Fréttablaðið - 13.08.2009, Blaðsíða 35
FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 2009
KYNNING
Vinsældir Apple-tölvanna
hafa farið stigvaxandi hér
á landi á undanförnum
árum. Lág bilanatíðni, falleg
hönnun og ekki síst algjör
skortur á vírusum eru á
meðal þess sem höfðar til
kaupenda.
„Apple á Íslandi er með stærstu
markaðshlutdeildina á Norður-
löndunum,” segir Ásgeir Jón Guð-
bjartsson hjá fyrirtækjasviði
Apple, sem segir sífellt fleiri færa
sig yfir í Apple-tölvur, bæði ein-
staklinga og fjölskyldur í leit að
heimilistölvum.
Skólafólk hefur tekið Apple
opnum örmum og Makkar eru til
að mynda notaðir í Menntaskóla
Borgarfjarðar, þar sem allir nýir
nemendur fá Apple-fartölvu til
umráða meðan á námi stendur.
„Það verkefni er á þriðja ári núna
og hefur gefist mjög vel. Bilana-
tíðnin hjá Makkanum er líka mjög
lág. Við seldum Háskóla Íslands til
dæmis hundrað tölvur í tölvuver
skólans í fyrra. Við höfum feng-
ið þrjár í viðgerð, og í einu tilvik-
anna var það vegna þess að ein-
hver hafði troðið einhverju inn í
DVD-spilarann,“ segir Ásgeir.
Öllum Apple-tölvum fylg-
ir iLife-pakkinn, sem býður
upp á möguleika til að klippa
myndbönd, semja tónlist,
vinna með og flokka mynd-
ir og setja upp vefsíður. Raf-
hlöðurnar endast allt að átta
klukkustundum og tölvurnar
eru búnar nýjustu tækni, svo
sem innbyggðri vefmyndavél,
innbyggðum hreyfiskynjara
og nýjustu móðurborðum og
örgjörvum.
Skólafólk er heldur ekki
þeir einu sem færa sig
yfir í eplamerkið þekkta.
„Áður fyrr var fólk
kannski eitthvað smeykt
við að skipta yfir í Makka,
þegar tölvurnar voru ekki alveg
nógu vel samhæfðar við PC. Það
hefur hins vegar gjörbreyst og
þetta eru þess vegna gamlir for-
dómar,“ segir Ásgeir. „Ef fólk er
eitthvað smeykt bjóðum við líka
upp á ókeypis námskeið í verslun-
inni okkar að Laugavegi, og eftir
klukkutíma þar er sú hræðsla
alveg horfin,“ segir hann. Þar að
auki er hægt, gegn vægu gjaldi,
að fá aðstoð „einkaþjálfara“ til að
leiða mann í allan sannleika um
nýju vélina.
Einkaþjálfun hjá Apple
Lág bilanatíðni og falleg hönnun eru á meðal þess sem gerir Apple-tölvurnar
vinsælar, að sögn Ásgeirs Jóns Guðbjartssonar.
Apple-tölvurnar eru búnar nýjustu tækni.
● FARTÖLVUBANN Á ÁLAGSTÍMUM Á
KAFFIHÚSUM Margir kaffihúsaeigendur í New York
hafa ákveðið að letja fólk til að sitja á kaffihúsum með
fartölvur. Fartölvunotendur mega kaupa kaffi en fljót-
lega taka þeir pláss og rafmagn.
Skilti á litlu kaffihúsi í Brooklyn segir: „Kæru viðskipta-
vinir. Við gleðjumst yfir því að ykkur líki svo vel við
okkur að þið viljið eyða deginum hér en fólk þarf að
borða og við það situr fólk.“ Kaffihúsið hefur bannað
fartölvunotkun á álagstímum.
Sumir kaffihúsaeigendur hafa meira að segja tekið
upp á því að líma fyrir rafmagnsinnstungur. „Ég ráðlegg
ykkur að hlaða tölvurnar áður en þið komið hingað.
Hættið að nota rafmagnið mitt,“ sagði Bruce Taz, eig-
andi kaffihússins Brotna bollans, sem er einn þeirra.
Aðrir bjóða þó fartölvunotendur velkomna því þá
líta kaffihúsin út fyrir að vera full af fólki og einhverjir
hafa til dæmis fjölgað kaffihúsum. „Ég þurfti að fjölga
útibúum og auka internethraðann í byrjun júní,“ sagði
kaffihúsaeigandinn Sebastian Simsch. - mmf
Á mörgum kaffihúsum New York-borgar situr fólk heilu
dagana með fartölvurnar en kaupir einungis einn bolla.
FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR