Fréttablaðið - 13.08.2009, Page 16
16 13. ágúst 2009 FIMMTUDAGUR
F
jörutíu ár eru um
helgina liðin frá einni
frægustu tónlistar-
hátíð allra tíma, Wood-
stock. Dagana 15. til
18. ágúst 1969 komu
um eða yfir 400 þúsund manns
saman við bæinn Bethel í New
York-ríki í Bandaríkjunum til
þess að hlusta á 32 tónlistarmenn
og hljómsveitir.
Upphafið að öllu
Michael Lang og Artie Korn-
feld áttu hugmyndina að hátíð-
inni og fengu þá John Roberts
og Joel Rosenman til liðs við sig.
Upphaflega var áætlað að byggja
upptökuver auk þess að halda
tónlistarhátíð, en svo var ákveðið
að byrja á hátíðinni. Snemma árs
1969 höfðu íbúar í nágrenni við
áætlaðan tónleikastað haft veður
af því hvað til stæði og hófu bar-
áttu gegn hátíðinni. Að lokum var
mönnunum synjað um leyfi til að
halda tónleikana, en fundu í kjöl-
farið mjólkurbúseigandann Max
Yasgur, sem átti stórt land í Bet-
hel. Ákveðið var að halda tónleik-
ana þar.
Strax í upphafi hátíðarvikunnar
fór fólk að streyma á tónleikastað-
inn og á miðvikudegi voru um sex-
tíu þúsund manns mættir. Upp-
haflega höfðu miðar verið seldir á
hátíðina, um 186 þúsund talsins, og
bjuggust tónleikahaldararnir fjór-
ir því við um 200 þúsund manns
á hátíðina. Á föstudeginum varð
fljótt ljóst að mun fleiri myndu
mæta. Allir vegir í grenndinni
stífluðust og þurfti því að flytja
flesta tónlistarmennina á svæð-
ið í þyrlum. Þar sem aldrei hafði
verið klárað að setja upp hlið og
girðingar var á endanum ákveð-
ið að tónleikarnir yrðu ókeypis.
Síðar greindi John Roberts frá því
að það hafi tekið fjórmenningana
ellefu ár að koma út á sléttu.
Tónleikarnir sjálfir
Það var Richie Havens sem hóf
tónleikahátíðina, rétt eftir klukk-
an fimm föstudaginn 15. ágúst
1969. Tónleikahaldinu það kvöld-
ið lauk upp úr klukkan tvö aðfara-
nótt laugardags. Tónleikar hófust
á ný rétt eftir hádegi og stóðu til
dögunar á sunnudegi. Á sunnudegi
áttu tónleikarnir að hefjast nokkru
eftir hádegi en vegna mikilla rign-
inga var þeim frestað fram eftir
miðjum degi. Þeim lauk svo ekki
fyrr en klukkan var að ganga níu
á mánudagsmorgni, með tónleik-
um Jimi Hendrix.
Fjöldinn allur af þekktum tón-
listarmönnum kom fram á hátíð-
inni. Sem dæmi má nefna The Who,
Canned Heat, The Grateful Dead,
Creedence Clearwater Revival,
Janis Joplin, Jefferson Airplane,
Joe Cocker og Crosby, Stills, Nash
and Young. Þó afþökkuðu einnig
margir tónlistarmenn boð um að
spila á hátíðinni. Þeirra á meðal
voru Led Zeppelin, Bob Dylan,
Joni Mitchell og The Doors.
Vandamálin við fjöldann
Ekki hafði verið gert ráð fyrir
þeim gríðarlega fjölda fólks
sem mætti, eins og áður hefur
komið fram. Hreinlætisaðstæður
voru slæmar og matarbirgðir af
skornum skammti, auk þess sem
mikið rigndi. Það kom þó ekki að
sök, þar sem þessi gríðarlegi fjöldi
fólks kom í raun og veru saman
undir formerkjum hátíðarinnar um
frið og ást. Ótrúlegt þótti eftir á að
svo mikill fjöldi ungmenna hefði
komið saman í svo langan tíma án
mikilla vandræða. Tvö dauðsföll
urðu þó á hátíðinni, annað af völd-
um of stórs skammts af eiturlyfj-
um. Hitt varð þegar traktor keyrði
yfir mann sem svaf í svefnpoka. Þá
hafa verið sögusagnir um að börn
hafi fæðst á hátíðinni, meðal ann-
ars eitt í bíl sem var fastur á leið-
inni á hátíðina. Það hefur þó aldrei
verið staðfest, en þó hefur komið
fram í nokkrum viðtölum að vissu-
lega hafi börn fæðst á hátíðinni. Þá
voru skrásett rúmlega 700 tilfelli
um fólk sem tók of stóra skammta
af eiturlyfjum á hátíðinni.
Hátíð friðar,
tónlistar og ástar
Um helgina verða fjörutíu ár liðin frá Woodstock, einni stærstu og
merkilegustu tónlistarhátíð allra tíma. Um 400 þúsund manns voru á
hátíðinni, sem varð eins konar táknmynd fyrir hippatímann. Þórunn
Elísabet Bogadóttir kynnti sér hátíðina.
BETHEL Talið er að yfir 400 þúsund manns hafi komið saman í Bethel dagana 15. til 18. ágúst 1969. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
RÚGBRAUÐ Volkswagen-sendibílarnir, sem voru kallaðar rúgbrauð á Íslandi, voru
vinsælar á þessum tíma. Þessir tónleikagestir völdu að sitja uppi á bíl sínum frekar
en í drullunni sem myndaðist vegna mikilla rigninga. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
JIMI HENDRIX Alls komu 32 flytjendur fram á hátíðinni. Jimi Hendrix var síðastur á
svið, og lauk sínum tónleikum um klukkan hálfníu á mánudagsmorgni.
NORDICPHOTOS/AFP
FRIÐUR OG TÓNLIST Hátíðin var haldin á blómatíma hippanna, undir formerkjum ástar og friðar. NORDICPHOTOS/AFP