Fréttablaðið - 13.08.2009, Síða 52

Fréttablaðið - 13.08.2009, Síða 52
36 13. ágúst 2009 FIMMTUDAGUR folk@frettabladid.is Söng- og leikkonan Jennifer Hudson eignaðist lítinn dreng á mánudaginn. Drengurinn er fyrsta barn Hudson og unnusta hennar Davids Otunga og hefur hlotið nafnið David Daniel Otunga Jr. Í viðtali við vinkonu Hudson, Aniku Noni, í tímaritinu People sagði hún bæði móður og barni heilsast vel. „Jennifer elskar börn svo hún á ekki eftir að vera í neinum vandræðum með móður- hlutverkið,“ sagði Noni. Hudson eign- aðist dreng Í MÓÐURHLUTVERKINU Söng- og leikkonan Jennifer Hudson eignaðist sitt fyrsta barn á mánudaginn. Leikkonan Katherine Heigl seg- ist ekki hafa gaman af að leika í hasarmyndum. Í myndinni Five Killers, sem verður sýnd á næsta ári, leikur hún hina nýgiftu Jen sem kemst að því að nágrannar hennar eru leigumorðingjar sem hafa verið ráðnir til að drepa hana og eiginmann hennar, leik- inn af Ashton Kutcher. „Ég er ekki hrifin af hasarmyndum. Það var frekar sársaukafullt að leika í þessari mynd því að ég er ótta- legur klaufi. Ég var alltaf að detta og fá skrámur. Ég er ekki byggð fyrir svona myndir,“ sagði Heigl. Hasar ekki skemmtilegur KATHERINE HEIGL Leikkonan hefur ekki gaman af að leika í hasarmyndum. Kona að nafni Claire Cruise heldur því fram að hún sé blóð- móðir barna Michaels Jackson. Konan heldur því einnig fram að hún og Michael séu foreldrar Connors Cruise, ættleidds sonar leikarans Toms Cruise og fyrr- verandi eiginkonu hans, Nicole Kidman. Hún sagði að Jackson hefði ákveðið að gefa barnið til ættleiðingar því að honum þótti húð hans of dökk. Aðeins eru nokkrir dagar síðan Bretinn Mark Lester, sem fór með hlutverk Olivers Twist í samnefndri mynd, sagðist ekki einungis vera guðfaðir Parisar Jackson, heldur líffræðilegur faðir hennar. Hver er móð- ir barnanna? Hjartaknúsarinn Leonardo DiCaprio hefur verið orðaður við ófáar fegurðardísir síðan slitnaði upp úr sambandi hans og fyrir- sætunnar Bar Rafaeli. Leikar- inn virðist þó ekki ætla að bregða út af vananum því að nú berast þær fregnir að hann hafi nælt sér í enn eina fyrirsætuna. Sú heppna heitir Anna Vjalítsyna og er rússnesk. Anna hefur verið andlit tískurisa á borð við Louis Vuitton, Prada og Ralph Lauren. Parið kynntist í London þar sem Leonardo var við tökur á nýjustu kvikmynd sinni. Leo með nýtt módel Nýrri EP-plötu frá hljómsveitinni Amiinu hefur verið lekið á Netið en hún var fyrr í sumar gefin út í afar takmörkuðu upplagi, eða fimm hundruð númeruðum ein- tökum. Á plötunni eru þrjú lög og er hún hugsuð sem nokkurs konar upphitun fyrir stóra plötu sem kemur líklega út á næsta ári. „Það er erfitt að stjórna svona plötum í þessum stafræna heimi,“ segir María Huld Markan Sig- fúsdóttir úr Amiinu um lekann. Hún bætir við að sú útgáfa sé í ekki jafngóð og sú sem þær gefa út og að listrænt umslagið fylgi vitaskuld ekki með. „Þetta er eitt- hvað sem allir eru að berjast við. Kannski bíður fólk spenntara eftir plötunni eftir að hafa heyrt þetta. En maður lifir ekki á loftinu. Maður þarf að fá eitthvað borgað fyrir það sem maður gerir.