Samvinnan - 01.10.1971, Blaðsíða 17

Samvinnan - 01.10.1971, Blaðsíða 17
sömu starfsfræðslu, og stúlkum séu ætluð sömu störf og drengjum. Þegar skipulögð er einhvers konar unglingavinna, er sjálfsagt að stúlkur og drengir fái sömu verkefni, en stúlkur t. d. ekki endilega sett- ar í gróðursetningu. Það er frá- leitt að ætla að drengir geti ekki líka haft gaman af að hlúa að gróðri. Löggjöfin Grundvöllur allrar mann- réttindabaráttu hlýtur að vera réttlát löggjöf og höfuðatriði að bæta hana, ef eitthvað þykir á skorta. Um það snerist t. d. baráttan fyrir kosningarétti og kjörgengi í eina tíð. Nýlega kom út handbók í lögum, Lög- fræðihandbókin eftir Gunnar G. Schram. Þar er kafli um hjúskaparmál, bæði endursagð- ar lagagreinar og túlkanir. Þar stendur í dálki um framfærslu- skyldu m. a. eftirfarandi: „Sérþarfir hennar (kon- unnar), sem hún þarf fjár- muni til að standa undir, eru t. d. kaup á persónuleg- um nauðsynjum, svo sem fatnaði, snyrtivöium, og öðru sliku, svo og fé til vasa- peninga. Það sem konan kaupir fyrir peningagreiðsl- ur samkvæmt þessu ákvæði verður eign hennar. Hér er þó það skilyrði sett að frá þessu má víkja, ef það hjón- anna, sem í hlut á, oftast eiginkonan, hefur reynzt ó- fallið til þess að fara með peninga. Er þar með sleginn varnagli við óhæfilegri eyðslusemi þess. Ef afgang- ur verður af því fé, sem konan hefur fengið hjá manni sínum til sérþarfa sinna, þá verður það eign hennar, sem hún getur ráð- stafað að vild sinni. Hið sama mun gilda um afgang þeirra peninga, sem konan fær hjá manni sinum til heimilishaldsins." (Leturbr. mín.) Og í kafla i sömu bók um gildi fjármálaráðstafana hjóna vegna heimilis og sérþarfa er konan tekin sem dæmi, þegar gera þarf ráð fyrir eyðslusemi, t. d. í verzlunum eða veitinga- húsum, og talað er um samn- inga konunnar vegna sérþarfa hennar, t. d. afborgunarsamn- inga, sem hún gerir vegna kaupa á fatnaði eða munum. Af þessu og fleiri atriðum í túlkun mætti draga þá ályktun, að einhvers staðar hallaði á konuna, annað hvort í lögun- um sjálfum eða í dómum, sem dæmdir eru eftir þeim (prax- ísnum). Einn starfshópur inn- verði það sem kallað er kven- legir. Býður þá ekki svona upp- eldi upp á það? Rauðsokkar telja æskilegast fyrir börnin að fóstrun og kennsla væru í höndum bæði karla og kvenna, en a. m. k. fóstrustarfið er svo lágt launað, að enginn karl- maður, sem á völ á öðru arð- bærara, leggur slíkt starf fyrir sig. Starfsfræðsla Starfsfræðsla hefur nú verið tekin upp í mörgum skólum. Til er kennslubók í þeirri grein, Starfsfræði eftir Kristin Björnsson og Stefán Ólaf Jóns- son. Bókin kom út 1966, og virðist mér hún að flestu leyti vel gerð og vönduð. í þessari bók er sérstakur kafli, sem heitir „Stúlkurnar", og er þar margt gagnlegt; til dæmis eru þær varaðar við að treysta á húsmóðurstarfið sem atvinnu- veg, því að í fyrsta lagi giftist ekki allar stúlkur, og í öðru lagi hafi stúlkan enga tryggingu fyrir ævilangri framfærslu þótt hún giftist, t. d. vegna skilnað- ar eða heilsubrests eða fráfalls maka. Þó eru þar ráðleggingar til stúlkna, sem Rauðsokkar eru varla hrifnir af, eins og: At- hugaðu þau störf, sem gera kleift að vinna hluta af fuilu starfi um skamman tíma, og störf, sem hægt er að koma að aftur, þótt hætt hafi verið við þau í nokkur ár. Stefna Rauðsokka er að vinna að því, að unglingar af báðum kynjum fái nákvæmlega Svava Jakobsdóttir Halldór Laxness En ég vil vera ég sjálf samt. an Rauðsokkahreyfingarinnar hefur unnið að því að athuga hjúskaparlöggjöfina og túlkun hennar. Hugarfarsbreyting Hér hefur verið drepið á nokkur stærstu málin, sem Rauðsokkar hafa snúið sér að, en þó er enn af nógu að taka. T. d. má nefna tryggingamál og skattalöggjöf, en þeim málum eru gerð skil af öðrum hér í blaðinu. Að lokum vaknar spurning- in: Hvað er hægt að gera? Hvernig á að koma á breyting- um? Rauðsokkar gera sér grein fyrir, að mörg ljón eru á vegin- um, og engar likur til að mark- inu verði náð, fyrr en eftir langan tíma. Það er miklu erf- iðara að koma af stað hugar- farsbreytingu en að standa frammi fyrir einhverjum sýni- legum andstæðingi, svo sem lagabókstaf eða þröngsýnni reglugerð. Þess vegna verða Rauðsokkar, ef þeir ætla að ná árangri, að vinna fólkið á sitt band smám saman. Taka verð- ur fullt tillit til þess fólks, sem ekki getur sjálft breytt um lifnaðarhætti, hefur t. d. ekki starfsmenntun og stendur því höllum fæti á vinnumarkaðn- um. Það er t. d. mjög líklegt, að konum í sveitum finnist boðskapur Rauðsokka fara fyr- ir ofan garð og neðan hjá sér, tal um barnaheimili eða jafna menntun, á meðan þær koma börnum sínum ekki einu sinni reglulega í skóla. Annað er það, að Rauðsokkar vilja bæta að- stöðu kvenna í dreifbýlinu, því að það væri siðferðilega rangt að sýna aðeins fólkinu á möl- inni áhuga. En þegar breyta þarf t. d. námsskrá, reglugerð- um, lögum o. s. frv., verða reyndar venjulegar aðferðir. Þá verður reynt að hafa áhrif á alþingismenn, bæjarfulltrúa, vinnuveitendur, fræðsluyfir- völd og alla þá, sem stuðlað geta að framgangi baráttumál- anna. 4 17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.