Samvinnan - 01.10.1971, Blaðsíða 50

Samvinnan - 01.10.1971, Blaðsíða 50
króna til sjómanna og 300 millj. króna til starfsfólks í landi. Ef áætlað er að heild- arlaunagreiðslur í landinu nemi um 20 þús. millj. kr. er þáttur fiskvinnslu sem á einn eða annan hátt er tengd Samband- inu um 2,75%. Þessar tölur gefa til kynna hve mikil- væg áhrif þessi grein starfseminnar hlýt- ur að hafa á hinar ýmsu starfsgreinar aðrar innan vébanda Sambandsins. Víða á landinu eru kaupfélögin myndarlegir aðilar að fiskvinnslu. Sem dæmi rná nefna kaupfélagið á Hornafirði, Kaup- félag Eyfirðinga, Kaupfélag Suðurnesja, Kaupfélag Árnesinga, Kaupfélag Dýrfirð- inga, Kaupfélag Skagfirðinga og Kaupfé- lag Þingeyinga á Húsavík, en því eru þessi félög nefnd hér að þau eru stærst á þessu sviði. Fiskvinnslufyrirtækin og útgerðin eru rekin ýmist sem óaðskilinn þáttur í starf- semi viðkomandi kaupfélaga eða sem sér- stök hlutafélög í sameign við ýmsa aðra aðila. Félagsformin geta verið mismun- andi, og ekki henta sömu reglur alstaðar. Þó er það mín skoðun, að æskilegt sé að öðru jöfnu að blanda ekki saman rekstri á venjulegri verzlun með hinar ýmsu nauðsynjavörur og t. d. útgerð og fisk- vinnslu. Eðli sínu samkvæmt er öll fram- leiðsla sjávarafurða á íslandi áhættusöm, og því mun sú skoðun almennt viður- kennd að ekki sé æskilegt að reytum sé ruglað saman hjá neytendum, bændum, fiskimönnum og starfsfólki við fisk- vinnslu, svo að dæmi séu nefnd, þannig að einhverjir þessara aðila þurfi að biða skaða vegna þess að illa fer hjá hinum. Eðlilegri og æskilegri stefna væri að hin ýmsu samvinnufélög innan vébanda Sambandsins væru virkir þátttakendur í rekstri fiskvinnslufyrirtækja í sínum heimabyggðum og þá helzt í félagi við t. d. bæjar- eða sveitarfélög og það fólk sem hagsmuna á helzt að gæta í sambandi við starfrækslu slikra fyrirtækja. Mikil þörf er á því að Sambandsfélög vinni markvisst að því að auka hlut sinn og þar með Sambandsins í framleiðslu sjávarafurða á komandi árum. Að því liggja ýmis mikilvæg rök. Um þessar mundir stöndum við að vissu leyti á krossgötum í þessum efnum. Fiskrétta- verksmiðja og sölustarfsemi Sambandsins og frystihúsanna í Bandaríkjunum hefur verið í uppbyggingu og vexti allt frá stofnun fyrirtækisins Iceland Products árið 1951, og er nú svo komið að frystihús á vegum Sambandsins eiga fullt í fangi með að framleiða nægilegt hráefni fyrir verksmiðjuna. Hinsvegar virðist af ýms- um ástæðum æskilegt að unnt verði að auka enn framleiðslu verksmiðjunnar, til að hagkvæmni geti vaxið og samkeppnis- aðstaða við aðra framleiðendur verði bætt. Líkur benda til þess að fiskblokkir verði ekki auðkeyptar á frjálsum markaði á næstu árum, og eina örugga leiðin til að nálgast hið æskilega takmark er að auka eigin framleiðslu. Á þessu hausti mun Sambandið eignast nýtt frystiskip, sem kemur til með að hafa mun meiri afkastagetu en Jökul- fellið sem fyrir er. Það magn sem við nú höfum til umráða nægir ekki til að veita úttiutningur sjÁvmruRðmmR V£RDMMTI ÚTFIUTWNBS SJÁVAHAfUHOADBlDMI ÁMD 1970 3KIPT ÍFTIP LOHDUM í ÞÚS. KR. •—' Ull USA 787052 z DANMÖRK 55827 7i FINNLAND 5874 2 1 USSR 191670 8. SHÞJQD 53952 FRAKKLAND 5062 3 mmwm /327/8 ft DELGIA //46o « ASTRAUA 3928 4 ITAUA 88439 i? PpLLAND //3/8 í JAPAN 3.225 5 ! ÞYZKALAND 87.965 u /0.735 n jm iTTö 6 WZT'' 58.035 WAfrn 7964 SAMFALS/524.3641 50
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.