Samvinnan - 01.10.1971, Blaðsíða 34

Samvinnan - 01.10.1971, Blaðsíða 34
SAMVINNA GuSmundur Sveinsson, Bifröst: Samvinnuhreyfingin á íslandi árið 2000 Lokagrein I. FORMÁLI í þessari síðustu grein minni um sam- vinnuhreyfinguna á íslandi árið 2000 mun ég gera tilraun til að meta þátt hennar sem félagsmálahreyfingar og menningar- samtaka um næstu aldamót. í þriðju greininni vék ég sérstaklega að nokkrum forsendum, er hafa verður i huga, þegar slíkt mat er framkvæmt. En áður hafði ég í fyrstu grein minni getið um almenn viðhorf, er verulega snerta framtíðarhugmyndir. Ber einnig að taka mið af þeim. Ég tel að næstu þrír áratugir verði timi mikilla átaka og mikilla umbyltinga. Ég ætla, að þau átök og þær umbyltingar nái fyrst og fremst til félags- og menn- ingarlífsins, og muni af þvi leiða að horf- ið verði í verulegum atriðum að annarri stefnu heldur en þeirri, sem fylgt hefur verið á Vesturlöndum um langt árabil. Ég er sannfærður um að í þessum átökum og umbyltingum muni samvinnuhreyfing- arinnar gæta í enn ríkara mæli en verið hefur, enda muni samvinnuhugsjónin sem slík verða kjarni þeirrar stefnu, sem upp verður tekin. Ég vænti þess að slíkar fullyrðingar skýrist i því sem á eftir kemur. II. SAMVINNUHREYFINGIN SEM FÉLAGSMÁLAHREYFING OG MENNINGARSTEFNA ÁRIÐ 2000 1. Vopnabyltingin Eins og gert var ráð fyrir að styrkur og vöxtur samvinnuhreyfingarinnar sem verzlunar- og viðskiptasamtaka árið 2000 byggðist í veigamiklum atriðum á því að þá hefði hin svokallaða stjórnunarbylt- ing, kýbernetik-bylting, náð þvi að vera orðin forsenda framleiðslu og verzlunar, á líkan hátt tel ég að sambandið sé harla náið milli styrkleika samvinnuhreyfing- arinnar sem félagsmálahreyfingar og menningarstefnu annars vegar og áhrifa vopnabyltingarinnar og mannréttinda- byltingarinnar, sem fyrr voru nefndar, hins vegar. Hin þrefalda bylting mun að minni hyggju vera orðin að veruleika ár- ið 2000 og hennar gæta á flestum sviðum meira eða minna. Af þessu mun leiða, að ný heimsmynd er að koma i ljós, hin þriðja frá því á 19. öld. 19. öldin þróaði og treysti hina vélrænu heimsmynd 18. aldar og gerði hana nánast að óbifan- legu trúaratriði. Veröldin og tilveran voru áþekkust mikilli og flókinni vél, og verkefni mannsins var að gera sér grein fyrir gangi hennar og kynnast furðum hennar. Á síðari hluta 20. aldar hófst ný heimsmynd til vegs, sú sem kenna mátti við tölvuna. Þá urðu tölvuf ræðin svo heill- andi að ljómi þeirra féll á allt, sem stórt þótti og mikilfenglegt. Þannig varð til- veran að undri þekkingaratriða, informa- tionar, og þeim margvíslegu möguleikum til niðurröðunar og samtengingar, sem þau byggju yfir, strúktúrum eða pró- grammeringu, svo að notuð séu hugtök úr sjálfum tölvufræðunum. En um aldamót- in 2000 hefur að því er ætla má enn orðið breyting á heimsmyndinni. Þá nægja ekki lengur þekkingaratriði og margvísleg nið- urröðun. Ný krafa hefur þá komið fram, djarfari og ákveðnari en áður, krafan um merkingu og gildi. Merkingarheimsmynd vilja sumir kalla þessa heimsmynd fram- tíðarinnar til aðgreiningar frá hinni vél- rænu heimsmynd og tölvuheimsmynd- inni. Einkenni hinnar nýju heimsmyndar er ekki öryggi og vissa, heldur leit og spurn. Að því leyti er hún gerólík hinum tveim fyrri. En sérstaða hennar að öðru levti er fólgin í þvi, sem í sjálfu heitinu felst: Tilveran býr yfir tilgangi og mark- miði. Hún er ekki blindingsleikur. Það er einmitt sérstaða mannsins í tilverunni að geta orðið þessa áskynja, geta fundið til- gang og takmark með lífi sínu, tengt líf sitt undri sköpunarinnar og alverunnar. Sú staðrevnd, sem vopnabvltingin hefur leitt í l.iós um aldamótin 2000, að stríð og styrjaldir geta ekki lengur leitt til „sig- urs“ heldur aðeins tortímingar, hefur opnað augu manna meir og betur en áður fyrir þeim hættum, sem fólgnar eru i baráttuhneigðum og yfirgangshvötum, hinni svokölluðu aggression. Einmitt þær hneigðir og hvatir hafa verið mjög í sviðsljósinu á síðustu árum á Vesturlönd- um, ekki sízt eftir hina merkilegu at- hugun fræðimannsins Konrads Lorenz á þætti