Fréttablaðið - 13.08.2009, Síða 53

Fréttablaðið - 13.08.2009, Síða 53
FIMMTUDAGUR 13. ágúst 2009 HEFUR ÞÚ HUGMYND? Sendu inn hugmynd á n1.is/start N1 kynnir hugmyndasamkeppni sem er annar áfangi verkefnisins Start09 sem hófst með fjölsóttum hugmyndafundi í Borgarleikhúsinu í júní Markmiðið er að hvetja fólk og fyrirtæki til nýrrar sóknar og uppbyggingar um allt land og leysa nýjar hugmyndir úr læðingi til að auka verðmætasköpun í landinu. Sendu inn þína hugmynd á n1.is/start Allir geta tekið þátt í samkeppninni, sérfræðingar jafnt sem almenningur, börn og fullorðnir. Eina skilyrðið er að hugmyndin snúist um aukna verðmætasköpun á Íslandi. Vegleg verðlaun í boði Dómnefnd mun verðlauna myndarlega þær hugmyndir sem skara fram úr. Þar að auki mun N1 leita leiða til að hrinda sem flestum góðum hugmyndum í framkvæmd, t.d. í samvinnu við önnur fyrirtæki. Nánari upplýsingar um innsendingu hugmynda er að finna á www.n1.is/start, heimasíðu verkefnisins. Dómnefnd skipa Hermann Guðmundsson, forstjóri N1 Jeff Taylor, frumkvöðull, stofnandi monster.com Margrét Kristmannsdóttir, formaður SVÞ Ragnheiður H. Magnúsdóttir, annar stofnenda Uppsprettu Guðjón Már Guðjónsson, Hugmyndaráðuneytismaður F í t o n / S Í A Sá orðrómur er nú á kreiki vestan- hafs að leikararnir Renée Zellweg- er, 40 ára, og Bradley Cooper, 34 ára, séu nýjasta Holly- wood-parið, en þau leika saman í kvikmyndinni Case 39 sem er vænt- anleg í kvikmyndahús í haust. Samkvæmt heim- ildum bandaríska tímaritsins People sáust þau koma saman til Barce- lona um síð- ustu helgi . Þar sáust þau borða róman- tískan kvöldverð á veitingastað og sam- kvæmt heimildar- manni blaðsins létu þau einstaklega vel hvort að öðru. Að lokum sagðist Zellweger vilja borga fyrir matinn og var búin að borga áður en Cooper náði að taka upp veskið. Bæði hafa þau neitað því að þau eigi í ástarsambandi, en ekki er langt síðan Cooper var orðaður við Jennifer Aniston eftir að hann sást með henni á veitingastað í New York í síð- asta mánuði. Nýjasta stjörnuparið? EKKI SAMAN? Renée Zellweger bauð Bradley Cooper í rómantískan kvöld- verð í Barcelona um síðustu helgi. Holdafar söngkonunnar Kelly Clarkson hefur verið milli tann- anna á bloggurum vestanhafs að undanförnu þar sem hún þykir hafa fitnað talsvert á síðustu mán- uðum. Söngkonan, sem er 27 ára, lætur þó gagnrýnisraddirnar ekki ná til sín og svarar fyrir sig fullum hálsi í nýjasta tímariti Self þar sem hún prýðir forsíðuna. „Það virðist angra einhverja hvernig ég lít út en ég er ekki ein af þeim. Mér líður vel,“ segir söng- konan sem stundar reglulega golf og Crossfit-æfingar. „Ég hreyfi mig fyrst og fremst fyrir geðheils- una, ekki til að grennast. Þegar ég grennist gerist það yfirleitt þegar ég er ekki að hugsa um það,“ bætir hún við. Sama um línurnar ÞYNGDIN SKIPTIR EKKI MÁLI Kelly Clarkson hreyfir sig fyrst og fremst til að líða vel, en ekki til að grennast.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.