Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.08.2009, Qupperneq 62

Fréttablaðið - 13.08.2009, Qupperneq 62
46 13. ágúst 2009 FIMMTUDAGUR Uppistandaranum Sveini Waage hefur verið boðið að koma fram í Skotlandi og Belgíu með nýja per- sónu sína í farteskinu, hinn skoska Brian McBastard. „Þessi bjáni virðist hitta einhverja taug. Það er eitthvað sem ger- ist þegar ég hann talar kjarnyrta skosku og segir eitthvað tiltölulega fyndið. þá hlær fólk,“ segir Sveinn, sem klæðist skoska þjóðbúningnum og skartar rauðu skeggi þegar McBastard er annars vegar. „Þetta er bara mí n Si lv ía Nótt. Það er mjög góð útrás að fara á bak við þetta skegg og þetta pils. Þetta er ný upplifun og ofboðslega gaman. Síðan þegar maður er búinn fer maður úr pilsinu og tekur af sér skeggið og þá er maður orðinn Sveinn Waage aftur.“ Persónan hefur verið í maganum á Sveini í nokkur ár en það var ekki fyrr en í vor sem hún steig fullsköp- uð fram á sjónvarsviðið. Þá var Sveinn veislustjóri á árshátíð Liverpool-klúbbsins þar sem margir útlendingar voru á meðal gesta, þar á meðal Ian Rush, fyrrverandi framherji Liverpool. Þegar McBastard hóf upp raust sína ætlaði allt um koll að keyra og veltust Rush og félagar um af hlátri. „Hann hafði aldrei séð annað eins. Hann var mjög sátt- ur,“ segir Sveinn um viðbrögð goð- sagnarinnar. Næsta uppistand hans verður á skemmtistaðnum Batteríi í kvöld klukkan 21.30 og er aðgangseyr- ir 1.000 krónur. Þar kemur einnig fram Rökkvi Vésteinsson og stefna þeir félagar á að halda áfram með grín sitt og glens á ensku næstu mánuðina á sama stað. - fb 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÖGIN VIÐ VINNUNA LÁRÉTT 2. æsa, 6. tveir eins, 8. bók, 9. sjór, 11. tveir eins, 12. ofan á brauð, 14. mentastofnun, 16. skóli, 17. gat á steðja, 18. skarð, 20. fyrir hönd, 21. meiri. LÓÐRÉTT 1. þurrka út, 3. tveir eins, 4. vitsmunamissir, 5. sigað, 7. hjáguð, 10. skammstöfun, 13. gaul, 15. sjá eftir, 16. útsæði, 19. skammstöfun. LAUSN LÁRÉTT: 2. örva, 6. ff, 8. rit, 9. mar, 11. tt, 12. álegg, 14. skóli, 16. fg, 17. löð, 18. rof, 20. pr, 21. æðri. LÓÐRÉTT: 1. afmá, 3. rr, 4. vitglöp, 5. att, 7. falsgoð, 10. rek, 13. gól, 15. iðra, 16. fræ, 19. fr. „Á play-listanum mínum núna er ég með Muse, Robbie Willi- ams og Radiohead, en Muse og Robbie eru í miklu uppáhaldi.“ Andri Ómarsson, kafari og kvikmynda- gerðarmaður. VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8 1 1967. 2 112 þúsund tonn. 3 Josef Schöngraber. Í frétt blaðsins í gær, af hinni miklu bjórreið sem þeir Simmi&Jói standa fyrir á hátíðinni Töðugjöld á sterum, fullyrti Sigmar Vil- hjálmsson að þetta væri fyrsta sinni sem slík keppni færi fram hér á landi. Ekki voru þeir sáttir með þá staðhæfingu hestamenn í Faxa í Borgarfirði en þar hafa þeir gert sér það að leik lengi að keppa í þessari eðlu íþrótt. Og er þá kókakóla haft í krús þeirra yngri sem keppa. Mikið var af frægðarfólki á Fiskideginum á Dalvík sem spókaði sig meðal almennings sem kom meðal annars til að fá sér