“ Amiina hefur verið dugleg við tónleikahald í sumar. Hún fór í tónleikaferð um Ítalíu í júní og um síðustu helgi spilaði hún á Írlandi. Einnig steig Amiina á svið í Bæjar- bíói fyrir skömmu ásamt Seabear. „Það er búið að vera mikið stuð og gaman að spila,“ segir María. Næst á dagskrá hjá sveitinni er að halda áfram undirbúningi nýju plötunnar. Eftir það tekur frí við þar sem ein stúlknanna á von á barni. - fb Nýrri EP-plötu lekið á Netið AMIINA Hljómsveitin Amiina gaf á dögunum út nýja EP-plötu með þremur lögum. „Við prófuðum að hafa svona dömumót í póker í sumar. Það tókst svo vel að við ákváðum að hafa þetta reglulegan við- burð í haust,“ segir Valur Sævarsson, skipuleggjandi Píupókermóts á póker- klúbbnum 53 á Gullöldinni í Grafarvogi. Næsta mót verður á laugardaginn klukk- an 14, en Píupókermót verða svo haldin einu sinni í mánuði í haust. „Þetta hefur verið svolítið stráka- sport, en maður veit að margar stelpur hafa verið að leika sér að spila. Með þessu erum við að reyna að virkja þær í að mæta í pókerklúbba, taka þátt í mótum og kljást við strákana á venjulegum vett- vangi, en þeim finnst kannski þægilegra að kljást við stelpur svona fyrst. Það komu um átján stelpur á síðasta Píupóker- mót, svo það voru tvö borð, en núna erum við að vonast eftir að ná fjórum borðum,“ útskýrir Valur og segir gríðarlega pókervakningu hafa orðið á Íslandi upp á síðkastið. „Það eru að mæta tugir manna á mót, en þar af eru kannski tvær stelp- ur af fimmtíu manns. Það kom fyrir núna um daginn, í fyrsta sinn síðan ég byrjaði að fylgjast með þessu, að það voru þrjár stelpur sem tóku þátt á fjörutíu manna móti og enduðu allar í fimm manna úrslitum, sem var mjög skemmtilegt,“ segir Valur. - ag Heldur pókermót fyrir dömur VINSÆLT SPORT Valur segir pókerinn ekki síður vera fyrir stelpur en stráka og vonast til að sjá sem flestar dömur á Píupókermótinu á laugardaginn. > BERST VIÐ LOTUGRÆÐGI Sharon Osbourne hefur barist við átröskun frá því að hún var ungl- ingur og segir að hún muni allt- af eiga í erfiðleikum með mat. Í viðtali við tímaritið Psycho- logies líkir hún sambandi sínu við mat við eiturlyfjafíkn eiginmanns síns, Ozzys Os- bourne. Hún segir að það hafi ýtt henni langt að vera lítil og feit, en Sharon hefur gengist undir fjölda fegrunaraðgerða í gegnum tíðina. „Þetta er hluti af göngum sem söfnin hafa staðið fyrir í sumar. Þetta verður síðasta gangan og er hún sérstaklega tileinkuð börn- um og verður sérstök áhersla lögð á leiki sem íslensk börn léku hér áður fyrr,“ segir Jón Páll Björns- son, hjá Minjasafni Reykjavíkur, um sérstaka leikjagöngu sem farin verður í kvöld. „Við viljum tengja nútímabörn sterkar við fortíðina og notum til þess leiki. Þetta verður væntan- lega kærkomin viðbót við leikja- safn barnanna. Gangan sjálf verð- ur mjög stutt því að við verðum upptekin við að leika okkur megn- ið af tímanum. Við ætlum að fara í útilegumannaleik sem er eins og samblanda af einni krónu og stórfiskaleik, vörðuleik og í leik- inn „að rísa upp frá dauðum“, en þar liggja menn flatir og eiga að reyna að standa upp án þess að beygja hnén.