þeirra í lífi og atferli ýmissa dýra- tegunda. Þáttur aggressionarinnar hefur verið miklaður mjög og talinn liggia til grundvallar ekki aðeins beinum átökum og baráttu meðal manna, heldur ekki síð- ur helgisiðum og þróuðum hegðunarvenj - um, sem ætlað er að virkja aggressionina, göfga hana og gera að jákvæðu atriði í lífi heilda og einstaklinga. — Sú ríka áherzla, sem lögð hefur verið á að túlka baráttuhneigðir og yfirgangshvatir og réttlæta hinar margbreytilegustu myndir þeirra og afbrigði, er í raun og veru að- eins einn vitnisburður um þau sterku ítök, sem samkeppnishugmyndir 19. aldar hafa átt í hugum manna, hugmyndirnar um baráttu allra gegn öllum sem for- sendu framþróunar og áframhaldandi lífssóknar. — Það var þess vegna ekki að ófyrirsyniu, að fræðimenn á sviði félags- fræði og sálfræði, svo sem Hegel og Freud, teldu hlut dauðans meiri en lífsins og litu á dauðahvötina, er menn hefðu í arf þeg- ið, sem áhrifaríkastan þátt menningar. — Þær feiknrúnir aftur á móti, sem vopnabyltingin lætur birtast sjónum manna í lok 20. aldar, munu verða til þess, að fram fer algert endurmat á fyrri viðhorfum. Við það endurmat mun margt koma í ljós, en það augljósast og áhrifa- mest að varhugavert hlýtur að vera að gera þær hneigðir, sem á einn eða annan veg tengjast dauðanum og tortímingunni, að æskilegum þáttum lífs og menningar. Sú fullyrðing, að lífið leiti jafnvægis, sem aðeins verði fengið með því að nema burt alla spennu, eftirvæntingu og ófull- nægðar óskir, mun þykja meir en vafa- söm í lok 20. aldar. Hitt mun verða talið liklegra að lífsþránni verði aldrei full- nægt; hennar hlutverk sé einmitt að vekja stöðugt grun um það sem stærra er og meira og hvetja til sífelldra um- breytinga og endurmats. Um leið og blekking þeirra sigra, sem unnir voru í fórnum á altari dauðans, hefur verið af- hjúpuð meir og betur, hlýtur af því að leiða að lífið verður metið á annan veg. Svo mun verða um næstu aldamót. — Þá mun mannkynið upplifa að mörgu leyti hliðstæða tíma eins og urðu hlutskipti þess í lok miðalda á Vesturlöndum. End- urreisnartími Vesturlanda einkenndist meðal annars af miklum lífsþorsta, sér- stæðri lífslöngun, þrá að njóta hins jarðneska lífs og gera það auðugra og fyllra. Sagnfræðingurinn Egon Friedell telur að ein ástæða til þessa sérkennilega og sérstæða lífsþorsta hafi verið hörm- ungar svartadauða, sem við upphaf tíma- bilsins gekk yfir álfuna. Frammi fyrir fallvaltleik og dauða vaknaði lífsþráin voldug og sterk, þráin að gangast lífinu á hönd og vera því trúr af öllum mætti og þreki. Sú mikla kvika, sem vopnabylt- ingin mun leysa úr læðingi um næstu aldamót, á sér langa forsögu. Einmitt sú forsaga veitir hugboð um samband henn- ar og samvinnuhreyfingarinnar. 2. Firring og ótti Um það leyti, sem samvinnuhreyfingin er að mótast i hugum manna á Vestur- löndum og taka á sig mynd í félagsrekstri og menningarviðhorfum, eru tvenns kon- ar fyriibæri að gerast áleitin. Bæði tengj- ast þessi fyrirbæri lífi manna og móta það á margvíslegan hátt. — Annað er hið sérstæða firringarfyrirbæri, sem Hegel vakti fyrst verulega athygli á og Karl Marx gerði síðan áhrifamikil skil. Hitt er óvenjulegt afbrigði óttans, sem sett hefur svip á vestræna sögu og það því meir sem lengra hefur liðið á 20. öldina. Bæði áttu fyrirbæri þessi rætur að rekja til að- stæðna og mistaka, sem samvinnuhreyf- ingin hafði vakið athygli á og vildi ráða bót á og vinna gegn. Rétt mun að gera hvoru tveggja fyiirbærinu örstutt skil. Firring er sú tilfinning og vitund mannsins að hafa misst lifandi og sí- kvika snertingu við eitthvað, sem áður hefur verið tengt honum og skapað hon- um fyllingu og fullnægingu. Þessa tilfinn- ingu kölluðu þeir Hegel og Marx „Ent- fremdung“. Gerði hinn síðarnefndi hug- takið að miklu atriði til að varpa Ijósi yfir þá hörmung, sem orðið hefði hlut- skipti alls þorra vinnandi manna við iðn- byltinguna á Vesturlöndum, þegar verk- smiðjurekstur hófst með einhæfni sinni. í stað þess að vinnan hafði áður verið 34
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.