ókeypis súpu. Þeirra á meðal Dr. Gunni og Egill Helgason með sína frægu syni. Þar var einnig stödd Siv Friðleifs- dóttir sem er ekki, líkt og þeir Gunni og Egill, þekkt fyrir gríðarleg- an áhuga á mat, heldur var hún þar stödd til að fylgjast með því þegar afhjúpað var listaverk Höllu Har til minningar um Friðleif Jóhannsson útgerðarmann, en Friðleifur er einmitt afi Sivjar. Og Björg Siv Juhlin Friðleifsdóttir kemur víða við sögu. Þannig efndi Forlagið til léttrar spurningakeppni á Facebook-síðu sinni og spurði hvurt væri módelið á forsíðu túr- istabókar Páls Ásgeirs Ásgeirs- sonar „The Real Iceland” – og voru menn fljótir að nefna nafn hennar en þar getur að líta spengilega Siv arka til sjávar með sundhettu, hanska og í bláum sundbol. Endur- skoðuð útgáfa bókar Páls er nú komin í verslanir og verður fróðlegt að sjá hvaða breytingar voru gerðar á henni að kröfu lögmanna ofurfrægs fólks hvers heimilisfang var nefnt í bókinni. - jbg FRÉTTIR AF FÓLKI „Þetta eru lifandi lýsingar um lífið og tilveruna – ég kafa að rótum hjarta Indlands. Tilvalið er nú í kreppunni að ferðast um Indland í huganum við lestur bókarinnar og spara sér erfiða og kostnaðarsama ferð til þessa heillandi lands,“ segir Ármann Reynisson vinjettuhöfundur. Út eru komnar Vinjettur IX, „Indlands vinjettur“ – 43 sögur sem byggðar eru á tveggja mánaða ferða- lagi Ármanns um Indland fyrir um einu og hálfu ári. Fréttablaðið greindi frá þessari för Ármanns og urðu ýmsir til að efast um réttmæti þess sem fram kom í frásögn Ármanns af ævintýrum sínum í Indlandi. „Mér var boðið að ávarpa þekktasta háskóla Indlands og þótt víðar væri leitað, Banaras Hindu University. Ég kynnti vinjetturnar og Ísland í leiðinni fyrir fullu húsi af fræðimönnum og nemendum. Mér var frábær- lega tekið og hvattur til þess að koma aftur. Lands- bókavörður Indverja, dr. R. Ramachandran, tók á móti mér í aðalbyggingu safnsins í Kolkata (áður Kalkútta), opnaði dyr að heimsfrægu handritasafni landsbóka- safnsins sem einungis sérstakir gestir fá að skoða,“ segir Ármann og gefur ekki eftir með það að Vinjettu- ritsafn sitt séu einu bækurnar eftir íslenskan rithöf- und sem til séu í Landbókasafninu á íslensku. Það var einmitt þarna sem Sigurður A. Magnússon efaðist um trúverðugleikann – sagði það mikla vitleysu að þar væri ekki að finna verk eftir aðra íslenska höfunda. Vinjettuhöfundurinn svarar enn fullum hálsi. „Hann gerði för mína landsfræga með því að skvetta aur og leðju yfir frásagnir vinjettuhöfundarins af ferðinni í Fréttablaðinu eftir heimkomuna. Þannig opinberaði Sigurður fáfræði sína á Indlandi nútímans og varð sér opinberlega til skammar eins og stundum áður,“ segir Ármann. Og bætir því við að hann sé alinn upp við það að launa illt með góðu og sendi Sigurði áritað eintak af bókinni með blessunaróskum. „Þannig vil ég gleðja hinn aldna heiðursmann,“ segir Ármann. - jbg Umdeildar vinjettur komnar út SVEINN WAAGE Uppistandaranum snjalla hefur verið boðið að koma fram í Skotlandi og Belgíu. