Samvinnan - 01.10.1948, Qupperneq 3
Húsavik, athafnabærinn við Skjdlfandaflóa, vagga islenzlis samvinnustarfs.
Nokkrar skyndimyndir úr Þingeyjarsýslu
litum, að ógleymanlegt er. Óvíða á
landinu mun jafn mikill og samfelld-
ur lyng- og skógargróður og í Suður-
Þingeyjarsýslu. Heiðar og ásar eru fag-
urgræn yfirlitum um hásumarið, en
þegar hausta tekur og hinar fyrstu
frostnætur ganga í garð, tekur lands-
lagið á sig nærri því ævintýralegan,
fólgulan og dimmrauðan svip. — Við
lögðum af stað frá Akureyri fyrir sól-
arupprás, í björtu og fögru veðri.
Ætlunin var að koma svo snemma til
Húsavíkur, að starfið í brauðgerðinni
og mjólkursamlaginu væri í fullum
gangi. Eftir rigningarsama og súldar-
lega tíð, skein nú upp og hinir sér-
kennilegu litir og svipbrigði lands-
lagsins nutu sín dásamlega vel í haust-
sólinni. Húsavík er snotur bær, og
blasir það raunar við ferðamönnum,
á hvaða árstíma sem er, en sérstaklega
er ánægjulegt að koma þangað á
björtum haustmorgni, því að þá er
e. t. v. eitt hið bezta tækifæri til þess
að kynnast hinu mikla og vaxandi at-
hafnalífi bæjarins. Þá iðar allt af lífi
og starfi í hinni fögru umgjörð nátt-
úrunnar.
Sagt frá nýjum samvinnufyrirtækjum í elztu
samvinnubyggð landsins
ÞAÐ er gaman að renna huganum
til þess, þegar ekið er inn í bæ-
inn, að það eru ekki nema sextíu og
sex ár síðan Jakob Hálfdánarson var
að bogra við að refta gryfju nokkra,
sem enskir laxveiðimenn höfðu gert
FYRIR nokkru eru tekin til starfa
í H ú s a v í k, tvö merkileg sam-
vinnufyrirtæki, sem komið hefur ver-
ið á fót, fyrir forgöngu Kaupfélags
Þingeyinga. Þessi fyrirtæki eru:
Mjólkursamlag Kaupfélags Þingey-
inga, sem hóf strafsemi sína hinn 1.
október 1947 og er því ársgamalt um
þessar mundir, og Brauðgerð K. Þ. h/f
sem tók til starfa í júnímánuði s. 1.
Fréttamaður „Samvinnunnar" gerði
sér ferð til Húsavíkur nú í haust til
þess að sjá þessi nýju samvinnufyrir-
tæki og kynnast annarri starfsemi
samvinnumanna í þessari elztu sam-
vinnubyggð á íslandi.
ÞAÐ er ævinlega gaman að aka um
Þingeyjarsýslu, sakir hinnar fjöl-
breytilegu fegurðar og gróðurlífs, en
þó e. t. v. aldrei skemmtilegra en á
haustin. Hinar gróðurríku víðáttur og
heiðar skarta þá svo fjölskrúðugum
Þórhallur Sigtryggsson, framkvamdastjóri K. Þ., við skrifborð sitt.
3