Fréttablaðið - 13.08.2009, Page 54

Fréttablaðið - 13.08.2009, Page 54
38 13. ágúst 2009 FIMMTUDAGUR FRÁ LEIKSTJÓRA "THE MUMMY" KEMUR EIN FLOTTASTA STÓRMYND SUMARSINS NÝTT Í BÍÓ! SÍMI 564 0000 12 12 16 16 16 L L L G.I. JOE kl. 5.30 - 8 - 10.30 G.I. JOE LÚXUS kl. 8 - 10.30 CROSSING OVER kl. 8 - 10.30 KARLAR SEM HATA KONUR kl. 5 - 8 - 10.10 KARLAR SEM HATA KONUR LÚX kl. 5 ÍSÖLD 3 3D ÍSLENSKT TAL kl. 3.30 D ÍSÖLD 3 ÍSLENSKT TAL kl. 3.30 - 5.45 ICEAGE 3 ENSKT TAL - ÍSL. TEXTI kl. 3.30 - 5.45 - 8 SÍMI 462 3500 G.I. JOE kl. 5.50 - 8 - 10.10 KARLAR SEM HATA KONUR kl. 6 - 9 12 16 12 18 16 12 L G.I. JOE kl. 6.30 - 9 FUNNY GAMES kl. 5.40 - 8 - 10.20 KARLAR SEM HATA KONUR kl. 6 - 9 MY SISTERS KEEPER kl. 10.20 ÍSÖLD 3 ÍSLENSKT TAL kl. 5.50 SÍMI 530 1919 16 16 16 L CROSSING OVER kl. 5.30 - 8 - 10.30 KARLAR SEM HATA KONUR kl. 5.30 - 7 - 8.30 - 10 THE HURT LOCKER kl. 8 - 10.45 ICE AGE 3 ENSKT TAL M/ÍSL. TEXTA kl. 5.50 SÍMI 551 9000 S.V. MBL “...tilfinningum hlaðin, hreinskilin mynd um misjöfn örlög mannanna...” - S.V., MBL Ó.H.T., Rás 2Heimir og Gulli Bítið á Bylgjunni. ATH: Ekki fyrir viðkvæma 30.000 MANNS! 40.000 MANNS! FRÁ JERRY BRUCKHEIMER ÞEIR ERU NÝJUSTU NJÓSNARAR FBI OG ÞEIR ÞURFA AÐ TAKA HÖNDUM SAMAN TIL AÐ BJARGA HEIMINUM SANDRA BULLOCK RYAN REYNOLDS ANDREW ÞOLIR EKKI YFIRMANN SINN. EN TIL AÐ FÁ STÖÐUHÆKKUN ÞARF HANN AÐ TAKA BÓNORÐI HENNAR BÓNORÐIÐ FRÁ LEIKSTJÓRA „HEAT“ OG „COLLETERAL“ MICHAEL MANN KEMUR EIN ALLRA BESTA MYND ÁRSINS ÁLFABAKKA AKUREYRI KRINGLUNNI PUBLIC ENEMIES kl. 8 - 10:50 12 THE PROPOSAL kl. 8 - 10 L G.I. JOE kl. 2 - 5:30 - 8 - 10:30 12 G.I. JOE kl. 8 - 10:30 VIP PUBLIC ENEMIES kl. 5 - 8 - 10:50 16 G-FORCE - 3D M/ ísl. Tali kl. 2(3D) - 4(3D) - 6(3D) L G-FORCE - 3D M/ ísl. Tali kl. 3 L THE PROPOSAL kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 - 10:30 L HARRY POTTER kl. 2 - 5 - 8 - 10:10 10 HARRY POTTER kl. 2 - 5 VIP BRUNO kl. 11 14 THE HANGOVER kl. 8 12 PUBLIC ENEMIES kl. 8:20 - 11 16 G-FORCE - 3D M/ ísl. Tali kl. 2(3D) - 4(3D) - 6(3D) L G-FORCE - 3D M/ Ensk. Tali kl. 6 L THE PROPOSAL kl. 1:30D - 3:40D - 8:20D - 10:40D L HARRY POTTER kl. 2 - 5 - 8 10 BRUNO kl. 11 14 „ “ HERE COMES THE BRIBE... FRÁ LEIKSTJÓRA “THE MUMMY” KEMUR EIN FLOTTASTA STÓRMYND SUMARSINS - bara lúxus Sími: 553 2075 G.I.JOE: THE RISE OF COBRA kl. 4, 5.45, 8 og 10.20(P) 12 PUBLIC ENEMIES kl. 7 og 10 16 FIGHTING kl. 10.10 14 MY SISTER’S KEEPER kl. 8 12 ÍSÖLD 3 - Íslenskt tal kl. 4 og 6 L ÍSÖLD 3 - 3D - Íslenskt tal kl. 4 L - Boston globe POWERSÝNING KL. 10.20 SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI Miklar umræður spunnust um gagnrýnendur á Facebook-síðu Hermanns Stefáns sonar rithöfundar. Auður Jónsdóttir segir fráleitt að Gerður Kristný gagn rýni bækur í fjöl- miðlum á sama tíma og hún gefi sjálf út bækur. „Ekki