Samvinnan - 01.10.1971, Blaðsíða 55

Samvinnan - 01.10.1971, Blaðsíða 55
Sigurður A. Magnússon: Vinstristjórn og vinstrasamstarf Ég staðhæfði hér í blaðinu fyrir þremur árum í grein um forsetakosningarnar (4. hefti 1968), að úrslit þeirra gætu orðið og hlytu að verða upphaf straumhvarfa í íslenzkum stjórnmálum, undirrót nýrra sjónarmiða. Þetta hefur með vissum hætti rætzt. Úrslit alþingiskosninganna í vor leiddu af sér meiri tilfærslu atkvæða og þingsæta milli flokka en átt hefur sér stað í marga áratugi; þau ollu raunveru- legum vatnaskilum i íslenzkri pólitík. í fyrsta sinn síðan 1927 tekur við völdum alný ríkisstjórn (þ. e. a. s. enginn stjórn- arflokkanna átti aðild að fráfarandi ríkis- stjórn), og þarf varla að fara mörgum orðum um, hve mikilsvert og afdrifaríkt íslenzku stjórnmálalífi og þjóðlífi yfirieitt það getur orðið, ef stjórnarflokkarnir þrír reynast hafa heilindi og raunverulegan vilja til að standa við málefnasamning sinn og gerbreyta um stefnu i þjóðmála- pólitíkinni. FramboSsflokkurinn Að mínu mati var merkilegasti liður kosningabaráttunnar í vor tilkoma og frammistaða Framboðsflokksins eða „núllistanna" svonefndu. Hinum ungu og gamansömu fulltrúum þessa nýja flokks tókst mun betur en búast hefði mátt við — með hliðsjón af örstuttum aðdraganda framboðsins — að bregða upp mynd af íslenzkri stjórnmálabaráttu: hentistefnu og hræsni stjórnmálamannanna, innan- tómu orðagjálfri þeirra og fáránlegum hátíðleik. Þráttfyrir gerræði útvarpsráðs, sem enn einusinni gerði sig bert að póli- tískri valdníðslu með því að bægja Fram- boðsflokknum frá einni af þremur kosn- ingadagskrám sjónvarpsins, tókst „núll- istum“ að vekja þvílíkan áhuga og eftir- væntingu hjá almenningi, að ekki hefur í annan tíma verið fylgzt af viðlíka áfergju með kosningabaráttu hérlendis. Þó flestum væri ugglaust ljóst, að hér var einungis um að ræða grín og skopstæl- ingu, var áhugi alþjóðar á frammistöðu „núllista" ósvikinn, enda ollu þeir sjaldan vonbrigðum. Það segir sína sögu að þeir fengu samtals 2% greiddra atkvæða, og kjörfylgi þeirra var greinilega úr öllum áttum. Þó gömlu flokkarnir létu varð- hunda sína í útvarpsráði beita Fram- boðsflokkinn ofríki sem jaðraði við of- sókn, þá var það honum einum að þakka, að almenningur fékkst til að hlusta á málflutning þeirra í útvarpi og sjónvarpi, og ég er ekki í neinum vafa um, að óbein áhrif „núllista" á kosningaúrslitin voru miklu meiri en menn vilja vera láta. Þeir fréttamenn Morgunblaðsins, sem starfa hér fyrir norrænu fréttastofurnar NTB og Ritzau, fullyrtu til dæmis að framboð „núllista“ hefði verið frumhlaup og fí- askó, og er það einungis til vitnis um blinda húsbóndahollustu og pólitískan barnaskap þessara vitringa. Sigurvegararnir Sennilega bjuggust hvorki Samtök frjálslyndra og vinstrimanna, velunnarar þeirra né andstæðingar við þeim úrslit- um sem birtust við talningu atkvæða. Sigur þessa nýja flokks var sögulegur, ekki sízt þegar þess er gætt að forusta hans er hvorki eins ný eða óspjölluð af stjórnmálaþvarginu og látið var í veðri vaka. En hann hafði sagt hinu gamla og gerspillta valdakerfi og fjármálasukki stríð á hendur, og varð það honum tví- mælalaust til brautargengis. Hitt fer varla milli mála, að meginrótin að sigri flokksins var sú, að hann hafði mesta möguleika á að fella „viðreisnarstjórn- ina“. Með það í huga kusu margir stuðn- ingsmenn annarra flokka Frjálslynda í vor, þannig að fylgi þeirra kann í reynd- inni að vera minna en niðurstöður kosn- inganna gefa til kynna, þó óþarft sé að vanmeta afleiðingar þess að flokksbönd voru nú rofin í ríkara mæli en tíðkazt hefur við alþingiskosningar. Annar höfuðsigurvegari kosninganna varð Alþýðubandalagið, sem vann upp aftur tjónið sem hlauzt af brotthlaupi