Samvinnan - 01.10.1971, Qupperneq 29

Samvinnan - 01.10.1971, Qupperneq 29
Gerður G. Óskarsdóttir: Viðhorf Rauðsokka til barnaheimilismála Eitt aðaláhugamál Rauð- sokka er að breyta þeirri hefð, að kynferði komi i veg fyrir, að einstaklingur geti valið sér starf í samræmi við hæfileika sína og áhugamál, þ. e. að ein- staklingur sé fæddur inn i eina og sömu stéttina. í okkar þjóð- félagi er það svo, að kona, sem vill giftast og eignast börn, á ekki möguleika á starfsvali, húsmóðurstaðan er hennar eina val. Svo vel vill til, að þetta starf á mjög vel við fjölda kvenna og þótt þær hefðu úr mörgu að velja, myndu þær helzt velja sér húsmóðurstarfið. En þessu er ekki þannig farið um allar konur, enda furðu- legt að láta sér detta i hug, að helmingur mannkyns hneigist allur að einu starfi, þegar hinn helmingurinn skiptist á ótelj- andi störf. Karlmenn eiga val, en kon- ur ekki. Ég ætla mér ekki þá dul að fullyrða, að allir karl- menn séu einmitt i þvi starfi, sem hæfileikar þeirra og á- hugamál hafa beinzt að, þvi fer fjarri, fjöldi karlmanna er á rangri hillu, en þegar þeir völdu sína námsleið, ef um nám var að ræða, höfðu þeir nokkurt val, þótt allar náms- leiðir hafi e. t. v. ekki staðið opnar, og þegar út á vinnu- markaðinn kom, höfðu þeir langflestir úr fleiri en einu starfi að velja, einnig hafa þeir yfirleitt möguleika til að skipta um starf, jafnvel oft á ævinni, starfsreynsla í einu starfi á vinnumarkaðnum kemur að notum í öðru. Hvað veldur því þá, að kona getur ekki valið sér starf? Það eru börn hennar og manns hennar. Fólk hefur heyrzt segja: „Hvað eru þessar konur þá að eiga börn?“ Ég spyr: Er hægt að ætlast til þess að kon- ur, sem ekki vilja helga sig ein- göngu heimilisstörfum, neiti sér um þá lífsfyllingu að eignast afkvæmi, annast þau (þó ekki sé allan sólarhringinn frá fæð- ingu til fullorðinsára), sjá þau dafna og þroskast og styðja þau til sjálfsbjargar? Enginn ætlast til þess að karlmenn neiti sér um að eiga börn, þótt tími þeirra til að annast þau sé oft takmarkaður. Hvernig getur þjóðfélagið þá komið til móts við þessar konur? Hver er leiðin út úr þessum vanda? Hún er að sjálfsögðu sú, að barnaheimili fyrir börn undir 6 ára aldri séu næg i landinu fyrir alla þá foreldra, sem óska að koma börnum sínum þang- að. Það er börnum hollt að vera innan um önnur börn hluta dags í umsjá sérmenntaðs fólks, sem kennir þeim föndur, leiki, vísur o. fl., kannski holl- ara en að vera ein inni að leik með móðurinni allan daginn, eða vera úti á götu, jafnvel þótt móðirin geti haft eftirlit með þeim. Þar með er ekki sagt, að æskilegt sé, að börnin dvelji á dagheimili frá því snemma á morgnana þar til seint á dag- inn. Von okkar Rauðsokka er, að fari konur almennt að leita út á vinnumarkaðinn, geti það orðið til þess, að vinnutíminn styttist, hjónin bæði afli heim- ilinu tekna i stað þess að heim- ilisfaðirinn geri það einn með óheyrilega löngum vinnutima eins og nú á sér stað og sjái börnin varla nema um helgar. Öll fjölskyldan gæti verið kom- in heim um miðjan dag, t. d. kl. 3 eða 4, jafnvel fyrr. Skóla- tími barna á skólaskyldualdri þyrfti að sjálfsögðu að lengjast, eða að við alla skóla væru starfrækt skólaheimili. í Eng- landi eru börn í skóla frá þvi á morgnana til 3 og 4 á daginn frá 5 ára aldri og þykir sjálf- sagður hlutur þar í landi. Vart verður komið auga á aðra lausn en hér hefur verið nefnd. Foreldrar munu aldrei geta skipzt á að vera heima til að annast börnin og unnið síð- an hálft starf sitt utan heimil- is, það yrði óframkvæmanlegt. Störfin eru þess eðlis, og það er einnig trúa mín, að fæstir karlmenn