Samvinnan - 01.10.1971, Qupperneq 23
Samræmd handavðnnukennsla
Samhljóða bréf er sent öllum skólastjórum skyldunáms-
skóla á landinu; athygli fræðslumálastjóra verður vakin á
því, og í ráði er að birta það opinberlega.
Tilgangur bréfsins er að hvetja sérhvern skóla til að afmá
mismunun nemenda sinna eftir kynferði, en mismunun
þessi er hvað greinilegust í framkvæmd verklegrar kennslu,
þar sem stúlkurnar eru skyldaðar til náms í saumum og
eldamennsku, en strákar til smíða.
Sú krafa fer sívaxandi að barn fái að þroskast samkvæmt
hæfileikum sínum, en óháð hömlum kynhlutverka þeirra
sem viðgengizt hafa í samfélagi okkar. Handavinnu- og
matreiðslukennsla skólanna í því formi, sem nú er við
lýði, er viðamikill hlekkur í þeirri atriðakeðju, sem knýr
stúlkur til láglaunamennsku jafnt úti á almennum vinnu-
markaði sem á heimilunum, og gerir drengi ófæra og óvilj-
uga til að létta til við heimilisverk og sinna eigin þjónustu.
Verkleg kennsla stúlkna í núverandi formi er ekki miðuð
við að þroska þær til að öðlast verksvit og kenna þeim
að skilja lögmál þess verks sem vinna skal og öðlast þannig
aukna sjálfsvirðingu þess, sem er strangur við sjálfan sig
án þess að láta ofbjóða kröftum sínum. Verkleg kennsla
stúlkna er miðuð við að gera þær færari um að gegna
þeim þjónustustörfum, sem eðlilegt hefur verið talið að
konur inntu af hendi í samfélaginu án endurgjalds til þessa.
Kennslan beinir ekki nemendum í átt til neinnar atvinnu-
greinar seinna meir í lífinu utan hugsanlega þeirrar að
verða kennarar í matreiðslu og handavinnu stúlkna.
Eins og nú er komið eru stúlkur neyddar til innisetu yfir
handavinnu, sem getur numið nokkrum klukkustundum á
viku hverri hjá þeim sem eru samvizkusamar, meðan bræður
þeirra eru frjáisir að leik, og er þetta síður en svo konunni
til hjálpar, þegar hún uppkomin þarf á'ð andæfa gegn því
að verða neydd til að vinna tvöfaldan vinnutíma, hlunn-
farin í umbun í báðum tilfellum sökum skorts á vinnumetn-
aði og langvarandi kúgunar.
Unglingar eru sjálfir að brjóta hlekki kynskiptingarinnar,
hvað gleggst sést á klæðaburði þeirra, og fjöldi heimila
reynir sitt ýtrasta til að skapa börnum sínum jafna aðstöðu
til verks og náms. Það er því hörmulegt að skólarnir skuli
vinna svo afdrifaríkt gegn þessari þróun, þar sem æskilegt
væri að þeir settu hvetjandi fordæmi.
Ekki hefur auðnazt við gerð hins nýja kennaraskólafrum-
varps að sameina fræðsludeildir handavinnukennara og
teiknikennara undir einn og sama skóla, en teiknikennarar
útskrifast sem kunnugt er frá Myndlista- og handíðaskólan-
um. Hefur hin þrískipta menntun handíðakennara að okkar
dómi mjög óæskileg áhrif á eðlilega þróun verklegrar
kennslu. Ekki er okkur kunnugt um að nauðsyn grundvallar-
breytingar á verklegri kennslu hafi fengið verðskuldaða at-
hygi við yfirstandandi endurskoðun námsskrár fyrir
skyldunámsstigið.
Að þessu athuguðu viljum við leita beint til stjórnenda
hinna einstöku skóla og hvetja þá til alvarlegrar og ábyrgrar
íhugunar um þessi mál. Við viljum hvetja yður til að gera
að veruleika þau 6 ára gömlu ummæli í skýrslu Evrópuráðs:
að samkennsla sé í íslenzkum skólum án allrar mismun-
unar. Einn skóli hefur riðið á vaðið og veitt stúlkum frjáls-
an aðgang að verkmennt ásamt piltunum. Barna- og ungl-
ingaskóli Grundarfjarðar er fyrstur skóla til að leggja niður
kynhömlur í verklegri kennslu Við frjálst val kusu aðeins
6 stúlkur úr elztu aldursflokkunum að halda áfram námi í
saumum, en hinar að taka þátt í föndri og smíðum með
bekkjarbræðrum sínum.
