Samvinnan - 01.10.1971, Qupperneq 33

Samvinnan - 01.10.1971, Qupperneq 33
Bandarísk baráttukona Leiðtogar hinna nýstofnuðu -pólitísku kvennasamtaka í Bandaríkjunum, „Natio- nal Women’s Political Caucus“, frá vinstri: Gloría Steinem, Bella Abzug og Shirley Chisholm, sem báðar eiga sceti í öldungadeildinni, og Betty Friedan. Bandaríska vikuritið News- week helgaði forsíðu sina og aðalgrein (Special Report) 16. ágúst síðastliðinn blaðakon- unni Gloríu Steinem, sem er einn skeleggasti og áhrifamesti baráttumaður kvenfrelsis- hreyfingarinnar vestanhafs. Þar segir meðal annars: Óeigingirni Gloríu er ekki að öllu leyti — og eftilvill ekki fyrst og fremst — spurning um gagnsemi í félagslegu skipulagi, en hún er ekki heldur einber hjartagæzka. Sú grundvallar- hugmynd sem nú stjórnar öll- um gerðum hennar er, að kúg- un kvenna sé ekki einungis fé- lagsleg (langvarandi samvöxt- ur siðvenja og viðhorfa), held- ur pólitisk — kerfi stjórnar og útnýtingar sem sé gagngert viðhaldið af valdastéttinni, sem i þessu tilviki er hvíti karlmað- urinn. Þessi skilningur á ekki upptök sín hjá Gloríu Steinem: allt frá Mary Wollenstonecraft og Karli Marx til Gunnars Myrdals og Ti-Grace Atkinsons, sem er einn helzti hugmynda- fræðingur systrafélagsins, hafa menn haldið því fram, að vest- ræn þjóðfélög (þ. e. a. s. karl- mennirnir sem stjórna þeim) skipi lögum sínum, mennta- kerfum, sálfræði- og guðfræði- kerfum, hjúskapar- og fjöl- skyldugerðum og öllum efna- hagspýramídanum útfrá þeirri forsendu að konur haldi áfram að vera ódýrir og auðviðráðan- legir heimilis- og verzlunar- þrælar, barnaframleiðendur og barnagæzlumenn. Einsog margar konur hefur Gloría Steinem fundið fyrir þungu andófi karlmannaþjóð- félagsins gegn sér við hvert fótmál á lífsleiðinni, en það var fyrst fyrir .tveimur árum að henni varð ljóst algildi kerfis- ins og gerræði — og um leið varð henni ljós sá kostur að breyta því með róttækum að- gerðum. Fremur í leit að efni í blaðagrein en í öðrum tilgangi sótti hún fund í nóvember 1968 hjá nýstofnuðum kvenfrelsis- hópi i New York, sem nefndi sig Rauðsokka og kom saman til að mótmæla lagabrögðum sem höfð voru í frammi við yfir- heyrslur þingsins i sambandi við endurskoðun fóstureyðing- arlaganna. Einsog jafnan þegar Gloría á í hlut, var það hið einstaka dæmi um mannlega þjáningu sem opnaði augu hennar fyrir hinu víðtækara meginatriði. „Konur risu úr sætum sínum og skýrðu frá fóstureyðingum sinum, og i flestum tilvikum var það svo hörmulegt og nið- urlægjandi og hættulegt, að þetta varð í rauninni ótrúlega hugarhrærandi kvöld,“ segir hún. „Það opnaði augu mín fyrir því, að konur eru kúgaðar í sameiningu og verða því að láta til skarar skriða í samein- ingu. í okkur brennur ævinlega reiði og niðurlæging. Ég hafði alltaf gert mér ljóst, hvað gerði mig reiða útí Playboy-klúbb- ana eða hið tvöfalda siðgæði eða hömlurnar gegn því að ég skrifaði um stjórnmál eða þá reglu að vera send eftir kaffi handa karlmönnunum, en ég skildi ekki að hér var um að ræða vandamál hópsins. Áður en ég sótti Rauðsokkafundinn hafði ég haldið, að persónuleg vandamál og reynsla mín væru mitt einkamál en ekki þáttur í stærra pólitísku vandamáli.“ NOKKRAR STAÐREYNDIR ÚR LESTRAR- OG REIKNINGSBÓKUM FYRIR BÖRN Móðir, sem vinnur utan heimilis, þekkist ekki í algengustu byrjenda- bókum í lestri. í bókunum „Það er leikur að lesa“ segja 10 sögur, flestar langar, frá drengjum, en stúlkur koma þar nánast ekki við sögu. Einungis 3 sam- bærilegar frásagnir fjalla um stúlkur, í einni þeirra er drengur einnig áberandi söguhetja. í þeim reikningsbókum, sem kenndar eru á barnaskólastiginu í 7—9 ára aldursflokkum (reikningsbækur Jónasar B. Jónssonar, þrjú hefti og stærðfræði eftir Agnete Bundgaard), voru taiin 244 lesdæmi. 43% þeirra fjalla um karlmenn, 28% um kvenmenn, 9% um bæði kyn og 20% um hlutlaust efni. í þeim reikningsbókum, sem kenndar eru í 10—12 ára aldursflokkum (reikningsbækur Elíasar Bjarnasonar, þrjú hefti), voru lesdæmin 939. Þar fjalla 35% um karlmenn, 13% um kvenmenn, 4% um bæði kyn og 48% um hlutlaus efni. í reikningsbókum Eliasar Bjarnasonar, 3. hefti (handa 12 ára börnum) fjalla 38% dæmanna um karlkynspersónur, en einungis 9% um kven- kynspersónur. 2% fjalla um bæði kynin og 51% um hlutlaust efni. (Glefsur úr athugun sem nokkrar „Úur“ gerðu á síðastliðnum vetri.) SKOÐANAKÖNNUN um meyjamat (setjið kross þar sem við á) 1) Til hvaða sýninga finnst yður Laugardalshöllin bezt fallin? a) Bílasýninga.......... b) Landbúnaðarsýninga ........... c) Húsgagnasýninga........... d) Kvennasýninga............ 2) Hvað veldur því að fólk lœtur sýna sig? a) Gróðavon .......... b) Menntunarvon............ c) Hégómagirnd............ 3) Hvaða eiginleika teljið þér að beri að verðlauna hjá fólki? a) Rétt brjóstmál.......... b) Brjóstgæði........... c) Rétt mjaðmamál............ d) Mannkostir........... e) Þyngd .......... f) Þolinmæði........... g) Fegurð .......... h) Félagsþroski ......... 4) í hvers þágu teljið þér, að svona sýningar séu haldnar? a) í þágu sýningargripanna........... b) í þágu þjóðfélagsins......... c) í þágu þeirra sem verið er að skemmta.......... d) í þágu skemmtanaiðnaðarins........... 5) Hvert teljið þér að ágóðinn af þessari sýningu renni? a) Til stúlknanna sem sýndar eru.......... b) Til áhorfenda.......... c) Til Fegurðarsamkeppninnar hf., (Sigríðar Gunnars- dóttur og Co)........... Vinsamlegast fyllið út áður en sýningu lýkur. Þorláksmessustarfshópur Rauðsokka 33
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.