Fréttablaðið - 13.08.2009, Síða 44

Fréttablaðið - 13.08.2009, Síða 44
28 13. ágúst 2009 FIMMTUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Mig vantar nöfn á fimm íslenskum rithöfundum og stuttan texta um þýðingu þeirra í íslenskri bókmenntasögu. Það ætti að vera auð- velt … Láttu vaða! Rólegur! Þetta er að koma … Gamla Notts County-kemp- an Gary Gutter spilaði 23 deildarleiki árið 1953 með nagla í hausnum! Hvernig tengist þetta íslenskum bókmenntum? Ég er ekki alveg viss um það sjálfur, það verður bara að segjast! Hvað erum við að fara að gera? Að moka snjóinn frá inn- keyrslunni, svo bíllinn komist út úr bílskúrnum. Skilið. Og hvað græði ég á þessu? Að ég og mamma þín getum látið líf okkar snú- ast um að keyra þig um bæinn. Ég er með. Þetta snýst allt um réttu hvatn- inguna. Nýársheit Ég vil ekki breyta neinu. Mér finnst bara gaman að baða Lóu. Það er allt gott við það! Leikföngin, sápukúlurnar... hláturinn... Reyndar væri gott að þurfa ekki að beygja sig svona mikið... H eitt! H eitt!Heitt! Ég var á Grænlandi síðastliðinn þriðju-dag í dagsferð til Kulusuk sem ég hafði unnið í einhverjum leik í sjónvarp- inu með tveimur öðrum. Ísbjörn varð því miður ekki á vegi okkar en þó voru nokkrir kynlegir kvistir í þessari stórskemmtilegu ferð. Við komum um hádegi að grænlensk- um tíma, vegna seinkunar, og þurftum að labba í 40 mínútur inn í 300 manna bæinn sem kenndur er við lakkríssúkkulaði frá sælgætisfyrirtækinu Kólus. Þar fórum við inn í hógværa minjagripabúð og slappa matvörubúð, sem þó seldi Kim´s-kartöflu- flögur sem ég hafði ekki séð lengi. Löbbuðum við um bæinn og heilsuðum upp á bæjar- búa og nokkra matarsvelta sleðahunda. Við okkur blasti sú undarlega sjón að strax við hádegisbilið voru Grænlend- ingarnir byrjaðir að drekka bjór og reykja á götum úti – svolítið annað en Íslendingar eiga að venjast á virkum degi. Leiðsögumaðurinn talaði um að tvö stærstu félagslegu vandamál Grænlands væru alkóhólismi og há sjálfsmorðstíðni en þetta virðast vera nokkuð samverkandi þættir í þessum litla bæ. Nýi kirkjugarður bæjarins, sem þurfti að byggja árið 1990 vegna plássleysis í þeim gamla, var við það að verða nokkuð pakkaður. Þrátt fyrir eymdina var ótrúlega gaman að sjá eyjuna. Flestir sem urðu á vegi okkar voru í góðu lagi og við hlustuðum á innfædda ævagamla konu syngja og dansa trommudans og fylgdumst með sjó- ara róa um á áttatíu ára gömlum kajak. Hefði ekki viljað skipta þessari ferð fyrir helgarferð á Strikinu. Enginn ísbjörn en nokkrir rónar NOKKUR ORÐ Víðir Smári Petersen

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.