þriggja þingmanna á liðnu kjörtíma- bili. Sigur Alþýðubandalagsins var ó- tvíræður og byggðist greinilega ekki á stundarhagnaði, heldur tókst því að virkja fylgi unga fólksins í meira mæli en aðrir flokkar, og má þvi segja að það sé á framtíðarvegi. Eftir að Sósíalistafélag Reykjavíkur sleit tengsl sín við Alþýðu- bandalagið, hefur það að mestu skafið af sér kommúnistastimpilinn í augum ungu kynslóðarinnar, þó Morgunblaðið, Vísir, Alþýðublaðið og jafnvel Tíminn reyni eftir mætti að halda lífi í grýlum kalda stríðsins. Skrif Moggans um fortíð Þjóðviljans og sumra forkólfa Alþýðu- bandalagsins eru ekki sízt fróðleg með hliðsjón af skrifum Morgunblaðsins á uppgangstímum Hitlers og athöfnum ým- issa helztu núverandi leiðtoga Sjálfstæð- isflokksins á blómaskeiði nazismans. Tap þriggja flokka Aðrir flokkar en Samtök frjálslyndra og Alþýðubandalagið töpuðu fylgi, og er ó- hætt um það að straumurinn til vinstri hefur sjaldan verið greinilegri síðustu áratugina. Hrikalegast varð tap Alþýðu- flokksins, sem hefur í 12 ára sambúð við Sjálfstæðisflokkinn nánast týnt sínu eigin andliti, og mundi ókunnugum áreiðan- lega hafa veitzt erfitt að gera sér þess grein, að formaður flokksins væri mál- svari alþýðunnar í landinu þegar hann kom fram í kosningabaráttunni. Alþýðu- flokkurinn galt ekki einasta fádæma lé- legrar forustu, duglítilla þingmanna og ráðherra og óþarfrar íhaldsþjónkunar, heldur voru forkólfar hans jafnvel ennþá röskari en Sj álfstæðismenn í pólitískum stöðuveitingum og valdníðslu, og hlaut það fyrr en seinna að koma flokknum í koll. Bitlingalýður Alþýðuflokksins er án efa þyngsti baggi sem hann hefur bundið sér og kynni að ríða kröftum hans að fullu. Framsóknarflokkurinn galt einnig um- talsvert afhroð, tapaði 2y2% miðað við úrslitin 1967, og er það vissulega íhugun- arefni fyrir stærsta flokk stjórnarand- stöðunnar í þrjú kjörtímabil. Ég hygg að tvístígandi Framsóknarflokksins í ýmsum veigamiklum málum hafi ráðið miklu um úrslitin, en sennilega helgast þessi tvi- stígandi af því að hann hefur innanborðs sterk íhaldsöfl sem verða honum æ þyngri í skauti eftir því sem hann sækir meir á mið þéttbýlisins. Hér er kappnóg að hafa einn íhaldsflokk og tími til kominn fyrir Framsóknarflokkinn að taka upp ákveðna og ómengaða vinstristefnu. Að öðrum kosti á hann væntanlega enn eftir að rýrna í roðinu. Sjálfstæðisflokkurinn tapaði tiltölulega minnstu fylgi, fór úr 37,5% árið 1967 niðrí 36,2%, sem er lægsta hlutfall hans í al- þingiskosningum siðustu þrjá áratugi. Hann er greinilega á hægu undanhaldi þráttfyrir óhemju fjármagn og öflugan blaðakost, enda er mannval hans á þingi ekki beysið, og eru þó ungu mennirnir sem settir eru á oddinn kannski enn síður til þess fallnir að vekja tiltrú á málstaðn- um. Þó Sjálfstæðisflokkurinn telji sig vera „flokk allra stétta“, þá er hann vita- skuld fyrst og siðast verkfæri og málsvari peningavaldsins í landinu, enda fjár- magnaður af því og hefur frá upphafi gegnt hlutverki sem stangast óþyrmi- lega á við nafn hans: hann hefur semsé verið allra íslenzkra flokka fúsastur til að lúta erlendu valdi og þjóna erlendum hagsmunum, samanber frammistöðu hans í herstöðvamálinu, sjónvarpsmálinu al- ræmda og stóriðjumálum, að ógleymdum málflutningi hans í landhelgismálinu bæði 1958 og nú. Hvort sem það stafar af einhverju ókunnu náttúrulögmáli eða sálrænum veilum hlutaðeigandi manna, þá hafa peningastéttirnar jafnan haft ríka tilhneigingu til óþjóðlegrar afstöðu í afdrifaríkum málum, sem bezt sannast á athæfi Sjálfstæðisflokksins og mál- gagna hans, en segja má að þessir aðilar hafi tekið við og ræki nú það hlutverk sem danska kaupmannavaldið á íslandi gegndi fyrir eina tíð. 55
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.