Fréttablaðið - 13.08.2009, Blaðsíða 49
FIMMTUDAGUR 13. ágúst 2009 33
Ný tónleikamynd með
hinum sáluga Michael
Jackson verður heims-
frumsýnd föstudaginn
30. október, þar á meðal
í Smárabíói og Laugarás-
bíói. Myndin nefnist This
Is It og er framleidd af
Sony Pictures og Sony
Music í fullri samvinnu
við umsjónarmenn dánar-
bús Jacksons. Hún byggir
á hundruðum æfingatíma
sem og einstöku myndefni sem náðist baksviðs þegar popparinn
var að undirbúa tónleikaröð sína í London. Í myndinni má sjá nokk-
ur vel valin atriði í þrívídd, viðtöl við nokkra af nánustu vinum og
samstarfsfélögum Jacksons auk þess sem hún varpar ljósi á stór-
brotinn feril eins merkasta tónlistarmanns allra tíma.
Jackson á Íslandi
MICHAEL JACKSON Ný tónleikamynd með
Michael Jackson verður sýnd á Íslandi í
október.
Hitakútur hefur gefið út smáskífulagið
Palli Sveins sem er tekið af plötunni Ástin
Míní. Lagið er ástaróður til flugvélarinnar
Páls Sveinssonar TF-NPK og hefst það á
því að vélin hefur sig á loft. Páll Sveinsson,
trommari Í svörtum fötum, aðstoðaði Hita-
kút við gerð plötunnar og var lagið einnig
samið undir áhrifum frá honum. „Þó svo að
það sé ekki verið að syngja um hann viður-
kennum við að hann eigi smá í þessu lagi,“
segir Sigurjón Sveinsson úr Hitakúti. Hann
segir að þetta sé í fyrsta sinn sem flugvél
semji grunn að lagi. „Við settum hana fram-
an á lagið og þá var þetta bara komið. Við
vissum að svona ætti þetta að vera.“
Hitakútur fékk samþykki frá Þristavina-
félaginu, Icelandair og Landgræðslunni til
að nota nafn vélarinnar í laginu, sem hefur
hljómað bæði á Rás 2 og Suðurlandi FM
undanfarna daga. -fb
Flugvél í nýju lagi Hitakúts
HJÁ PÁLI SVEINSSYNI Hitakútur hjá flugvélinni Páli Sveinssyni sem er
umfjöllunarefni lagsins Palli Sveins.
Tónlistarmennirnir Klive og
Oculus hafa verið valdir til þátt-
töku í verkefninu Norðrinu sem
snýst um að koma íslenskri tón-
list á framfæri í Þýskalandi. Kira
Kira og Gus Gus leiða verkefnið
í september og október. Klive,
sem gaf í fyrra út plötuna Sweaty
Psalms, fer út á sama tíma og
Kira Kira og verður þetta fyrsta
tónleikaferð hans um Þýska-
land. Oculus, sem hefur getið sér
gott orð í danstónlistarheimin-
um, ferðast síðan með Gus Gus.
Þetta verður fyrsta skipulagða
tónleikaferð hans.
Tveir bætast
við Norðrið
KLIVE Úlfur Hansson, eða Klive, spilar í
Þýskalandi í september ásamt Kira Kira.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Breska hljómsveitin The Verve
er hætt störfum í þriðja sinn.
Aðeins eru nokkrir mánuðir
síðan gítarleikarinn Nick
McCabe sagði að bandið væri
komið í frí. Nú er svo komið að
McCabe og bassaleikarinn Simon
Jones tala ekki lengur við söngv-
arann Richard Ashcroft.
Breska blaðið Mirror segir tví-
menningana telja að Ashcroft
hafi notað endurkomu The Verve
til að auglýsa eigin sólóferil.
Herma sögur að þeir séu alfar-
ið búnir að gefa Verve upp á
bátinn og hafi stofnað
nýja hljómsveit. Hún
heitir The Black
Ships og
upptök-
ur á
fyrstu
plöt-
unni
eru
þegar
hafn-
ar.
Hættir í
þriðja sinn
BÚIÐ SPIL
Hljómsveitin hans
Richards Ashcroft,
The Verve, er
endanlega búin
að leggja upp
laupana.
Nú í Loftkastalanum
!
Sýningar hefjast 28. á
gúst*
* Miðaverð rennur
óskert til söfnunar s
em Edda Heiðrún,
ásamt fleirum, ste
ndur fyrir til uppbyg
gingar á Grensásde
ildinni.
*Styrktarsýn
ing
Föstudaginn 28. ágúst kl. 20.00*
Sunnudaginn 30. ágúst kl. 20.00
Föstudaginn 04. september kl. 20.00
Laugardaginn 05. september kl. 20.00
Fimmtudaginn 10. september kl. 20.00
Föstudaginn 11. september kl. 20.00
GRUMPY OLD WOMEN LIVE
Leikfélag Akureyra
r kynnir