tækju það í mál, þeir eru yfirleitt það háðir starfi sínu. Það er heldur ekki lausn, að annað foreldrið, sem við nú- verandi aðstæður yrði konan, taki sér frí frá starfi sínu í a. m. k. 6 ár, oftast lengur, ef börnin eru fleiri en eitt. Við það losnar hún úr tengslum við atvinnulifið og á svo e. t. v. ekki auðvelt með að fá starf aftur. Framfarir eru svo örar að starfsþjálfun hennar getur verið orðin úrelt eftir 10 ár. Það ber lika að líta á það, að ef það á ekki við einstakling að gegna húsmóðurstarfi ein- göngu, þá er þessi einstaklingur óánægður að óþörfu i jafnvel fjölda ára. Við viljum lika benda á, að það eykur sjálfstraust kvenna að taka þátt i atvinnulífinu og verða fjárhagslega sjálfstæðar, hvort sem þær gera það pen- inganna vegna eða vegna áhuga á starfinu. Við vitum öll, hvernig á- standið í barnaheimilismálum er hjá okkur. Á dagheimili sem aðeins eru i Reykjavík og stærstu kaupstöðum komast að- eins börn einstæðra mæðra og börn einstakra námsmanna. Leikskólar, sem eru fyrir hálfs dags dvöl, leysa vanda margra, þ. e. konum sem aðeins vinna hálfan daginn nægir slík vist- un barna sinna. Þeir munu þó ekki síður ætlaðir börnum kvenna, sem ekki vinna utan heimilis, svo þær geti smátíma dagsins um frjálst höfuð strok- ið og börnin notið félagsskapar annarra barna. Af framansögðu hlýtur að teljast eðlilegt, að Rauðsokkar hafi mikinn áhuga á að fjölga dagvistunarstofnunum stór- lega, en allir hlutir kosta pen- inga, og það er einmitt það sem við rekum okkur á: vilji yfirvalda er sagður fyrir hendi, en fjármagn er af skornum skammti. Einhvern veginn fer maður að efast um þetta al- gjöra peningaleysi í landinu, þegar verzlunarhallir og leyni- félagamusteri fyrir tugi millj- óna rísa af grunni eins og ekk- ert sé. Hefur allt þetta fé kom- ið úr vasa einstaklinga? Hafa ekki bankarnir hlaupið undir bagga? Af hverju vilja bankar ekki lána fé til bygginga barna- heimila? Græða þeir ekki á því, eða hefur ekki verið farið fram á slík lán? Nýjasta dag- heimilið i Reykjavík, Holtaborg, sem tekur 74 börn mun hafa kostað um 15 milljónir. Það er að sjálfsögðu ekki nóg að reisa þessar stofnanir, það þarf að reka þær og það er dýrt og að sjálfsögðu horft í pen- inginn. Nú er það svo að for- eldrar borga um helming af kostnaði dagheimilisdvalar og um 70—80% af kostnaði leik- skóla. Afgangurinn er greiddur af bæjarfélaginu, þ. e. af sam- eiginlegu fé borgar- eða bæjar- búa. Skyldunámsskólar eru aft- ur á móti eingöngu kostaðir af hinu sameiginlega fé, þ. e. kostnaðurinn við byggingu og rekstur er greiddur af ríki og bæ til samans. Engum dettur En mér finnst ekki gaman að elda mat og fara út með ruslið. lengur í hug að foreldrar greiði beint fyrir börn sín þar. Kostn- aðurinn jafnast á alla lands- menn, hvort sem þeir eiga þar börn eða ekki. Mætti ekki hafa svipaðan hátt á við dagheimili og leikskóla? Á siðastliðnu hausti var komið á kennslu 6 ára barna i Reykjavik og viðar. Virtust allir mjög glaðir yfir þvi og engum datt í hug, að greitt yrði beint fyrir hvert barn af foreldrum þess, fyrir þessa kennslu, þótt greiða verði fyrir þennan aldursflokk fái hann að vera í leikskóla eða á dagheimili. Hér vil ég benda á, að hið opinbera er ekki höfuð- skepna, sem er á móti okkur, heldur tæki í okkar höndum svo við getum lifað hamingju- söm i landinu, eða hvað segir ekki Halldór Laxness i Atóm- stöðinni: „Mannlegt félag er sá, sem hefur skyldur við börn, svo fremi það hafi skyldur við nokkurn, svo fremi nokkur hafi skyldur við nokkurn.“ 4 ^/óá oj éj er — þvi Jon er kominn h*im. 29
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.