Samvinnan - 01.10.1971, Blaðsíða 25

Samvinnan - 01.10.1971, Blaðsíða 25
Eru konur hýrudregnar? Er launajafnrétti kynjanna var lögfest árið 1960 voru þau orð viðhöfð á alþingi, að langvinnu baráttumáli væri lokið. í frumvarpi, sem samþykkt var á alþingi það ár, segir: „Á árunum 1962—1967 skulu laun kvenna hækka til jafns við laun karla fyrir sömu störf í eftirfarandi starfsgreinum: almennri verkamannavinnu, verksmiðjuvinnu og verzlunar- og skrifstofuvinnu." Hér skal ekki dregið úr mikilvægi launajafnréttislaganna, en í reynd hafa þau ekki verið annað og meira en áfangi að takmarki, sem enn virðist í órafjarlægð. Það er alkunna, að atvinnurekendur og stjórnendur opin- berra fyrirtækja fara í kringum lagabókstafinn með ýmsu móti, m. a. með því að nefna störf karlmanna eitthvað annað en störf kvenna, enda þótt um sömu verkefni sé að ræða, og konur hafa miklu síður en karlmenn tækifæri til að hækka í tign og gegna ábyrgðarstörfum, án tillits til mennt- unar, starfsaldurs eða hæfni. Um þetta er óþarft að fjölyrða, því að dæmin blasa við, hvert sem litið er. Orsakirnar verða heldur ekki brotnar til mergjar hér, þær eru af ýmsum toga, en það er ef til vill þyngst á metunum, að enn er víða litið á karlmanninn sem fyrirvinnu, og störf kvenna talin eins konar dundur, áður en þær ganga í hjónaband, eða til að fylla upp í eyður, sem skapast við auðvelt heimilishald. Raunverulegt launajafnrétti er eitt af höfuðbaráttumál- um Rauðsokka, og þess vegna valdi einn starfshópur hreyf- ingarinnar sér það verkefni á sl. vetri að kanna ástandið í reynd. Verður ekki betur séð en að hann hafi haft erindi sem erfiði, því að það sem kom á daginn reyndist alvarlegra en nokkur úr hópnum hafði gert sér í hugarlund. Hópurinn starfaði í tvennu lagi. Annar valdi sér það verkefni að athuga skiptingu kynja í launaflokka hjá opin- berum fyrirtækjum. Þar sem niðurröðun samkvæmt nýju kjarasamningunum var ekki lokið, varð hann að notast við samninga frá árinu 1969, en telja má víst, að niðurstaðan hefði orðið svipuð, þótt samningarnir frá 1971 hefðu verið lagðir til grundvallar. Hinn hópurinn gerði svipaða könnun hjá nokkrum fyrirtækjum, þar sem starfsfólk tekur laun samkvæmt nýjustu kjarasamningum Verzlunarmannafélags Reykjavíkur. Niðurstöðurnar eru settar fram með nokkuð ólíkum hætti, þar sem um mismunandi vinnubrögð var að ræða hjá hópunum tveimur. Er nauðsynlegt að skýra með nokkrum orðum töflurnar þrjár, sem hér koma fyrir sjónir lesenda. Tafla I. Hún sýnir, hvernig u. þ. b. 700 félagsmenn í VR skiptast í launaflokka eftir kynjum og skýrir sig sjálf að mestu leyti. Hópurinn, sem að þessari könnun vann, fékk upplýsingar hjá viðkomandi fyrirtækjum, og tekið skal fram, að þau voru valin af handahófi. Einnig fékk hann upplýsingar um Tafla I. Flokkur MeSallaun Meðalstarfsaldur Kk. Kvk. 3 13.074 1.0 4 15.312 2.4 5 16.081 9.5 2.4 6 17.053 7.5 4.4 7 18.076 10.3 4.9 8 19.327 8.4 8.2 9 20.691 7.0 10.1 10 22.169 10.2 8.8 11 23.647 8.5 6.6 12 25.664 11.4 15.5 Umsamin laun 13.5 4.5 (s\s> En því eru okkar börn bara mín börn, ef viö skiljum? starfsaldur fólksins, og