Samvinnan - 01.10.1971, Blaðsíða 54

Samvinnan - 01.10.1971, Blaðsíða 54
— Vo . . . uuuuuuuuuu . . . trrrrrrrr . . . Flugvél þaut lágt yfir veginum og kúlnademba rótaði upp rykinu. Þegar hún var komin framhjá skall önnur demba á veginn frá skyttunni i stélinu. — Komið hingað og réttið hönd, helvitis yrðlingarnir ykkar! Korpela öskraði, en hjálp var hvorki að sjá né heyra. Margir hlupu frá hestum sínum inní skóginn. — Já, flýið alla leið til helvitis. Og látið drepa veslings hestinn hér . . . Flugvélarnar hnituðu hringa þarna uppi, og sprengjur sprungu og vélbyssur geltu. Flugvélarkanóna hóf einnig að skjóta og afturhluti kerrunnar sundrað- ist. Korpela kastaði sér niður, en reis strax á fætur og hélt áfram að losa kerr- una. Og þá loks kom Lamnio á vettvang, búinn að forða stúlkunni inní skóginn. Hann gekk uppréttur og lét sem hann sæi ekki flugvélarnar. Þegar Korpela sá til hans varð hann æfur. Hér kemur hann til að leika striðshetju! — Komdu ekki hingað, djöfullinn þinn. Þig varðar ekkert um mína kerru. Ég þarfnast ekki manna eins og þín. En Lamnio hélt sínu striki, og skyndi- lega sleppti Korpela taumunum og gekk í veg fyrir Lamnio: — Sjáðu um að ég verði fluttur til strax. Ég vil komast í aðra deild. — Hví þá það? Fari það i heitasta . . . Og hvert, ef mér leyfist að spyrja? — Á enda veraldarinnar, bara ef ég losna við þig. Alla leið til helvitis, ef ekki vill betur. — Korpela. Ég aðvara þig í síðasta sinn. Ósigurinn hefur gert menn eins og þig uppvöðslusama, en þú skalt ekki halda að herinn láti spýta i andlitið á sér, þótt hann sé á undanhaldi. — Hæhæhæhæhæ. Hverjir eru það sem skyrpa i fésið á fólki? Það ert þú og þinir líkar. Og hættu að klappa þessu skamm- byssuhylki þínu, eða ég fleygi þér inní skóginn. Ein flugvélanna nálgaðist þá. Korpela gekk aftur til hestsins og kallaði um öxl sér: — Já, nú hef ég kynnzt finnskum dándimanni. Það var lika þannig sem ég hélt að þeir væru. En nú veit ég það. Hann þreif reiðilega i tauminn: — Já, hérna kvelja þeir dýr eins og þau hafi gert eitthvað af sér. En far þú bara, þú. Stattu ekki hér til að láta drepa þig. Komdu með mér, þú. Flugvél stefndi á þá með þungum dyn. Eldurinn stóð útúr vélbyssunum og það brast i greinum trjánna. Korpela spennti hestinn frá og stefndi með hann inní skóginn. Um leið steytti hann hnefann til himins og sagði: — Skjóttu bara, djöfullinn þinn. Skjóttu núna, nú ertu í færi. Flugvélin beindi nefinu uppávið, snar- hækkaði flugið; stélið vissi beint niður og blikaði á það. Undir því valhoppaði hest- urinn inní skóginn. Korpela dróst með honum, því að hönd hans var flækt í tauminn. Svo losnaði hann og lá hreyf- ingarlaus á bakinu. Lamnio bar að þegar hann deplaði augunum í siðasta sinn. Blóð vall undan honum. Kona nokkur varð að fara á engjar frá barninu sínu nærfellt ársgömlu og skilja það eitt eftir. Þegar hún kom heim aftur tók hún eftir því að barnið lét sem það þekkti hana ekki og var undarlegt í alla staði. Konan tók þá það til þragðs að hún tók minnsta pottinn á bænum og setti hann á hlóðir, rak síðan skafablað neðan í svo langa stöng að hún tók úr pottinum út um reykháfinn . . ., . . . svo bar hún vögguna með barninu í fram í eldhús og lézt ganga brott en stóð reyndar á hleri. Þá stóð gamall og Ijótur kall upp úr vöggunni . . ., litaðist um og sagði: „Ég er nú svo gamall sem á grönum má sjá og átján barna fað- ir í álfheimum og hef ég aldrei séð svo stóra strýtu í litilli grýtu." Konan lét sem ekkert væri, en kom nokkru seinna inn í eldhúsið með vönd mikinn og tók að hýða barnið. Hljóðaði það ógurlega. Eftir nokkra stund kom kona þar að með barn í fangi og mælti reiðuglega: „Taktu við krakkanum þínum. Misjafnt höfumst við að, þú berð mitt, en ég dilla þínu.“ Siðan greip hún umskiptinginn úr vögg- unni og sást aldrei oftar. 54
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.