Samvinnan


Samvinnan - 01.10.1948, Qupperneq 5

Samvinnan - 01.10.1948, Qupperneq 5
ar og Svíar reist frumherjum sam- vinnustarfsins minnisvarða, sem hafa varanlegt gildí. MARGT FLEIRA er að sjá í Húsa- vík á annasömum haustdeenL o Neðan við bakkann, sem verzlunar- húsin standa á, er sláturhús og frysti- hús félagsins. Sláturtíðin stendur sem hæst. Fjárbílar úr sveitunum umhverf- is streyma inn í þorpið. í sláturhúsinu sjálfu er ys og þys og margar hendur að starfi. Á uppfyllingunni neðan við sláturhúsið og þar umhverfis, er verið að vinna við síldartunnur. Þær standa þar í löngum röðum og minna á, að Húsavík er orðinn mikilvægur staður í síldarvertíðinni nyrðra. Söltunin þar í sumar varð meiri en nokkru sinni fyrr. Síldartunnustaflarnir á uppfyll- ingunni og annirnar á sláturhúsinu segja í einni svipan mikið um mögu- leika Húsavíkur til þess að vaxa og verða mikill og merkilegur athafna- bær. Bærinn hefur góða aðstöðu til síldarverkunar og fiskveiða og ltann hefur stórt og blómlegt landbúnaðar- hérað að baki sér, en þetta tvennt er frumskilyrði hvers íslenzks athafna- bæjar. ÞETTA er nú í rauninni orðinn all- langur útúrdúr, því að erindið var að skoða tvö ný samvinnufyrir- tæki. En það er nauðsynlegt að sjá þessi fyrirtæki í forgrunni þeirrar myndar, sem hér hefur verið reynt að bregða upp. Vöxtur bæjarins, aukið at- hafnalíf þar og úti í héraðinu og vax- andi þróttur samvinnufélagsskaparins sköpuðu nauðsynina fyrir þau bæði og aðstöðuna til þess að koma þeim upp. Mjólkurstöðin nýja stendur utar- lega í þorpinu, í nýju, reisulegu húsi. Þegar okkur ber þar að garði, er mjólkurflutningabíll úr Mývatnssveit að losa mjólkurbrúsa af palli, og inni Ostakerið. Btejarmenn kaupa mjólk i nýju mjólkurbúðinni. Hið nýja mjólkursamlagshús i Húsavík. Haraldur Gislason, mjólkursamlagsstjóri, t. v. í mjólkurbúðinni er mikið um að vera. Ungir og gamlir standa þar við búðardiskinn og kaupa gerilsneydda nýmjólk, rjóma og skyr. Haraldur Gislason, forstöðumaður mjólkursam- lagsins, tekur erindi okkar ágætlega og gengur með okkur um húsið. Það er byggt eftir teikningu Þóris Baldvins- sonar húsameistara, en leiðbeinandi um val véla og annars útbúnaðar var Sveinn Tryggvason ráðunautur. Vélar eru allar nýjar, frá hinum kunnu Silkeborg-verksmiðjum í Danmörku, og af lullkomnustu gerð. Afkasta- möguleikar mjólkursamlagsins eru um 12500 lítrar á dag, en dagleg vinnsla þess nú er um 4500 lítrar. Miklir möguleikar eru því fyrir hendi fyrir þingeyska bændur að auka mjólkurframleiðslu sína í sambandi við mjólkurstöðina. Framleiðslan er gerilsneydd mjólk, rjómi, ostar og 5

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.