Samvinnan - 01.01.1956, Page 6
Útgefandi: Samband íslenzkra
samvinnufélaga.
Ritstjóri: Benedikt Gröndal.
Ritstjórn og afgreiðsla í
Sambandshúsinu, Reykjavík.
Ritstjórnarsími 7080.
Kemur út mánaðarlega.
Verð árgangsins kr. 50.00.
Verð í lausasölu 5 kr.
Prentsmiðjan Edda.
Efni:
Með traustum fjárhags-
grundvelli munu hin óleystu
verkefni framundan leysast.
Eftir Erlend Einarsson .... 4
Stofnfundur SÍS að Yztafelli 8
Ein ég sit og sauma . . . Skýr-
ingar með Butterick sniðum 10
232 Norðrabækur á 30 árum 12
Úr fórum Norðra..........13
Vörugæði I: Spunaefni .... 14
Hvernig er ort í skólum
landsins ................... 16
Fáein orð um ljóðlist í
Menntaskóla Akureyrar . . 17
Gullið í Draugadal, ný fram-
haldssaga ............... 18
Samvinnustefnan er fyrst og
fremst þjónusta við fólkið 20
Rósin frá Ríó, framhaldssaga
barnanna ....................23
Fréttir og fleira........25
JANÚAR 1956
L. ÁRG. 1.
ÞAÐ MUN VARLA samrýmast hugs-
unarhætti samvinnumanna að hafa
miklar áhyggjur af titlum manna eða
öðru, sem kalla mætti tildur og hé-
gómi. Hins vegar hafa samvinnufél-
ögin sýnt það frá öndverðu, að þau
vilja finna starfsmönnum sínum
einfalda, íslenzka titla, sem segja til
um störf þeirra og gera þannig sitt
gagn og meira ekki. Þannig fór til
dæmis, þegar Sambandið tók upp
deildaskiptingu skömmu eftir fyrri
heimsstyrjöld. Þá var ákveðið, að yfir-
maður fyrirtækisins skyldi heita for-
stjóri en framkvæmdastjórar vera
fyrir deildum. Er svo enn í dag, að
í Sambandinu er forstjóri, en fram-
kvæmdastjórar nú fimm ráðarnenn
höfuðdeilda, og deildarstjórar fyrir
undirdeildum. Slík skipting er nauð-
synleg í svo stóru fyrirtæki og bygg-
ist á þeirri hefð, sem sköpuð var, þeg-
ar störfin urðu til, enda þótt sömu
heiti séu nú notuð um gjörvallt við-
skiptalíf landsmanna og ekki alltaf
af þeirri gát, áð merking orðanna
hafi haldizt skýr í hugum manna.
ÖNNUR HEFÐ um titla er til innan
samvinnuhreyfingarinnar og hún eldri
en þau orð, sem nú hefir verið minnzt
á. Það er orðið kaupfélagsstjóri fyrir
þá, sem stýra málum kaupfélaganna.
Þetta orð er blessunarlega fast í mál-
inu og ruglast enginn á því, hvað það
merkir, því varla mun nokkrum detta
í hug að kalla sig kaupfélagsstjóra,
ef hann er það ekki. Hins vegar hefur
þess orðið vart í vaxandi mæli síðari
ár, að menn hafa ekki látið sér nægja
að nefna kaupfélagsstjórana sínu
rétta heiti. Hafa þeir við ýmis tæki-
færi hlotið framkvæmdastjóra- eða
forstjóratitla og er það miður farið.
Þeir ættu alls ekki að kalla sig annað
en kaupfélagsstjóra og enginn sam-
vinnumaður ætti að nota annað orð
við þá eða um þá. Að vísu eru sum
kaupfélögin orðin svo voldug og mikil
fyrirtæki, að ástæða er til nokkurrar
aðgreiningar á störfum fyrirmanna.
Engu að síður má nota kaupfélags-
stjóranafnið um þann, sem félaginu
stjórnar, og er sjálfsagt að gera það.
Ættu kaupfélagsstjórarnir sjálfir að
standa fastan vörð um orðið.
FORSÍÐUMYNDIN er með nokkuð
nýstárlegu sniði að þessu sinni, og
skýrir hún sig sjálf. Samvinnan kynn-
ir í þessu hefti þá stórmerku nýjung,
sem Sambandið og kaupfélögin hafa
nú forustu um, en það er að gefa kon-
um úti á landi kost á að ná í hentug
og smekkleg fatasnið, án þess að fara
til Reykjavíkur. Samvinnan mun í
framtíðinni hafa kvennasíður, þar
sem þessu efni verða gerð frekari
skil. Þar sem hér er um nýjung
að ræða, er það að vonum, að fólkið
átti sig ekki á breytingunni um leið
og hún gerist.
NÝ FRAMHALDSSAGA byrjar í
þessu hefti. Að þessu sinni hefur Sam-
vinnan brugðið sér út fyrir landstein-
ana um söguval. Söguna hefur Willi-
am Byron Mowery fært í stíl eftir
skýrslum frá kanadisku fjallalögregl-
unni. Uppistaðan í sögunni er ásta-
mál, en ívafið er glæfraför og leit að
afbrotamönnum, sem komizt höfðu
yfir uppdrátt af gullsvæði í Kletta-
fjöllunum.
ÞÁ ER AÐ ÖÐRU SINNI birt í Sam-
vinnunni sýnishorn af kveðskap úr
menntaskóla, en það er nokkuð, sem
vert er að gefa gaum. Þar er að finna
vaxtarbrodd hinnar komandi skálda-
kynslóðar.
Eftir því, sem kostur er á, mun
Samvinnan í framtíðinni kynna ung
og efnileg skáld. Öllum skáldum og
ekki sízt byrjendum er það nauðsyn-
legt að koma ljóðum sínum eða rit-
smíðum fyrir almenningssjónir, jafn-
vel þótt umdeild verði verkin.
ÞÁTTURINN UM vörugæði á brýnt
erindi til margra og mun framvegis
birtast meira af slíkum fróðleik. Hér
eru gerð að umtalsefni gerfiefnin,
sem nauðsynlegt er að kunna nokk-
ur skil á. Þau hafa hina margbreyti-
legustu og ólíkustu eiginleika. Þess-
vegna er gott að þekkja þá eiginleika
til þess að geta meðhöndlað vöruna
rétt.
MYNDIRNAR AF Erlendi Einars-
syni, forstjóra SÍS, stofnfundi SÍS og
úr kjörbúðinni, tók Þorvaldur Ágústs-
son. Sigurður P. Björnsson tók mynd
af vígslu fataverksmiðjunnar Fífu í
Húsavík. Aðrar myndir, sem birtar eru
með grein forstjóra, tók Guðni Þórð-
arson.