Fréttablaðið - 13.08.2009, Page 4

Fréttablaðið - 13.08.2009, Page 4
4 13. ágúst 2009 FIMMTUDAGUR VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 30° 25° 24° 19° 21° 23° 23° 20° 20° 24° 21° 28° 29° 32° 19° 25° 19° 21° Á MORGUN Hæg austlæg eða breytileg átt. LAUGARDAGUR Hæg austlæg eða breytileg átt. 14 13 12 11 12 12 10 12 12 13 9 3 4 4 3 2 3 2 1 1 5 3 16 12 12 13 15 14 12 10 12 15 13 SKAPLEGT VEÐUR Það verða litlar breytingar á veðr- inu næstu daga en það verður yfi rleitt fínt fram yfi r helgina þrátt fyrir smá vætu einkum norðanlands. Vind- ur verður í lágmarki um allt land og nokkuð milt verður í veðri. Mestu líkur á bjartviðri verða sunnanlands um helgina. Elísabet Margeirsdóttir Veður- fréttamaður MENNTAMÁL Um 23 þúsund manns eru skráðir í háskólanám í haust í fjóra stærstu háskóla lands- ins; Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri, Háskólann í Reykja- vík og Háskólann á Bifröst. Um 17 þúsund stunduðu nám í skólunum haustið 2008, samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Fjölgunin er því um 35 prósent. Ekki fengust nákvæmar upp- lýsingar frá Háskóla Íslands um nemendafjölda næstu haust- annar en lík- lega mun nem- endafjöldinn vera á bilinu 16 til 18 þús- und, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Haustið 2008 stunduðu 11.847 nemendur nám við skólann. Í Háskólann á Akureyri eru 1.770 skráð - ir fyrir haust- ið, samkvæmt D a g m a r Ýr Stefánsdóttur, forstöðumanni markaðs- og kynningarsviðs HA. Haustið 2008 stunduðu 1.352 nám við skólann. 70 umsóknum var hafnað af um það bil 900 sem bárust. Fjölmennasta deildin verð- ur hug- og félagsvísindasvið og þar fjölgar einnig mest hlutfallslega. Háskólinn í Reykjavík tekur inn á ellefta hundrað nemenda í haust en um 1.700 nemendur sóttu um skólavist. Nemendur skólans verða því um 3.200 á næsta ári en voru 2.974 síðasta haust. Flestir nem- endur hefja nám í tækni- og verk- fræðideild og viðskiptadeild. Mest fjölgar nemendum í kennslufræði- og lýðheilsudeild í haust. Það má rekja til þess að annars vegar varð alger sprenging í umsóknum um nám í íþróttafræði og hins vegar byrjar nýtt BSc-nám í sálfræði við deildina í haust, að sögn Jóhanns Hlíðars Harðarson- ar, upplýsingafulltrúa HR. Jóhann segir nemendum HR ekki fjölga mikið milli ára þar sem skólinn sé með samning við ríkið um fjölda nemenda. „Það er ekki stefna HR að fjölga nemendum við skólann mikið á næstu árum.“ Rúmlega 1.300 manns munu stunda nám við Háskólann á Bif- röst í haust, að sögn Ágústs Ein- arssonar, rektors Háskólans á Bif- röst. Töluverðu af umsóknum var hafnað. Nokkur fjölgun hefur verið undanfarin ár en um 1.100 manns stunduðu nám þar árið 2007. Sú breyting hefur orðið á hjá Bifröst að nemendur eru teknir inn allt árið. Opnað var fyrir umsókn- ir strax eftir bankahrun og síðan aftur í janúar, að sögn Ágústs og enn eru laus pláss á nokkrum námsleiðum fyrir haustið. vidir@frettabladid.is Háskólanemum fjölgar um þriðjung á milli ára Um 23 þúsund nemendur eru skráðir í háskólanám í stærstu háskóla landsins í haust, en 17 þúsund voru þar haustið 2008. Mörgum umsóknum var hafnað á Bifröst og í Háskólanum í Reykjavík. ÁGÚST EINARSSON JÓHANN HLÍÐAR HARÐARSON HÁSKÓLATORG HÁSKÓLA ÍSLANDS Ekki fengust nákvæmar upplýsingar um fjölda nemenda í Háskóla Íslands í haust en búist er við um 16 til 18 þúsund manns. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN BÚRMA, AP Aung San Suu Kyi, helsti leiðtogi andstæðinga her- foringjastjórnarinnar í Búrma, segir dómsúrskurð um 18 mán- aða framlengingu stofufangelsis hennar engan veginn réttlátan. Suu Kyi ætlar að áfrýja dómn- um Hún hefur verið í stofufang- elsi á heimili sínu samfleytt síðan 2003, en átti að losna í byrjun júní. Dómstóll komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að hún hefði skömmu áður brotið skilmála fangavistarinnar með því að veita húsaskjól Bandaríkjamanni sem hafði að eigin frumkvæði komist inn á heimili hennar. Her- foringjastjórnin hefur boðað til kosninga á næsta ári, en dómur- inn tryggir að hún verði í stofu- fangelsi fram yfir þær kosningar. - gb Aung San Suu Kyi: Segir ranglæti dómsins algert ÆTLAR AÐ ÁFRÝJA Aung San Suu Kyi mótmælir dómsúrskurði. NORDICPHOTOS/AFP ÍRAN, AP Forseti íranska þings- ins hefur vísað á bug ásökunum um að írönskum stjórnarand- stæðingum hafi verið nauðgað í fangelsum. Fyrrum forsetaframbjóðandinn Mahdi Karroubi staðhæfði um helgina að bæði konum og körlum, sem handtekin voru í mótmælum undanfarnar vikur, hafi verið nauðgað af fangavörðum. Ali Larijani, forseti þingsins, sagði í gær að málið hefði verið kannað og væri ekki á rökum reist. Það hefur þó valdið miklum deilum í landinu, enda stutt síðan viður- kennt var að fangar hefðu verið beittir ofbeldi í varðhaldi. - þeb Stjórn vísar ásökunum á bug: Írönskum föng- um nauðgað HEILBRIGÐI Allt skólastarf í landinu getur hafist með eðlilegum hætti á næstunni þrátt fyrir heims- faraldur svínaflensu en 112 hafa nú greinst með flensuna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá landlæknisembættinu. Þótti nauðsynlegt að taka þetta sérstaklega fram vegna fyrir- spurna frá skólastjórnendum, foreldrafélögum og fleirum um möguleg áhrif inflúensufarald- ursins á starfsemi skóla á kom- andi haustönn. Sóttvarnarlæknir áréttar í til- kynningunni að inflúensufarald- urinn sé tiltölulega vægur. Unnið er að viðbragðsáætlun í skólum landsins og eru skólastjórnendur hvattir til að halda hreinlætismál- um á lofti og þá sérstaklega hand- þvotti. Ef nemandi veikist, þannig að einkenni benda til inflúensu er honum ráðlagt að halda sig heima í sjö daga frá upphafi veikinda. Af þeim 112 svínaflensutilfell- um sem greinst hafa hér á landi er 61 karl og 51 kona. Flestir eru á aldrinum 15-29 ára. Framvegis verða tölulegar upplýsingar um inflúensufaraldurinn hér á landi uppfærðar vikulega á heimasíð- unni www.influensa.is en hingað til hafa tilkynningar borist þri- svar til fjórum sinnum í viku. - vsp Allt skólastarf getur hafist með eðlilegum hætti á næstunni: Leggja áherslu á handþvott nema HARALDUR BRIEM Sóttvarnalæknir segir að ef nemandi beri einkenni inflúensu eigi hann að halda sig heima í sjö daga. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 700 fengu matargjafir Um sjö hundruð manns leituðu til Mæðrastyrksnefndar og Fjölskyldu- hjálpar Íslands í gær. Þá var mat úthlutað í fyrsta skipti síðan í júní, en sumarlokanir hafa verið hjá báðum hjálparsamtökunum. SAMFÉLAGSMÁL GENGIÐ 12.08.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 234,4149 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 127,58 128,18 209,91 210,93 180,50 181,50 24,242 24,384 20,46 20,58 17,495 17,597 1,3292 1,3370 197,97 199,15 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.