Fréttablaðið - 13.08.2009, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 13.08.2009, Blaðsíða 36
 13. ÁGÚST 2009 FIMMTUDAGUR Sú saga gengur nú fjöllum hærra í netheimum að Facebook muni bráðlega setja á laggirnar vefsíðu sem líkjast mun hinni vinsælu Twitter-síðu. Muni hún bera nafn- ið Facebook Lite. Síðan mun vera einfaldari út- gáfa af Facebook þar sem aðeins koma fram einfaldar upplýsingar og streymi af skilaboðum. Telja því margir að hún muni líkjast Twitter þó að talsmenn Facebook vilji ekki kannast við það. Facebook með nýja síðu KYNNING Hjá Tölvulistanum er mikið lagt upp úr því að veita viðskiptavinum góða þjónustu og ráðgjöf varðandi val á tölvum. Gunnar Freyr Jónsson, fram- kvæmdastjóri Tölvulistans, segir hlutverk sölumannsins afar mikilvægt. „Þyngd, útlit og rafhlöðuending eru hugtök sem allir skilja, en svo er þessi frumskógur af tölum og tækni- máli sem ekki eru allir læsir á. Þar leikur sölumaðurinn lyk- ilhlutverk, því hann verður að vera fær í að útskýra slíka hluti á mannamáli, og ekki síður að átta sig á því hverjar þarfir við- skiptavinarins eru,“ útskýrir Gunnar. „Viðskiptavinurinn á ekki að ganga út með tölvu sem hann þarf ekki.“ Mikill munur er á þörfum not- enda. „Viðskiptavinir okkar eru til dæmis fólk frá arkitekta- og verkfræðistofum, sem þarf öfl- ugar vélar, leikjaspilarar sem þurfa mikinn búnað og allt yfir í fólk sem vill fallega vél til að hafa með á kaffihús og lesa fréttasíðurnar,“ útskýrir Gunn- ar. Til að koma til móts við þess- ar mismunandi þarfir er gott úrval afar mikilvægt, og af því státar Tölvulistinn, sem er með umboð fyrir Asus, Acer, MSI og Toshiba. „Við eigum mjög góð og bein samskipti við þessa fram- leiðendur og getum þess vegna boðið upp á þjónustuhlutann líka, enda viljum við að þjón- ustan sé jafn góð fyrir og eftir kaup,“ segir Gunnar. Tölvulist- inn er vottaður þjónustuaðili fyrir alla þessa framleiðendur, en til þeirra eru gerðar mikl- ar kröfur. „Toshiba hringir til dæmis í viðskiptavini okkar til að athuga hvernig við höfum staðið okkur,“ útskýrir Gunnar. Fartölvuflóran hefur breyst mikið á síðustu árum. „Tölvur eru orðnar tískuvara í dag. Nú eru komin hönnunarteymi hjá öllum þessum framleiðendum og aug- ljóst að útlitið selur,“ segir Gunn- ar, sem spáir því að þróun netsam- skipta í framtíðinni muni auka þörfina á fartölvum enn frekar. Þráðlausar nettengingar verða í boði um allt og einfalt að komast á netið. „Ég hugsa að fólk verði þá oftar en ekki með vélina með sér – til að komast á netið hvar og hvenær sem er,“ segir hann. Góð ráðgjöf mikilvæg Gunnar Freyr Jónsson, framkvæmdastjóri Tölvulistans, leggur mikla áherslu á að viðskiptavinir fái góða þjónustu og ráð- gjöf frá sölumönnum fyrirtækisins. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Til vinstri er tíu tommu MSI Wind-fartölva sem er afar hentug fyrir þá sem vilja kippa tölvunni með á kaffihúsið. Þessi örþunna MSI-vél til hægri ætti að falla vel í kramið hjá þeim sem eru mikið á ferðinni. ● TÖLVUAÐSTOÐ VIÐ BRESKA SÍGAUNA Frá árinu 2004 hefur yfir þúsund börnum sígauna í Bretlandi verið gefin fartölva til að hjálpa þeim við námið. Reiknað er með að búnaður og þráðlaust net- samband kosti ríkið um 750 pund á hvern nemanda eða tæpar 160.000 íslenskar krónur. Breskir skattgreiðendur hafa því greitt um þrjú hundr- uð þúsund pund á ári, rúmar 63 milljónir. Fartölvugjöfin er hluti hins rafræna og hreyfanlega verkefnis E-LAMP, sem hannað er til að bjóða upp á fjarmenntun fyrir börn sígauna sem skipta oft um skóla. Könnun sem samband kennara sígaunabarna stóð fyrir hefur leitt í ljós að fullorðnir sígaunar nýta tölvur barna sinna til að bóka frí erlendis og versla á netinu. „Bretar trúa á jafnræði. Það er ekki sann- gjarnt að lítill hópur búi við þau forréttindi að nýta almenningsþjónustu á meðan útivinnandi fjölskyldur eiga í vandræðum með að borga reikninga sína,“ sagði Bob Neill, talsmaður ríkisstjórnarinnar. - mmf
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.