Fréttablaðið - 13.08.2009, Blaðsíða 39
FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 2009
Djasshátíð Reykjavíkur stendur
fyrir Djasssmiðju í samvinnu
við Tónlistarskóla FÍH, Gerðu-
berg og Kjarvalsstaði og styrk-
ir Tónlistarsjóðurinn Kraumur
verkefnið. Smiðjan er hins veg-
ar hugarfóstur Leifs Gunnars-
sonar kontrabassaleikara.
„Smiðjan er hugsuð fyrir unga
fólkið og vildi ég skapa því vett-
vang á hátíðinni og útbúa eitt-
hvert verkefni fyrir allt þetta
unga og efnilega fólk sem sprett-
ur upp eins og gorkúlur í kringum
okkur,“ segir Leifur, sem útskrif-
aðist frá Tónlistarskóla FÍH síð-
astliðið vor.
„Ég geri mér ekki alveg grein
fyrir því hvað kemur út úr þessari
djasssmiðju, þar sem við gefum
leiðbeinendunum nokkuð frjálsar
hendur, en það verður eflaust eitt-
hvað magnað,“ segir hann spennt-
ur. Þátttakendur eru ungt fólk sem
hefur starfrækt hljómsveitir eða
tekið þátt í vísi að slíku. „Við vilj-
um gefa þeim tækifæri á að forma
eitthvað sem þau hafa unnið að.
Þátttakendur eru til að mynda
Kvartett Leifs, Transkvintett og
Reginfirra.“
Leiðbeinendurnir eru ekki
af verri endanum en þeir koma
allir fram á djasshátíðinni og eru
meðal þeirra fremstu í sinni röð.
„Þetta eru fimm leiðbeinendur.
Jim Black er trommuleikari frá
Bandaríkjunum, Hilmar Jens-
son gítarleikari verður til taks
og Olivier Manoury bandóníum-
leikari leiðbeinir líka, en band-
óníum er svona argentínsk harm-
onikka eða dragspil. Benjamin
Koppel sem leikur á altsaxófón
verður á staðnum auk bandaríska
bassaleikarans Johns Estes sem
kemur að spila með Þorvaldi Þór
Þorvaldssyni. Hann ætlar að vera
einn morgun með okkur,“ útskýr-
ir Leifur áhugasamur og nefnir að
verið sé að nýta mannskapinn sem
komi fram á hátíðinni. „Við ætlum
að reyna að kreista eitthvað út
úr þeim,“ segir hann kíminn og
bætir við að tækifæri sem þetta sé
ómetanlegt. „Þetta er á tilrauna-
plani núna en í framtíðinni sé ég
smiðjuna fyrir mér á alþjóðlegum
vettvangi, jafnvel samnorrænum,
þar sem erlendum þátttakendum
er boðið að vera með á sömu for-
sendum. Það gæti verið vísir að
tengslaneti og kynning á Íslandi
sem áfangastað fyrir unga djass-
leikara. Þetta passar mjög vel við
hátíðina.“
Djasssmiðjan stendur yfir frá
17. til 19. ágúst og er dagskrá
hennar auglýst á www.reykjavi-
kjazz.is. „Smiðjunni lýkur með
tónleikum á Rosenberg en ann-
ars eru líka í boði hádegistónleik-
ar alla dagana í Gerðubergi sem
eru ókeypis,“ segir Leifur og hvet-
ur alla til að mæta. - hs
Djasssmiðja unga fólksins
Leifur Gunnarsson kontrabassaleikari með hljóðfæri sínu. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI
„Myndlistarsýningin Djassóður
er í tilefni af tuttugu ára afmæli
Djasshátíðar Reykjavíkur og er
einungis í boði þessar vikur sem
djasshátíðin stendur yfir,“ segir
Hafþór Yngvason, safnstjóri
Listasafns Reykjavíkur, en sýn-
ingin verður opnuð á Kjarvals-
stöðum sunnudaginn 16. ágúst
klukkan 16 með tónleikum.
„Þar má finna verk eftir
Tryggva Ólafsson, Erró, Sig-
urð Örlygsson, Sigurbjörn Jóns-
son og Grétar Reynisson en verk-
in eiga það öll sameiginlegt að
tengjast djasstónlistinni á einn
eða annan hátt,“ segir Hafþór og
nefnir dæmi: „Ein myndin eftir
Erró er til dæmis af Miles Davis
og finna má abstraktverk eftir
Sigurbjörn sem sýna djasstríó
og hljómsveitir, eitt verk Grétars
sýnir píanóleikara, Tryggvi hefur
málað Louis Armstrong og svo
framvegis.“
Hafþór fékk hugmyndina að
sýningunni í tengslum við heim-
sóknir á vinnustofur myndlistar-
manna. „Oft er það svo þegar ég
hef heimsótt vinnustofur mynd-
listarmanna, sérstaklega málara,
að þeir eru með djass á fóninum.
Þetta er þannig vinna að þeir eru
mikið einir og hlusta stöðugt á
tónlist á meðan þeir eru að mála.
Oftar en ekki hlusta þeir á Miles
Davis eða einhvern djassara. Þetta
veitir þeim innblástur og fannst
mér tilvalið að vinna eitthvað úr
þessu,“ segir hann og bætir við:
„Ég talaði við nokkra málara sem
höfðu allir gert einhvers konar
virðingarvott til djassmeistar-
anna en þess vegna kallast sýn-
ingin nú Djassóður þar sem þetta
er óður listamanna til þeirra. Svo
er orðið djassgeggjarar mikið
notað um þá sem sökkva sér í
djass og þetta eru líka óðir djass-
geggjarar,“ segir hann og brosir.
- hs
Djassóður á Kjarvalsstöðum
Mynd Errós af Miles Davis.