Við skorum á yður að láta ekki vanaskorður kennslu und-
angenginna ára og staðreyndir eins og þær að aðeins séu
til hefilbekkir handa strákunum trufla dómgreind yðar. Ef
hefilbekkirnir eru aðeins nógu margir fyrir helming nem-
enda, verður að deila tímanum í tvennt sem unnið er við þá,
og verður þá rými fyrir alla. Sé áherzla lögð á hinar skap-
andi hliðar matreiðslu og sauma, verða þetta einnig eftir-
sóttar námsgreinar af drengjum jafnt og stúlkum.
Við hvetjum yður til þess nú þegar á komandi skólaári að
gera varanlegar breytingar til umbóta. Þjónustustörf ber
Þjóðviljinn, 29. 8. 1971:
Aukinn bílainnflutningur
hefur í för með sér fleiri slys
og dauðsföll í umferðinni. Þetta
er því miður óhagganleg stað-
reynd sem hægt er að sanna
með tölum. Ef til vill væri þó
hægt að gera meira til að koma
í veg fyrir slys i umferðinni.
T. d. með því að komið yrði á
fót fleiri leikskólum, dagheim-
ilum, leiksvæðum og skóladag-
heimilum fyrir börn, því að
hátt hlutfall þeirra sem verða
fyrir bílum eru börn.
En af hverju missi ég mannrétt-
indin, ef ég giftist þér?
opinskátt að skilgreina sem slík, þótt ávallt sé eftir mætti
lögð áherzla á skapandi þætti þeirra, og alls engan mismun
má gera á grundvelli kynferðis, hvort sem um verkmennt
þjónustustarfa eða starfa sem lúta að sköpun og byggingu
er að ræða.
Reykjavík, 26. júlí 1971
f. h. starfshóps Rauðsokka sem starfaði
á tímabilinu febrúar-—maí 1971
Hildur Hákonardóttir
Þórunn Árnadóttir.
„Ég fæ ekki vinnu. Forstjórinn vill ekki ráða stúlku í
starfið, sem ég sótti um. Hann segir, að þær hætti svo fljótt
aftur.“
Er það rétt hjá forstjóranum, að konur séu ekki eins var-
anlegur vinnukraftur og karlar?
Rannsókn, sem tvær starfskonur í banka gerðu og birtu
í starfsmannablaði bankans, sýndi, að
meðalstarfsaldur kvenna í bönkunum er
hærri en meðalstarfsaldur karla.
í öllum bönkum landsins voru 979 starfsmenn, 524 konur
og 455 karlar. í 5 kauplægstu flokkunum reyndust konur
vera í yfirgnæfandi meirihluta en í efri flokkunum voru
karlar í þeim mun stærri meirihluta, sem ofar dró, unz
þeir voru einir í þeim efsta.
í Stjórnarráði íslands er engin kona með hærri titil en
fulltrúi, flestar eru ritarar eða bókarar, engin deildarstjóri
eða ráðuneytisstjóri. Engin kona hefur enn verið skipuð
sendiherra á íslandi, engin kona er hæstaréttardómari og
ekki nema tvær konur, sem hafa réttindi til að flytja mál
fyrir hæstarétti. Engin kona situr í Rannsóknaráði og engin
kona veitir forstöðu vísindalegri rannsóknarstofnun, engin
kona er bankastjóri og það var fyrst á síðasta ári, að fyrsta
konan var skipuð prófessor við Háskóla íslands. Aðeins ein
kona gegnir yfirlæknisstöðu á sjúkrahúsum landsins.
Eru virkilega 100.000 konur á íslandi?
í nefnd, sem skipuð var til þess að endurskoða fóstureyð-
ingarlögin, er engin kona.
23