánari upplýsingar á www.
motocross.is.
➜ Tónlistarhátíð
Tónlistarhátíðin „Kammertónleikar á
Kirkjubæjarklaustri“ 7.-9. ágúst. Nánari
upplýsingar www.klaustur.is.
17.00 Flutt verður suðuramerísk efn-
isskrá með verkum eftir Braga, Villa-
Lobos, Brouwer og Guastavino.
➜ Uppsveitavíkingurinn
Sterkustu menn landsins mæta til leiks í
aflraunakeppninni Uppsveitavíkingurinn,
7 og 8 ágúst. Allir velkomnir og enginn
aðgangseyrir. Nánari upplýsingar og
dagskrá er á www.kraftsport.is.
➜ Dansleikir
Hljómsveitin Dalton verður á skemmti-
staðnum Spot við Bæjarlind 6 í Kópa-
vogi.
Sálin hans Jóns míns verður í Officera-
klúbbnum á Vallarheiði í Reykjanesbæ.
➜ Handverkshátíð
Handverkshátíð verður í Hrafnagilsskóla
í Eyjafjarðarsveit 7.-10. ágúst. Tískusýn-
ingar, námskeið, fyrirlestrar og margt
fleira. Dagskrá og nánari upplýsingar á
www.handverkshatid.is.
Sunnudagur 9. ágúst 2009
➜ Tónleikar
16.00 Gítardúettinn Duo Nor leikur
frumsamið efni og þekktar djassperlur
undir áhrifum latín- og sveiflustíls, á
tónleikum í Gljúfrasteini, húsi skáldsins.
17.00 Roger Sayer dómorganisti verð-
ur með tónleika í Hallgrímskirkju við
Skólavörðuholt.
➜ Tónlistarhátíð
Tónlistarhátíðin „Kammertónleikar á
Kirkjubæjarklaustri“, 7.-9. ágúst. Nánari
upplýsingar www.klaustur.is.
15.00 Tónleikar helgaðir íslenskri
tónlist eftir Snorra Sigfús Birgisson,
Kristin H. Árnason, Sigfús Einarsson,
Jón Laxdal o.fl.
➜ Markaðir
Markaður verður haldinn að Lónskoti í
Skagafirði milli kl. 13 og 17.
➜ Söguganga
11.00 Farið verður í menningar- og
sögutengda göngu um Kálfatjarnarsvæði
og Almenningsveg og gengið til baka
um heiðina. Vegalengd er um 6 km.
Lagt af stað frá Kálfatjarnarkirkju kl. 11.
Nánari upplýsingar á www.vogar.is
➜ Skemmtikvöld
21.00 Á Rosenberg við Klapparstíg verð-
ur haldið Skemmtikvöld þar sem fram
koma Einar Már Guðmundsson, Gunn-
ar Þórðason, Gunnar Bjarni, Johnny
and the Rest, Toggi Bjarnason 3 og
Hrafnkell Már og Rakel María. Aðgang-
ur er ókeypis.
➜ Dansleikir
Dansleikur Félags eldri borgara í Reykja-
vík og nágrenni verður haldinn að
Stangarhyl 4 milli kl. 20-23.30. Klassík
leikur fyrir dansi.
➜ Leiðsögn
15.00 Boðið verður upp á leiðsögn um
sýninguna Safn(arar) sem nú stendur
yfir í Hafnarborg við Strandgötu í Hafn-
arfirði. Sýningin er opin alla daga nema
þriðjudaga kl. 11-17, fimmtudaga til kl.
21.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is.
Nánari upplýsingar um opnunartíma og sýningar í stöðvum í sumar eru
á www.landsvirkjun.is og í síma 515 9000.
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
9
10
82
Lítið inn
til okkar
á milli
verkefna
í sumar
Velkomin á sýningar Landsvirkjunar:
Dimmir hratt á draugaslóð Blöndustöð : Andlit Þjórsdæla Búrfellsstöð
Afl úr iðrum jarðar Kröflustöð : Hvað er með Ásum? Laxárstöð
List Kristjönu Samper Ljósafossstöð : Orkan frá Kárahnjúkum Végarði
Stöðvar Landsvirkjunar eru opnar alla eftirmiðdaga í sumar.
Aðgangur er ókeypis.