Fréttablaðið - 13.08.2009, Page 64

Fréttablaðið - 13.08.2009, Page 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Ragnheiðar Tryggvadóttur Í dag er fimmtudagurinn 13. ágúst 2009, 225. dagur ársins. 5.13 13.33 21.50 4.46 13.17 21.46 H E I L S U R Ú MRekkjan ehf ≤≥ Suðurlandsbraut 48 (Bláu húsin í Faxafeni) ≥≥ 108 Reykjavík ≥≥ 588 1955 ≥≥ www.rekkjan.is KING KOILAmerískt heilsurúm(Queen size 153x203)FRÁ kr. 99.850 25-70% AFSLÁTTUR! HEILSUKODDAR 30% AFSLÁTTUR! SVEFNSÓFAR 25-30% AFSLÁTTUR! SÆNGURFATN AÐUR 30% AFSLÁT TUR! www.tskoli.is Innritun í kvöld- og f jarnám stendur til 26. ágúst Íslendingar eru áberandi svart-sýnni á efnahagsástandið en aðrar þjóðir um þessar mundir, þetta las ég á Vísi í gær. Og skyldi engan undra, við erum í tómu tjóni. Þess vegna kom mér heldur ekk- ert á óvart að lesa hér í Fréttablað- inu um ung íslensk hjón sem búið höfðu undanfarinn áratug í Kaup- mannahöfn en völdu að flytja frek- ar til Grænlands með börnin sín tvö en hingað heim. Enda Græn- land í „fúllsving“, með nýfengið sjálfstæði. Unga fólkið setti ekki fyrir sig að ófært er í bæinn þess nema með flugvél eða á hunda- sleða. Kalda Ísland hefur ekkert aðdráttarafl lengur, ekki einu sinni í hugum heimamanna. ÞAR KOM að því að kaldari lönd urðu ákjósanlegri kostur. Hver hefði trúað því? Að fólk liti á fimbulkulda, válynd veður og vegaleysi Grænlands sem titt- lingaskít miðað við ástandið hér heima fyrir. Þetta segir mér bara að fokið sé í flest skjól. Ísland far- sælda frón, hvar er þín fornaldar frægð? Einu sinni var svo gott að búa á Íslandi og hægt að hafa það svo óskaplega gott. Fólk setti síður en svo vetrarkuldann fyrir sig því íslensku sumrin voru svo góð. Ísland var „bezt í heimi“! Nú sann- ast hið fornkveðna að allt er í heim- inum hverfult. EN FÓLKSFLÓTTI af landi brott í kjölfar hrunsins er staðreynd og auðvitað áhyggjuefni, sérstaklega fyrir þá sem hafa hugsað sér að sitja um kyrrt. Þeir sitja í súpunni upp að öxlum. Það væri kannski bara vænlegast að við flyttum öll enda sýndust mér vangaveltur þjóðarinnar um flótta ná nýjum hæðum í gær ef marka mátti mest lesnu fréttina á Vísi. Hún snerist ekki um Icesave-hnútinn, að bless- að ríkisstjórnarsamstarfið héngi á bláþræði, eða að greiningardeild Kaupþings teldi að stýrivext- ir héldust óbreyttir … blablabla. Neibb! Mest lesna fréttin var sú að stjörnufræðingar telja sig hafa fundið aðra „jörð“! OKKUR er borgið. Nýja jörðin heitir Títan, þar eru falleg stöðu- vötn, sandöldur og fjöll. Þar geta ekki bara við Íslendingar heldur allir í heiminum byrjað upp á nýtt, stofnað nýjar kennitölur, ný lönd, nýja gjaldmiðla, ný fyrirtæki. Ó, hvað það verður gaman hjá okkur. Á HINNI nýju jörð ríkir reyndar fimbulkuldi og fallegu stöðuvötnin eru botnfrosin og líflaus. En er það ekki bara tittlingaskítur miðað við ástandið hér? Ný jörð – nýtt líf

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.