Samvinnan - 01.10.1948, Síða 8
FRÁ FRÆNDÞJÓÐ OKKAR
FÆREYING UM
^■iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii11111111111111111111111iiih,ii»
= „Færeyjar voru huldar þoku, er við |
í nálguðumst land,“ segir ÓLAFUK I
E ÓLAFSSON í þessari grein, um líf |
| og starf færeysku þjóðarinnar. Og É
É hann bætir við: „Eg verð að viður- |
I kcnna, að hugmyndir mínar um i
í Færeyjar voru einnig mjög þoku- =
I kenndar.“ Yfirleitt þekkjum við ís- 1
| lendingar lítið til Færeyinga, þótt 1
l þeir séu nánasta frændþjóð okkar og 1
i góðir nágrannar. f þessari grein er i
i brugðið upp eftirminnilegum og i
i lærdómsríkum myndum frá hinum i
i fögru Færeyjum og menningar- =
i þjóðinni, sem eyjarnar byggir. — i
FÆREYJAR voru huldar þoku, er
við nálguðumst land. Það kom sér
illa fyrir mig. Eg verð að viðurkenna,
að hugmyndir mínar um Færeyjar
voru einnig mjög þokukenndar. Sjór
var ládauður á Skopafirði, milli Hest-
eyjar og Sandeyjar, en straumur á
móti, svo að dró úr ferð skipsins.
Þoka yfir landi, straumur í sjó, hvort
tveggja sannfæreysk fyrirbrigði. Sterk-
ar straumiður beggja megin skipsins
vöktu hjá mér endurminningar frá
ferðalögum á kínverskum fljótum.
Við heyrðum til þokulúðursins á
bryggjusporðinum í Þórshöfn, er skip-
ið seig inn fyrir hafnargarðinn, fram
hjá Þinganesi og inn að bryggju í
Vesturvogi. Lögþing var í gamla daga
háð á nesinu er nú veldur skiptingu
höfuðstaðarins, Þórshafnar, í Eystri-
vog og Vestrivog.
Eg hafði oft komið við í Þórshöfn á
ferðalögum milli landa. Nú gafst loks
tækifæri til að kynnast nokkuð landi
og þjóð, þennan hálfa mánuð þangað
til skipsferð yrði heim aftur til Islands.
En þannig stóð á komu okkar ferða-
félaganna tveggja til Færeyja að þessu
sinni, að við vorum boðnir til hátíða-
lialda í Þórshöfn, í tilefni af 25 ára af-
mæli Sjómannaheimilisins þar.
ÞAÐ ER á sunnudegi nokkrum
dögum síðar. Sól hefur skinið
undanfarna daga frá skafheiðum
himni. Við sitjum uppi í hlíð með út-
sýn yfir mjótt sund milli höfuðeyj-
anna tveggja, Austureyjar og Straum-
eyjar. Fyrir fótum okkar er Tofte-
byggð á Austurey, í álíðandi halla
meðfram sundinu. Beint fyrir neðan
8