var reiknaður út meðalstarfsaldur kynja eftir launaflokkum. Ætlunin var að afla jafnframt upplýsinga um menntun starfsfólksins, en það reyndist nær ógerlegt, þar eð fæst fyrirtækin höfðu fullkomna spjaldskrá. Á stöku stað voru til reiðu upplýsingar um menntun, og þar kom í ljós, að menntun kvenna var yfirleitt minni en karla. Hins vegar virtist menntun hafa minni þýðingu en ætla mættivið röðun í launaflokka. Konur með litla menntun höfnuðu að vísu all- ar í lágu flokkunum, en karlar með hliðstæða menntun höfðu mikla möguleika á að komast hátt upp eftir launa- stiganum. Jafnvel voru dæmi þess, að þeir kæmust í hæstu flokka, en laun samkvæmt þeim eru ekki ákveðin af stéttar- félaginu, heldur samningsatriði milli viðkomandi starfs- manna og vinnuveitenda. Miklu færri konur en karlar komast í þá aðstöðu að geta samið sérstaklega um laun sín, eins og á súluritinu má sjá, eða 1% á móti 44%. Yfirborganir tíðkast víða í atvinnulíf- inu, og ef marka má þessar niðurstöður virðast atvinnurek- endur frekar leggja kynferði starfsfólks til grundvallar en önnur atriði, svo sem hæfni, menntun eða starfsaldur. Töflur II og III. Þær sýna skiptingu starfsmanna tveggja ríkisfyrirtækj a í launaflokka eftir kynjum, en menntun og starfsaldur eru einnig lögð til grundvallar. Hugmyndin var sú að setja niðurstöðurnar fram í prósentum, og láta útreikningana ná til fyrirtækjanna beggja, en vegna fæðar (könnun þessi tekur aðeins til um 110 manns) þótti hópnum skynsamlegra að sleppa útreikningum. Þar sem skýr mismunur kemur fram á töflunum tveimur, var ákveðið að birta þær báðar, en sameina ekki, eins og ætlunin hafði verið. Hending réð mestu um, hvaða fyrirtæki voru valin, en hópurinn hafði í upphafi hugboð um, að launamisrétti væri ekki jafn hróplegt á báðum stöðum. Ef til vill má skýra þennan mismun með því, að stofnanirnar tvær gegna mjög ólikum hlutverkum og gera mismiklar kröfur til menntunar og hæfni starfsfólks. Nöfn stofnananna verða þó látin liggja milli hluta. Á skrifstofu BSRB fengum við allar upplýsingar, nema þær sem snertu menntun starfsfólksins, en viðkomandi stofnanir létu þær góðfúslega af hendi. Á töflunum kemur fram, hvernig niðurröðunin eftir starfsaldri var gerð, en menntunarstigin þrjú þarfnast útskýringar. Lágmenntun tekur til skyldunáms, gagnfræðaprófs o. þ. h., miðlungs- menntun er kölluð menntun frá framhaldsskólum, svo sem menntaskólum, iðnskólum, Verzlunar- og Samvinnuskólum o. fl. Hámenntað fólk er einungis fólk með háskólapróf eða óvenjulangt sérnám. Að öðru leyti er óþarft að skýra vinnu- brögðin. Tafla II er sérlega athyglisverð. Aðeins í 11.—14. launa- flokki eru fulltrúar beggja kynja, konur leita niður á við, karlmenn upp á við. Tvær konur með miðlungsmenntun og hámarksstarfsaldur eru í 10. launaflokki, en í 14. launaflokki er karlmaður með lágmarksmenntun og lágmarksstarfsald- ur. Alls störfuðu hjá stofnuninni 4 konur með miðlungs- menntun og engin þeirra var yfir 10. launaflokki. Karlmenn með hliðstæða menntun dreifðust hins vegar á 14.—21. launaflokk. 25
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.