Samvinnan - 01.10.1971, Blaðsíða 12

Samvinnan - 01.10.1971, Blaðsíða 12
Hildur Hákonardóttir: Hornsteinar og höfuðpaurar Sagt er að okkur konum sé nær að leggja meiri rækt við okkar erfðahlutverk — það að ala börn og annast þau — en að standa i jafnréttisbrölti. Hlutverk þetta sé bezt rækt við arin heimilisins. Við ku standa náttúrunni svo nærri. Greindir menn hafa sett þetta niður fyr- ir sér á þann máta, að karl- mannsins sé að framkvæma, en konunnar sé það að vera. í þessu felst mikill sann- leikur. Við viljum ala börn, við viljum að þau nái vænum þroska, og við viljum standa náttúrunni nærri. En náttúr- una er ekki að finna i plast- hjúpuðu, bónuðu og sótthreins- uðu eldhúsi. Þar verður Gvend- arbrunnavatnið æ klórmeng- aðra, og við vitum ekki hvort sá gamli góði siður að hleypa inn fersku lofti þýðir nú að við séum að opna gluggana fyrir götustybbunni og koltvísýr- ungnum, eða hvort betra væri að kaupa Gott Loft í búðinni i spray-brúsum. Ung kona heyr- ist aldrei segja núna: þegar ég verð amma — sízt af öllu segir hún það að gamni sínu, því að hún veit ekki hvort einu sinni hennar eigin börn ná nokkurn- tíma þroska, og móðurmjólk hennar er sífellt að eitrast af DDT. Hvað uppeldi barna á- hrærir, þá er það fólgið einkum í því tvennu — að sjá um lík- amlegar þarfir barns sem ekki er fært um að gera það sjálft og að veita barni andlega nær- ingu i formi ástúðar og fræðslu. Síðar þegar barnið fer að kom- ast á legg er uppeldið fólgið í því að gera barninu kleift að vaxa frá móður sinni eða föður, þannig að það geti sjálft ann- azt þarfir sínar, aflað sér ástar, tileinkað sér þekkingu og lært af reynslunni. Við erum ekki lengur færar um þetta hlutverk. Við getum ekki lengur brosandi sullað gerviefnum úr allavegalituðum glansumbúðum, sem að okkur eru réttar, ofan í börnin. Upp- eldisreglur mæðra okkar eru okkur engin stoð, og félagsleg- ur hugsunarháttur þeirra gildir ekki lengur. Við getum ekki gefið börnunum vegarnesti fyr- ir lífsbaráttuna, þvi að við skiljum hana ekki sjálfar. Þess vegna erum við komnar út úr pastellituðum eldhúsun- um okkar til að spyrja þá sem hafa verið að framkvæma, hvað þetta er, sem þeir hafa verið að gera. Við förum út til að berjast gegn stöðnuðum hugmyndum um okkur sjálfar, röngum og rígskorðuðum skoðunum um getu okkar, eðli og vilja. Skoð- unum sem nú ógna tilveru okk- ar, ræna okkur sjálfsvitund og efnahagslegu frelsi. En ekki tjóir að ganga úr einu bjarginu í annað. Félagsheimur karlmannsins, sem hefur undirokað okkur, getur varla orðið okkur góð fyrirmynd. Félagsformið, sem við búum við, er formanns- formið. Það er stighækkandi form færri manna og meiri valda. Þetta er þrautútspekúl- erað form og þúsunda ára gamalt. En sköpuðir þess voru drottnunargjarnir, og tilgangur skapnaðarins var að auðvelda þeim að halda völdum og nýta vald sitt. í Egyptalandi til forna sköp- uðust aðstæður til að full- komna þetta form unz það varð svo ljóst í meðvitund manna að það varð að veruleika úr steini. í herjum og einræðisrikjum er uppbyggingin skýr og mörk- uð, enda byggist þar hópverk- unin á hlýðni einstaklinganna, og sterkum áróðri eða höftum verður að beita til að hvolfa loftþéttu loki á skynramlegar, þröngva formannskerfinu til að laga sig að þroskavænlegri vaxtarmöguleikum og losa um stjórnarhald þess, þannig að einstaklingar eða hópar eigi þess kost að rísa til áhrifa eða frjálsar gerðir og hugsanir meðlimanna. í smærri eining- um, flokkum og félögum, þar sem yfirráð flokksmanna hvers yfir öðrum samrýmast ekki til- gangi félagsins, verður for- mannsformið drösull að draga, því stjórnin verður eftir sem áður ein starfhæf og aðrir meðlimir svæfa samkennd sína með félagsgjöldum. Formið er stirt i vöfurn og helzti möguleiki þess til vaxtar er að leggja undir sig nýja meðlimi. valda, hvar í þjóðfélaginu sem þeir kunna að eiga sér rætur, hafi þeir bolmagn eða fylgi. Félagsuppbyggingin er þar bú- in að taka á sig miklu frjáls- legra snið. Þó hefur formanns- &o OOOQ Æbn ooooo kerfið svo ríka möguleika til allsherjarstjórnunar, að fram- kvæmd lýðræðis er auðveldlega stöðvuð og kæfð, sér í lagi þeg- ar framkvæmdin ógnar stöðu stjórnendanna sjálfra. Fram- kvæmd lýðræðis hefur hvergi í þjóðfélögum þar sem áber- andi stéttaskipting rikir um- gangast menn umhverfi sitt án þess að hafa breytingar þess sífellt í huga, en félagsleg sam- skipti manna á meðal geta orð- ið rikuleg. í lýðræðislegum stjórnar- kerfum hefur verið reynt að 12
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.