Samvinnan - 01.10.1948, Síða 4
í ostakjallara Mjólkursamlags K. Þ.
fyrir feng sinn á kambinum í Húsavík.
Þessi gryfja, og áfastur kofi, voru hin
fyrstu, augsýnilegu mannvirki Kaup-
félags Þingeyinga. Sextíu og sex ár eru
að vísu mestur hluti mannsævinnar,
en örskammur þáttur af sögu byggðar-
lags og þjóðar. En á þessu skamma
tímabili hefur orðið gjörbylting í at-
vinnu, verzlun og menningu þjóðar-
innar. Þessi bylting blasir við augum
ferðamannsins, sem kemur til Húsa-
víkur um annatímann, minnizt frum-
býlingsaðstöðunnar á dögum Jakobs
Hálfdánarsonar og sér fyrii sér hið
fjölbreytilega athafnalíf bæjarins, sem
K. Þ. á nú mjög verulegan þátt í. Á
því svæði, sem laxagryfjan var forðum,
standa nú hin myndarlegustu verzlun-
arhús K. Þ. Gamla húsið, sem K. Þ.
byggði á fyrstu árum og yngri nýbygg-
ingin, norðan við götuna, en sunnan
við hana hið nýja verzlunar- og skrif-
stofuluis og áfast við það mjög mynd-
arleg nýbygging, sem félagið er að
koma upp. Þar verða nýtízku verzlun-
arbúðir, með stórum glerveggjum
fram að götunni. Félagið hefur aug-
sýnilega hug á því, að verzlunarstarf-
semi þess komizt öll í nýtízku horf,
svo að aðstaða viðskiptamannanna
verði eins og bezt þekkist annars stað-
ar. Það er mjög ánægjulegt að kynnast
þessu viðhorfi, því að þess gætir ekki
alls staðar meðal samvinnumanna
landsins. En kaupfélögin eiga að
stefna að því, að verzlunarbúðir
þeirra, verksmiðjur og önnur fyrir-
tæki, séu jafnan til fyrirmyndar um
fyrirkomulag, afgreiðslu- og fram-
leiðslutækni og búnað allan, en þó
engan veginn gleyma því, sem liðið
er. Það mundi t. d. ávinningur fyrir
alla samvinnustarfsemina í landinu og
hafa stórmikið menningargildi, ef
samvinnuhreyfingin beitti sér fyrir
því, að fyrsta verzlunarhús K. Þ., sem
enn stendur, yrði gert að minjasafni
samvinnumanna. Þetta hús er fyrsta
byggingin sem íslenzkt samvinnu-
framtak kom upp. Þar var fyrst opnuð
samvinnusölubúð, sem því nafni getur
kallast. Það yrði lærdómsríkt fyrir
samvinnumenn landsins að eiga þess
kost á næstu árum, að sjá gömlu búð-
ina í sinni upprunalegu mynd, búna
þeim fátæklegu tækjum, sem þá var
völ á. Þetta væri hægt að framkvæma
ef samvinnufélögin í landinu legðust
á eitt um það. í þessu formi hafa Bret-
4
Innvigtun mjólkur t. h. Gerilsneyðingaráhöld t. v.