Fréttablaðið - 13.08.2009, Side 39

Fréttablaðið - 13.08.2009, Side 39
FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 2009 Djasshátíð Reykjavíkur stendur fyrir Djasssmiðju í samvinnu við Tónlistarskóla FÍH, Gerðu- berg og Kjarvalsstaði og styrk- ir Tónlistarsjóðurinn Kraumur verkefnið. Smiðjan er hins veg- ar hugarfóstur Leifs Gunnars- sonar kontrabassaleikara. „Smiðjan er hugsuð fyrir unga fólkið og vildi ég skapa því vett- vang á hátíðinni og útbúa eitt- hvert verkefni fyrir allt þetta unga og efnilega fólk sem sprett- ur upp eins og gorkúlur í kringum okkur,“ segir Leifur, sem útskrif- aðist frá Tónlistarskóla FÍH síð- astliðið vor. „Ég geri mér ekki alveg grein fyrir því hvað kemur út úr þessari djasssmiðju, þar sem við gefum leiðbeinendunum nokkuð frjálsar hendur, en það verður eflaust eitt- hvað magnað,“ segir hann spennt- ur. Þátttakendur eru ungt fólk sem hefur starfrækt hljómsveitir eða tekið þátt í vísi að slíku. „Við vilj- um gefa þeim tækifæri á að forma eitthvað sem þau hafa unnið að. Þátttakendur eru til að mynda Kvartett Leifs, Transkvintett og Reginfirra.“ Leiðbeinendurnir eru ekki af verri endanum en þeir koma allir fram á djasshátíðinni og eru meðal þeirra fremstu í sinni röð. „Þetta eru fimm leiðbeinendur. Jim Black er trommuleikari frá Bandaríkjunum, Hilmar Jens- son gítarleikari verður til taks og Olivier Manoury bandóníum- leikari leiðbeinir líka, en band- óníum er svona argentínsk harm- onikka eða dragspil. Benjamin Koppel sem leikur á altsaxófón verður á staðnum auk bandaríska bassaleikarans Johns Estes sem kemur að spila með Þorvaldi Þór Þorvaldssyni. Hann ætlar að vera einn morgun með okkur,“ útskýr- ir Leifur áhugasamur og nefnir að verið sé að nýta mannskapinn sem komi fram á hátíðinni. „Við ætlum að reyna að kreista eitthvað út úr þeim,“ segir hann kíminn og bætir við að tækifæri sem þetta sé ómetanlegt. „Þetta er á tilrauna- plani núna en í framtíðinni sé ég smiðjuna fyrir mér á alþjóðlegum vettvangi, jafnvel samnorrænum, þar sem erlendum þátttakendum er boðið að vera með á sömu for- sendum. Það gæti verið vísir að tengslaneti og kynning á Íslandi sem áfangastað fyrir unga djass- leikara. Þetta passar mjög vel við hátíðina.“ Djasssmiðjan stendur yfir frá 17. til 19. ágúst og er dagskrá hennar auglýst á www.reykjavi- kjazz.is. „Smiðjunni lýkur með tónleikum á Rosenberg en ann- ars eru líka í boði hádegistónleik- ar alla dagana í Gerðubergi sem eru ókeypis,“ segir Leifur og hvet- ur alla til að mæta. - hs Djasssmiðja unga fólksins Leifur Gunnarsson kontrabassaleikari með hljóðfæri sínu. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI „Myndlistarsýningin Djassóður er í tilefni af tuttugu ára afmæli Djasshátíðar Reykjavíkur og er einungis í boði þessar vikur sem djasshátíðin stendur yfir,“ segir Hafþór Yngvason, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, en sýn- ingin verður opnuð á Kjarvals- stöðum sunnudaginn 16. ágúst klukkan 16 með tónleikum. „Þar má finna verk eftir Tryggva Ólafsson, Erró, Sig- urð Örlygsson, Sigurbjörn Jóns- son og Grétar Reynisson en verk- in eiga það öll sameiginlegt að tengjast djasstónlistinni á einn eða annan hátt,“ segir Hafþór og nefnir dæmi: „Ein myndin eftir Erró er til dæmis af Miles Davis og finna má abstraktverk eftir Sigurbjörn sem sýna djasstríó og hljómsveitir, eitt verk Grétars sýnir píanóleikara, Tryggvi hefur málað Louis Armstrong og svo framvegis.“ Hafþór fékk hugmyndina að sýningunni í tengslum við heim- sóknir á vinnustofur myndlistar- manna. „Oft er það svo þegar ég hef heimsótt vinnustofur mynd- listarmanna, sérstaklega málara, að þeir eru með djass á fóninum. Þetta er þannig vinna að þeir eru mikið einir og hlusta stöðugt á tónlist á meðan þeir eru að mála. Oftar en ekki hlusta þeir á Miles Davis eða einhvern djassara. Þetta veitir þeim innblástur og fannst mér tilvalið að vinna eitthvað úr þessu,“ segir hann og bætir við: „Ég talaði við nokkra málara sem höfðu allir gert einhvers konar virðingarvott til djassmeistar- anna en þess vegna kallast sýn- ingin nú Djassóður þar sem þetta er óður listamanna til þeirra. Svo er orðið djassgeggjarar mikið notað um þá sem sökkva sér í djass og þetta eru líka óðir djass- geggjarar,“ segir hann og brosir. - hs Djassóður á Kjarvalsstöðum Mynd Errós af Miles Davis.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.