er nýtt að gagnrýni sé hita- mál. Það nær aftur í aldir. Ég hef skrifað gagnrýni sjálfur og væri til í að gera meira af því,“ segir Her- mann Stefánsson rithöfundur. Hermann varpaði fram spurn- ingu á Facebook-síðu sinni sem reyndist sprengja: hvort viðeig- andi væri að rithöfundar fengjust við að gagnrýna bækur? Margir nafntogaðir rithöfundar lögðu orð í belg og voru skiptar skoðanir: Halldór Guðmundsson, Ævar Örn Jósepsson, Orri Harðarson og Þor- steinn Guðmundsson voru meðal þeirra sem tjáðu sig auk þeirra Guðrúnar Evu Mínervudóttur og Auðar Jónsdóttur sem beindi spjót- um sínum að Gerði Kristnýju – sem á síðustu bókavertíð sendi frá sér verk og var á sama tíma afkasta- mikill gagnrýnandi. Auður telur fráleitt að Gerður, sem er afar virk á bókamarkaði í samkeppni um listamannalaun, markað og athygli, sé jafnframt í að dæma bækur keppinautanna. „Ég er á því, sama hvað hver segir, að það sé stór munur á því að Ian McEwan skrifi hugleiðingu um bók eftir kollega sinn í Perú í Guardian eða Nick Hornby haldi úti pistlum um bækurnar á náttborðinu sínu en að (hin samkeppnismiðaða) Gerður Kristný gagnrýni bækur kollega sinna á Skerinu í sjónvarpinu, þeirra sömu og hún er að býsnast út í hér og þar af ýmsum ástæð- um, keppa um starfslaun við …“ skrifar Auður á síðu Hermanns. Auður sagðist hafa beðið Forlagið um að tilvitnun í dóm Gerðar um bók sína í auglýsingu væri fjar- lægð en ekki hafi verið orðið við þeim tilmælum. Hermann segist aldrei hafa séð þessa þætti þar sem Gerður flutti gagnrýni sína [Mannamál Sigmundar Ernis, nú alþingis- manns, á Stöð 2] og geti því ekki dæmt um það. En honum koma þessi miklu viðbrögð, umræður sem eru fáheyrðar á Facebook, ekki svo mjög á óvart. „Nei, nei, og skemmtilegt að hlutirnir séu hressi- legir. Fólk er endalaust að henda fýlubombum á Facebook og bara gaman að því,“ segir Hermann sem efast reyndar um að Facebook telj- ist opinber vettvangur. Hann segir jafnframt að ljóst sé að þeir sem fáist við gagnrýni megi búast við óvinsældum, ekki síst rithöfundar sem fást við gagnrýni. jakob@frettabladid.is Auður vill Gerði Kristnýju úr hlutverki gagnrýnanda DEILT UM GAGNRÝNI Hermann Stefánsson segir fyrirliggj- andi að þeir sem fáist við gagnrýni verði óvinsælir, ekki síst rithöf- undar sem fáist við slíkt. Auður Jónsdóttir telur óhæft að Gerður Kristný fáist við gagnrýni á sama tíma og hún gefi út bækur. „Þetta er dans og smá leikrit í leiðinni sem er tengt þjóðlegum sögubrotum frá öllum heimshornum,“ segir Marius Maciulskis sem sér um Ethnic Perfor- mance-hreyfilistahóp í Austurbæjarbíói. Hann leitar nú að fólki á aldrinum 16 til 26 ára til að vera með í sýningu sem er unnin út frá fjölþjóðlegum dönsum og hreyfingu og verður sýnd í lok ágúst. „Þetta er hugmynd sem var framkvæmd á