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR BRIAN MC- BASTARD Sveinn Waage í gervi hins skoska Brian McBastard. ÁRMANN FYRIR FRAMAN TAJ MAHAL Alls staðar þar sem Ármann fór um Indland var honum tekið með kostum og kynjum. Förin varð efniviður í nýja vinjettubók. Með McBastard til Skotlands „Hún er orðin rosalega vinsæl í Sví- þjóð. Þetta gengur rosalega vel,“ segir María Björk Sverrisdóttir, umboðsmaður Jóhönnu Guðrúnar Jónsdóttur. Söngkonan kemur fram á tón- leikum í Malmö í Svíþjóð á laugar- daginn ásamt hinum heimsfræga Mika. „Það er stærsta útvarpsstöð- in í Svíþjóð (RIX FM) sem er að halda þessa tónleika. Þarna verða stóru nöfnin í Svíþjóð plús alþjóð- legir tónlistarmenn, sem eru Mika og Jóhanna,“ segir María Björk. Um frábæra kynningu er að ræða fyrir Jóhönnu, enda sló Mika rækilega í gegn fyrir tveimur árum með lag- inu Grace Kelly. Jóhanna fetar jafn- framt í fótspor söngkonunnar Lady Gaga sem söng á sama sviði um síð- ustu helgi. Greinilegt er að vinsældir Jóhönnu eru að aukast jafnt og þétt í Svíþjóð eftir frábæra frammistöðu í Eurovision í vor. Stutt er síðan hún kom fram í Sommarkrysset- sjónvarpsþættinum í Stokkhólmi sem er sýndur á hverju laugardags- kvöldi við miklar vinsældir. Þar söng hún Is It True? á gömlu sviði í tívolíinu í Stokkhólmi fyrir framan fjölda áhorfenda í blíðskaparveðri. Með henni á sviðinu var stór hljóm- sveit og bakraddasöngkonur og stóð Jóhanna sig með prýði eins og henn- ar er von og vísa. „Þetta gekk alveg rosalega vel. Þeir sem syngja þarna eru búnir að „meika“ það í Svíþjóð. Eftir tónleikana fékk ég tölvupóst frá Svíþjóð um að þeir hefðu aldrei fengið jafn æðislegan listamann og hana á sviðið,“ segir María Björk, sem heldur af stað til Svíþjóðar með Jóhönnu á morgun. Plata Jóhönnu Guðrúnar, Butt- erflies and Elvis, kom út á vegum stórfyrirtækisins Warner í Svíþjóð 22. júlí og hefur hún selst mjög vel. Smáskífa hennar með Is It True? hefur jafnframt komist ofarlega á vinsældalista þar í landi. Platan er um þessar mundir að koma út í Noregi, Finnlandi og Dan- mörku og næsta verkefni Jóhönnu verður að fylgja henni þar eftir. Um næstu mánaðamót kemur plat- an síðan út víðar um Evrópu, þar á meðal í Þýskalandi, Grikkandi, Tyrklandi, Rússlandi og á Spáni. „Nú er þetta allt að fara á fullt. Hún verður meira og minna úti næstu mánuðina,“ segir María.“ freyr@frettabladid.is MARÍA BJÖRK SVERRISDÓTTIR: JÓHANNA ROSALEGA VINSÆL Í SVÍÞJÓÐ Syngur með Mika í Malmö GEFUR EIGINHANDARÁRITANIR Jóhanna er orðin mjög vinsæl í Svíþjóð. Hér gefur hún æstum aðdáendum eiginhandaráritanir eftir tónleika sína í Stokkhólmi. SUMARGRILL KRAFTS Fimmtudaginn 13. ágúst kl.15 verður hið árlega sumargrill Krafts haldið í Nauthólsvík. Glóðheitur grillmatur, skemmtiatriði og stuð. Sveppi mætir á staðinn og skemmtir börnunum, Villi Naglbítur lætur sjá sig ef honum hefur ekki verið rænt... Hlökkum til að sjá sem fl esta :) Stjórnin www.kraftur.org Auglýsingasími – Mest lesið
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.