Fréttablaðið - 13.08.2009, Blaðsíða 25
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Mér finnst þetta góð blanda. Ég
fer oft í þessi föt þegar ég klæði
mig upp á,“ segir Rúna Sigurðar-
dóttir viðskiptafræðinemi. „Mér
finnst kjóllinn sérstaklega sýna
strauminn í tískunni í dag. Gagn-
sæ efni eru í tísku.“
Rúna segist oft nota fötin. „Ég
fékk jakkann fyrir fjórum árum
og mér finnst hann enn þá jafn
flottur. Ég vinn mikið með Oro-
blu-sokkabuxur og á stórt safn
af þeim. Kjóllinn er nýr en ég hef
notað hann mikið. Skórnir eru
meira spari. Þetta eru gullskór og
ekki endilega fyrir íslenskt veður-
far,“ útskýrir Rúna sem segist eiga
þá með mömmu sinni sem fékk þá
í Eistlandi.
Innt eftir því hvort Rúna eigi
fleiri föt með mömmu sinni segir
hún: „Við deilum helst skóm. Mik-
ill aldursmunur er á okkur þannig
að við höfum ólíkan smekk en ætli
ég fái ekki tískuáhugann frá for-
eldrum mínum,“ segir Rúna. Hefur
pabbi þinn þá líka áhuga á tísku?
„Já, mikinn. Hann hugsar mikið um
merki og föt. Það er mjög skemmti-
legt,“ segir Rúna hlæjandi.
Rúna segist sjálf alltaf hafa
haft áhuga á tísku. „Mér finnst
gaman að hugsa um í hverju ég á
að vera og hverju aðrir eru í. Ég
hef gaman af götutísku. Mér finnst
langskemmtilegast að fylgjast með
í hverju fólk gengur dags daglega,
ekki endilega að skoða hátískuna,“
segir Rúna og heldur áfram: „Ég
skoða mikið tískublogg þar sem
stelpur á Íslandi og erlendis tala
um tísku,“ upplýsir Rúna og bætir
við að nýlega hafi hún stofnað
tískublogg á síðunni www.fashion-
flux.blogspot.com.
Rúna segir stíl sinn vera mjög
breytilegan. „Hann fer algjörlega
eftir því í hvernig skapi ég er og
náttúrulega veðri. Ég get ekki
sagt að ég hafi einn ákveðinn stíl,“
segir Rúna sem að sögn eignaðist
ekki buxur fyrr en hún varð tólf
ára. „Ég var þekkt fyrir að vera
alltaf í pilsum og kjólum og fékk
mikið af fötum send frá frænkum
mínum í Bandaríkjunum.“
martaf@frettabladid.is
Eignaðist buxur tólf ára
Rúna Sigurðardóttir deilir áhuga sínum á tísku með foreldrum sínum. Hún gengur í fötum af mömmu
sinni, finnst skemmtilegt að pabbi hennar hugsi um tískumerki og hefur sjálf áhuga á götutísku.
Rúna segist eiga mikið af sokkabuxum með mismunandi munstrum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ANTÍKLOKKAR Eyrnalokkarnir Magnetic Memories eftir fatahönn-
uðinn Bryndísi Sveinbjörnsdóttur eru búnir til úr segulbandi og antík-
perlum og fást í fjölmörgum litum. Útsölustaði er hægt að finna með
því að slá inn leitarorðin Magnetic Memories á Facebook.