fjöl- menningardegi í Iðnó, en þá vorum við með svona atriði. Núna er Austurbæjarbíó hús unga fólksins og mér datt því í hug að gera þetta aftur, safna fleira fólki og gera þetta stærri og skemmtilegri sýningu. Síðast tók um þrjár vikur að æfa til að ná fram því sem við vildum gera og þetta verður svipaður tími sem við höfum núna til að koma þessu saman,“ útskýrir Marius. „Það fer svo eftir fólkinu sem verð- ur í hópnum hvernig sýningin verður. Ef það hefur hugmynd að einhverjum dansi reynum við að setja það inn sem atriði, annars er ég með efnivið sem gæti passað í heila sýningu,“ bætir hann við. „Ég vonast til að fá að minnsta kosti fimm til tíu manns, en það væri lágmark til að þetta gangi. Sýningin verður svo í lok ágúst í Austurbæjarbíói, en þá verður opið fyrir alla sem hafa áhuga og kostar ekkert inn,“ útskýrir Mari- us. Áhugasamir geta skráð sig í hópinn með því að senda tölvupóst á netfangið mariusmac@hotmail.com eða mætt í Austurbæjarbíó næsta laugardag klukkan 13. - ag Leitar að fólki í hreyfilistasýningu ETHNIC PERFORMANCE-HREYFILISTAHÓPUR Marius Maciulskis vonast til að fá að minnsta kosti fimm til tíu manns til að vera með í fyrirhugaðri sýningu. FRÉTTABLAÐIÐ / ARNÞÓR Tónlistarsíðan og útgáfufyrirtæk- ið Coxbutter.com hefur verið starf- rækt síðan í desember árið 2007, markmið síðunnar er að skapa beint aðgengi á milli tónlistar- manna og áheyrenda og er öllum útgáfum fyrirtækisins dreift ókeypis á Netinu. „Það var svo mikið af fólki í kringum okkur sem var að semja tónlist en enginn var að gefa neitt út. Það er orðið svo auðvelt að semja og gefa út sína eigin tón- list í dag. Tónlistarumhverfið hefur breyst mikið síðastliðin ár, nú þurfa menn ekki að eiga pen- inga fyrir stúdíótímum eða hljóð- vinnslu þannig að fólk getur gert þetta sjálft fyrir lítinn sem engan pening. Núna eru tónlistarmenn aðallega að vinna í því að koma sér á framfæri, að skapa sér nafn og skipuleggja tónleika því það gefur meira af sér en sala á disk- um,“ segir Kristinn Helgi Sævars- son, en hann, Baldvin Magnússon og Ævar Tómasson standa að Cox- butter.com. Fyrirtækið er jafnframt eitt af fáum sem gefur út íslenskt hipphopp í dag. „Við byrjuðum með sérstök Cox- butter-kvöld núna í ár. Þau eru haldin annan fimmtudag hvers mánaðar á skemmtistaðnum Jacob- sen. Á síðustu tónleikum var fullt hús og mjög góð stemning,“ segir Kristinn Helgi. Næsta Coxbutter-kvöld verður í kvöld og munu Forgotten Lores, Mighty Jukebox, Steve Sampling og DJ Kocoon leika fyrir gesti. Tónleikarnir hefjast klukkan 22.00 og er aðgangur ókeypis. - sm Ókeypis tónlist fyrir landann COXBUTTER MENN Baldvin og Kristinn standa að útgáfu- og tónlistarsíðunni Coxbutter. Þar er hægt að ná sér í ókeypis tónlist. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.