“ Jón Páll telur að leikir barna hafi mikið breyst í gegnum tíðina og telur að helsti vettvangur úti- leikja séu frímínútur grunnskól- anna. Safnast verður saman við Grófarhús klukkan 20.00 og mun gangan taka um klukkustund. - sm Leikir að gömlum sið Verslunarkeðjan NTC hefur til sölu nýjar vörur frá íslenska íþróttamerkinu Henson. Flíkurnar eru sam- starfsverkefni beggja aðila og er þetta í annað sinn sem fyrirtækin vinna saman að slíku verkefni, en fyrir nokkrum árum voru fram- leiddir sérstakir Henson- jakkar fyrir verslanir NTC. Það hefur gengið á ýmsu í sögu Henson-fyrirtækisins á 40 ára líftíma þess. Halldór Einarsson hefur mátt þola sveiflur í rekstri, svo djúpar að stundum leit ekki út fyrir að fyrirtækið myndi lifa af. Síðustu árin hefur gengið vel og nú er í annað sinn á skömmum tíma farið að framleiða gamla Henson- hönnun sem tískuvöru. Henson er aftur komið í tísku. Linda Borg Arnardóttir, fata- hönnuður og verslunarstjóri í Deres, er annar tveggja hönnuða sem komu að endurhönnun gömlu Henson-íþróttagallanna. Flíkurn- ar hafa verið til sölu í verslunun- um Deres og Sautján og að sögn Lindu hafa þær rokið út jafnóðum. „Ég og Sigrún Rut Hjálmarsdótt- ir hönnuðum flíkurnar með hlið- sjón af kúnnahópi verslananna og endurnotuðum gömul Hen- son-snið. Ég hannaði til að mynda íþróttabuxur með teygju undir ilinni eins og var svo vinsælt hér á árum áður,“ segir Linda. Halldór Einarsson er stofn- andi Henson-fyrirtækisins sem hefur verið starfrækt í fjörutíu ár. „Hér á árum áður var ástand- ið mun daprara en það er núna. Þó að menn tali um kreppu í dag þá er þetta hátíð miðað við það sem var þá. Þá var mikil vöntun á öllu og erfitt að verða sér úti um hluti. Ég ákvað því að framleiða vör- una hér heima frekar en að reyna að verða mér úti um hana erlend- is; svo keypti maður saumavél og byrjaði bara. Nafnið er svo búið til úr mínu eigin nafni; Halldór Einarsson,“ segir Halldór um til- urð Henson-merkisins. Hann segir tæknina hafa verið frumstæða til að byrja með og því hafi gríðar- leg vinna legið að baki hverri flík. „Það varð að sauma öll númer á hverja treyju og þegar auglýsing- arnar komu þá varð að teikna þær upp, klippa út og sauma á. Þannig að það lá gríðarleg vinna að baki þessu öllu.“ Að sögn Halldórs hefur merkið verið misáberandi í gegnum árin, en þrátt fyrir það hafa þau ávallt nóg fyrir stafni. „Við framleiðum mikið fyrir íþróttafélög, skóla og hópa sem sækja þjóðhátíð þannig að við höfum alltaf verið til stað- ar þótt við séum misáberandi eftir árum. En það er auðvitað mjög skemmtilegt að sjá Henson- gallana sem tískuvöru á afmælis- árinu.“ sara@frettabladid.is Henson aftur komið í tísku ENDURNÝJAR HENSON Linda Borg hannaði nýja Henson-flíkur ásamt Sigrúnu Rut. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI HENSON SJÁLFUR Halldór Einarsson er stofnandi Henson-fyrirtækisins sem hefur verið starfrækt í fjörutíu ár. Gömlu góðu peysurnar seljast nú vel aftur. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR LEIKANDI GAMAN Jón Páll Björnsson segir að leikir hafi breyst og þróast með tímanum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.