Samvinnan


Samvinnan - 01.01.1956, Qupperneq 12

Samvinnan - 01.01.1956, Qupperneq 12
Stofnfundur SÍS að Yztafelli Málverk er starfsfólk sambandsins gaf þvi fimmtugu Myndin er af málverki því, tr starfsmenn Sambands ísl. samvinnu- félaga 1952 gáfu Sambandinu til minningar um hálfrar aldar afmæli þess það ár. Málverkið á að tákna stofnfund Sambandsins að Yztafelli 20. febrúar 1902. Sýnir það fulltrúa félaganna þriggja: Kf. Þingeyinga, Kf. Norður-Þingeyinga og Kf. Svalbarðs- eyrar ásamt ritara fundarins, Bene- dikt Jónssyni frá Auðnum. Málverkið gerði frú Karen Agnete Þórarinsson, kona Sveins Þórarins- sonar málara. Einnig hefur frúin mál- að myndir af fjórum fyrrverandi for- mönnum Sambandsins og prýða þær veggi í fundarsal sambandsstjómar. Við verkið hafði frúin ekki aðrar fyr- irmyndir en ljósmyndir af viðkomandi mönnum og umsagnir manna, sem vom þeim persónulega kunnugir. Fjöldi barna fulltrúanna eru ennþá á góðum aldri. Þau, ásamt mörgum öðr- um, munu dæma um, hvernig frúnni hafi tekizt að ná svipmóti fundar- manna. Engum þeirra mun örðugt að þekkja hvern fyrir sig af myndinni; þó verða þeir að hafa í huga, að það er sitthvað að horfa á litla, prentaða ljósmynd af málverki eða á sjálft mál- verkið. Hér á eftir fara nöfn fundarmanna, talið frá hægri á myndinni, ásamt æviatriðum í stærstu dráttum: Friðbjörn Bjarnarson (frá Kf. Sval- barðseyrar). Fæddur á Vöglum í Fnjóskadal 7. sept. 1860. Foreldrar: Björn Bjarnarson hreppstjóri og bóndi á Vöglum í Fnjóskadal og síðar í Vestari Krókum, og kona hans, Helga Ólafsdóttri frá Svertingsstöðum í Kaupangssveit Gottskálkssonar. Gagnfræðingur frá Möðruvöllum 1883. Átti heima á Grýtubakka í Höfðahverfi frá 1888 og bóndi þar frá 1893 til 1903. Var endurskoðandi Kf. Svalbarðseyrar um skeið og formaður þess og kaupfélagsstjóri frá 1898 til 1904. Fluttist síðar til Akureyrar og stundaði þar skrifstofustörf áratugum saman. Kona hans var Elín Þorsteinsdóttir hreppstj. á Grýtubakka Jónssonar og Sigurlaugar Halldórsdóttur. Friðbjörn andaðist í júní 1943. Árni Kristjánsson (frá Kf. Norður- Þingeyinga). Fæddur 25. ágúst 1852. Foreldrar: Kristján hreppstjóri Árna- son í Ærlækjarseli, Þórðarsonar frá Kjarna í Eyjafirði og kona hans, Sig- urveig Guðmundsdóttir í Ærlækjar- seli Árnasonar. Varð sýsluskrifari 18 ára. Bóndi í Lóni í Kelduhverfi í 47 ár, hreppstjóri í 39 ár, sýslunefndar- maður í 33 ár, amtráðsmaður í 12 ár. Einn af stofnendum Kf. Þingeyinga; sölustjóri Kf. Norður-Þingeyinga um skeið og lengi endurskoðandi beggja félaganna. Kona (15.okt. 1873): Anna (d. 4. marz 1919) Hjörleifsdóttir prests á Völlum í Svarfaðardal Gutt- ormssonar. Árni andaðist á heimili sonar síns, Kristjáns kaupmanns á Akureyri 9. febrúar 1942. Helgi Laxdal (frá Kf. Svalbarðs- eyrar). Fæddur 5. janúar 1856. For- eldrar: Jón Grímsson Laxdal skipstjóri og kona hans, Elín Helgadóttir prent- ara í Viðey og Akureyri Helgasonar. Bjó fyrst í Garðsvík, en frá 1884 í Tungu á Svalbarðssrtönd. Var skip- stjóri á hákarlaskipum og mikill fram- faramaður í búnaði. Hlaut verðlaun úr sjóði Kristjáns IX. og tvívegis úr ræktunarsjóði, gegndi ýmsum trúnað- arstörfum. Kf. Svalbarðseyrar var stofnað á heimili Helga 17. desember 1889. Var hann einn af stofnendunum og kom mikið við sögu félagsins. í stjórn þess frá aldamótum til æviloka einatt aðstoðarinaður formanns við félagsstörfin. Kona: Guðný Gríms- dóttir í Garðsvík. Helgi andaðist 14. apríl 1918. Pétur Jónsson (frá Kf. Þingeyinga). Fæddur 28. ágúst 1858. Foreldrar: Jón Sigurðsson alþingismaður á Gaut- löndum og kona hans, Sólveig Jóns- dóttir, prests í Reykjahlíð Þorsteins- sonar. Bóndi á Gautlöndum frá 1884 til 1919. Umboðsmaður þjóðjarða í Þingeyjarsýslu frá aldamótum til 1920. Ritstjóri Tímarits kaupfélag- anna 1896 og 1897. Þingmaður Suður- Þingeyinga 1894 til 1921 og atvinnu- málaráðherra frá 25. febrúar 1920 til æviloka. Auk þessa gegndi hann fjölda trúnaðarstarfa. Var formaður Sam- bandsins frá 1902 til 1904 og frá 1910 til 1920. Vann manna mest að stofn- un Sambandsins og oftast í forsæti á þeim fundum, sem haldnir voru til undirbúnings að stofnun þess, stund- um árlega frá því 1892. Hann var og fundarstjóri á stofnfundinum. Kona: Þóra Jónsdóttir (f. 23. sept. 1881, d. 30. nóv. 1894) frá Grænavatni, Jóns- sonar. Pétur andaðist í Reykjavík 20. janúar 1922. Sigmður Jónsson (frá Kf. Þingey- inga). Fæddur 28. janúar 1852. For- eldrar: Jón bóndi á Skútustöðum, Árnasonar bónda á Sveinsströnd, Ara- sonar bónda á Skútustöðum og konu hans, Þuríðar Helgadóttur á Skútu- stöðum Ásmundssonar. Var fyrir- vinna fóstru sinnar að Yztafelli í Kinn frá 1866 til 1889, bóndi þar frá 1889—1917. Stundaði jafnframt kennslu og hélt unglingaskóla. Deild- arstjóri Kinnardeildar Kf. Þingeyinga yfir 30 ár, sýslunefndarmaður í 30, sama tíma í hreppsnefnd og oddviti í 28 ár. í stjóm Kf. Þingeyinga sam- fleytt frá 1895 til 1914 og endurskoð- 8

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.